Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Blaðsíða 21
Fréttir / Fimmtudagur 1. apríl 2010
21
Útræðið í Höfðavík - Áhugahópur vill byggja það í upprunalegri mynd - Krær og bátar:
Allt á að minna á gamla tímann
-segja Róbert Sigurmundsson og Jóhann Jóhannsson, talsmenn hópsins
Hópur áhugamanna vill byggja upp
svæðið þar sem bændur höfðu
útræði í Höfðavík. Hugmyndin er
að koma upp króm í upprunalegri
mynd en þær voru þrjár: Draum-
bæjarkró, Stórhöfðakró og Sigríðar-
staðakró. Hópurinn hefur fest kaup á
bát til að hafa á staðnum og svæðið
allt á minna á gamla tímann í um-
hverfi þar sem seltubragð og sjávar-
gnýr magnar upp andrúmsloftið.
Róbert Sigurmundsson og Jóhann
Jóhannsson segja að þeir félagar séu
tilbúnir til að hefjast handa um leið
og þeir fá leyfi frá bæjaryfirvöldum.
Bátar í fjörunni
„Við sendum bréf til umhverfis- og
skipulagsráðs þann 29. apríl 2009
þar sem við óskuðum eftir afnotum
af landi við Höfðavík," sagði Róbert
en ráðið vísaði umsókninni til
fræðslu- og menningarráðs sem tók
afstöðu til málsins tæpu ári seinna.
Ráðið fagnar áhuga utanaðkomandi
aðila á menningu og sögu Vest-
mannaeyja en leggur áherslu á að ef
leyfi fæst til framkvæmda á svæðinu
verði farið eftir sögulegum fyrir-
myndum og þess gætt að fram-
kvæmdir raski sem minnst yfir-
bragði umhverfisins.
„Við vonumst nú til og bíðum eftir
að umhverfis- og skipulagsráð af-
greiði umsóknina fljótlega og erum
tilbúnir að byrja um leið og leyfi
liggur fyrir. Við ætluðum að hafa
þetta klárt 2011 en nú hafa fram-
kvæmdir dregist um eitt ár frá því
okkar hugmyndavinna hófst. Tólf
einstaklingar standa að félaginu og
það fyrsta sem við ætlum að gera, ef
að þessu verður, er að setja upp kort
af þeim framkvæmdum sem fyrir-
hugaðar eru á svæðinu," sagði
Jóhann og Róbert útskýrir málið
frekar.
„Við höfum hug á að fá bátana
sem standa við Safnahúsið til að
hafa þama ásamt árabát sem við
keyptum. Það er merkilegur bátur,
smíðaður af Dodda á Hallómstað og
Eggerti Gunnarssyni bátasmið. Ef
við fáum bátana frá safninu þarf að
steypa túndamen undir þá, “ sagði
Róbert og Jóhann bendir á að ára-
báturinn sé fjóræringur og gamal-
dags spili verði komið fyrir í fjör-
unni og hann dreginn upp á því.
Selja söl, fisk og egg á
staðnum
Reiknað er með töluverðum umsvif-
um í kringum útræðið sem geri hann
lifandi þannig að hann laði til sín
ferðamenn og bæjarbúar. „Við
ætlum að selja egg, söl, siginn og
saltaðan fisk. Okkur finnst upplagt
að þurrka fisk á stakkstæðinu við
Olnboga og selja í Höfðavík," sagði
Jóhann og bendir á að svæðið sem
tilheyri bændaútræðinu verði girt af
með grjóthleðslu en þannig hleðsla
var í Höfðavík í gamla daga. „Fyrsta
króin sem við viljum byggja upp er
Draumbæjarkróin, hún snýr í
norður-suður og ástæðan fyrir val-
inu er að minnsta timbrið fer í hana.
Svo eru Stórhöfðakró og Sigríðar-
staðakró,“ sagði Róbert.
„Við viljum hafa þetta eins og það
var. T.d. var kálgarður við Sigríð-
arstaðakró og við ætlum að setja
niður kartöflur í vor. Svo ætlum við
að vera með landnámshænur og
Haukur á Reykjum á fé í túninu við
hliðina og þá getum við verið með
nokkrar kindur innan girðingar,"
bætti Jóhann við.
„Ég talaði við Óskar í Stórhöfða,
hann var síðasti maðurinn sem fór í
kræmar og hann verður okkar upp-
lýsingafulltrúi um staðinn. Hann
tók sjósýni þama og var með að-
stöðu í Stórhöfðakrónni þannig að
hann þekkir þetta út og inn,“ sagði
Róbert og Jóhann minnir á söguna
af frönsku sjómönnunum sem vom
dysjaðir þarna rétt fyrir ofan.
ÖFLUGUR HÓPUR F.v. Helgi Georgsson, Haukur Guðjónsson, Jens Karl Jóhannesson, Róbert, Garðar Arason, Viktor Hjartarson, Örn
Einarsson, Jóhann, Haraldur Óskarsson, Bragi Steingrímsson og Páll Marvin Jónsson. Myndir Sigurgeir Jónasson.
BÆNDAÚTRÆÐIÐ í Höfðavík Þannig sér Jóhann
Jónsson listó fyrir sér aðstöðuna eins og hón var.
Hægra megin er Draumbæjarkróin, Fremri króin til
vinstri er Sigríðarkróin og Stórhöfðakróin er á bak
við hana.
©Teikning: Jóhann Jónsson, mars 2010.
„Hundrað áram síðar vora þeir flutt-
ir í kirkjugarðinn. Við ætlurn að hafa
samband við franska sendiráðið og
athuga hvort þeir vilja útbúa minnis-
varða með nöfnum mannanna,"
segir hann og telur tímabært að
minnast þessa atburðar.
Sjóminjasafn og minja-
gripagerð
Hvað með reksturinn á svæðinu?
„Við ætlum að sækja um hjá sjóðum
sem styrkja svona verkefni. Hug-
myndin er ekki að við eigum þetta
svæði heldur bæjarbúar. Við sjáum
fyrir okkur að þarna verði minja-
gripir útbúnir og að þarna verði
sjóminjasafn í framtíðinni. Þarna
getur myndin hans Palla Steingríms
sem hann gerði um útræðið rúllað á
skjá í einni krónni og sömuleiðis
verði myndir til sýnis sem tengjast
sjósókn. Við viljum líka hafa myndir
af fjölskyldunni á Sigríðarstöðum
og þeim sem þarna bjuggu, “ sagði
Róbert.
Félagamir sem standa að verkefn-
inu treysta á að bærinn komi með
sex til átta borð til að bæjarbúar geti
sest niður á staðnum. „Borðin verða
vissulega að vera með sambyggðum
bekkjum svo þau fjúki ekki í slæm-
um veðrarn," sagði Jóhann og Ró-
bert bætir því við að taka þurfi mið
að veðri hverju sinni.
T.d. er gert ráð fyrir þremur flagg-
stöngum sem hægt er að setja upp
þegar eitthvað er um að vera á
svæðinu og taka síðan aftur niður.
ATRIÐI úr kvikmynd Páls Steingrímssonar frá árinu 1979 um útræðið í Höfðavík.
MYND af upphaflegu krónum og Óskar í Höfðanum við tóftirnar.