Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 1. apríl 2010
19
-p-
Surtseyjarstofa opnuð í sumar - Surtsey er einstök náttúruperla sem þarf að
varðveita - Ekki vitað eins mikið um náttúru annarra eyja í öllum heiminum:
Verður vonandi gluggi út í eyjuna
-Þar sem hægt er að nálgast allar tiltækar upplýsingar um Surtsey, segir forstöðumaður
Lovísa Ásbjömsdóttir, forstöðu-
maður Surtseyjarstofu, var ráðin í
nýtt starf hjá Umhverfisstofnun út í
Vestmannaeyjum árið 2008, en þá
stóð til að opna Surtseyjarstofu
snemma árs 2009. Lovísa vann
áður á Náttúrufræðistofnun Islands
þar sem eitt af stóru verkefnum
hennar var Surtsey, tilnefning
hennar á heimsminjaskrá og Surts-
eyjarsýningin.
„Starf mitt hjá Umhverfisstofnun
felst í því að koma upp Surtseyjar-
stofu og starfsemi hennar, auk þess
að hafa umsjón með friðlandinu
Surtsey. Þegar ég kom hingað út í
Eyjar vorið 2008 stóð til að byggja
gosminjasafnið Eldheima, sem er
mjög spennandi verkefni.
I Eldheimum var gert ráð fyrir að
gera gossögu Vestmannaeyja góð
skil og þar var einnig gert ráð fyrir
Surtseyjarstofu. I efnahagshruninu
haustið 2008 urðu miklar breyt-
ingar hjá ríkinu varðandi ný verk-
efni og þannig fór að allt fjármagn
til Surtseyjarstofu var skorið niður.
Sömuleiðis var hugmynd Vest-
mannaeyjabæjar um byggingu
Eldheima lögð til hliðar. Síðasta
sumar ákvað Framkvæmdasýsla
rikisins og Umhverfisstofnun að
auglýsa eftir húsnæði undir Surts-
eyjarstofu, en þar sem ekki var búið
að tryggja fjármagn í stofuna var
ekki hægt að taka næstu skref. Þá
tók við erfiður biðtími eftir svari
stjórnvalda um framhaldið, en í
febrúar síðast liðnum samþykkti
fjármálaráðuneytið kostnaðaráætlun
Surtseyjarstofu og komið er grænt
ljós um áframhaldið.
Eftir allan þennan tíma var tölu-
verð hætta á að við værum búin að
missa húsnæðið sem okkur bauðst
síðasta sumar og að við værum
komin aftur á byrjunareit varðandi
það, en sem betur fer var það ekki.
Fljótlega verður gengið frá leigu-
samningi um húsnæði á Heiðar-
vegi I þar sem Surtseyjarstofa
verður til húsa a.m.k. næstu fimm
árin. Staðsetningin er á góðum stað
og Surtseyjarstofa verður sýnileg í
miðbænum.
Nú er verið að teikna húsnæðið,
eigandinn, Gfsli Valur, er langt
kominn með að hreinsa út og síðan
hefst uppbygging. Við vonumst til
að opna Surtseyjarstofu um mán-
LOVÍSA og Þórunn sýningarhönnuður að störfum. -Það er heilmikið verk framundan og auðvitað getur
ýmislegt komið uppá sem getur frestað opnun stofunnar, en maður finnur fyrir miklum vilja þeirra sem
koma að þessu verki að opna Surtseyjarstofu í sumar , segir Lovísa.
ÞANNIG kemur Surtseyjarstofa til með að líta út. Þarna var áður skemmtistaðurinn Skansinn. Fljótlega
verður gengið frá leigusamningum um húsnæði á Heiðarverg 1 og Surtseyjarstofa verði þar til húsa a.m.k.
næstu fimm árin. Staðsetningin er á góðum stað og Surtseyjarstofa verður sýnileg í miðbænum.
Sýningin „Surtsey -
jörð úr Ægi“ sem var
í um 320 fermetra
sýningarsal í Þjóð-
menningarhúsinu
verður núna sett upp
í um 170 fermetra
sýningarsal.
aðarmótin júní-júlí. Það er heilmik-
ið verk framundan og auðvitað
getur ýmislegt komið uppá sem
getur frestað opnun stofunnar, en
maður fmnur fyrir miklum vilja
þeirra sem koma að þessu verki að
opna Surtseyjarstofu í sumar og ég
er viss um að okkur takist það í
þetta skiptið. Sýningin „Surtsey -
jörð úr ægi“ sem var í um 320 fer-
metra sýningarsal í Þjóðmenn-
ingarhúsinu verður núna sett upp í
um 170 fermetra sýningarsal.
Þannig að það verður heilmikil
kúnst að koma sýningunni fyrir.
Sýningarhönnuðurinn, Þórunn
Sigríður Þorgrímsdóttir kemur fyrir
páska til að skoða sýningarsalinn
og teikna sýninguna inn í rýmið.
Verður spennandi að sjá hvað
kemur út úr því.
Ég reikna með að Surtseyjarstofa
verði opin eins og önnur söfn í
Vestmannaeyjum yfir sumartíma.
Yfir vetrartíma er opnunartíminn
styttri og starfsemin miðuð frekar
við heimsóknir skólahópa. Síðan
eru margar góðar hugmyndir um
skemmtilegar uppákomur í
Surtseyjarstofu, en fyrsta skrefið er
að opna.“
Hvað með vœntingar?
„Bæjarbúar hafa miklar væntingar
til Surtseyjarstofu. Þegar fréttir
bárust af fjárveitingu í Surtseyjar-
stofu bárust mér margar ham-
ingjuóskir og þótti mér vænt um
það. Surtsey er einstök náttúruperla
sem þarf að varðveita og ekki er
vitað eins mikið um náttúru annarra
eyja í öllum heiminum, eins og það
sem við vitum um Surtsey.
Vonandi verður Surtseyjarstofa
einskonar „gluggi“ út í eyjuna, þar
sem hægt er að nálgast allar
tiltækar upplýsingar um Surtsey."
Herrakvöld ÍBV - Vel heppnuð gleðistund:
/
Treyja Olaf Stefánssonar á metfé
Það var mikið um dýrðir á karlakvöldi karlahandboltans hjá ÍBV þar sem
samankomnir voru um 140 karlar á öllum aldri. Allt miklir stuðningsmenn
handboltans og IBV og sannkallaðir gleðipinnar. Áherslan er góður matur og
létt skemmtiatriði og allt stóðst væntingar þetta sinnið.
Kári Vigfússon og hans fólk sá að venju um matinn sem var að mestu glæsi-
legir fiskréttir en passað var upp á að þeir matvöndu fengju kjöt. Páll
Scheving stýrði skemmtuninni og tókst svo vel upp að enginn tók eftir því að
aðalræðumaður kvöldsins mætti aldrei. Ymislegt var gert til að komast í
buddu gesta og hæst bar uppboð á árituðum treyjum landsliðsmannanna
Róberts Gunnarssonar, Guðjóns Vals Gíslasonar og Olafs Stefánssonar.
Eðlilega fór treyja fyrirliðans á hæsta verðinu, fór á metfé, og prýðir hún nú
húsnæði Godthaabs í Nöf.
Allir stóðu ósárir upp frá borðum og eiga ekkert nema góðar minningar frá
herrakvöldinu. Þeir geta svo huggað sig við að nýtt herrakvöld kemur að ári,
{I