Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Side 22
22
Fréttir / Fimmtudagur 1. apríl 2010
GLÆSILEGAR F.v. Birgitta Ósk sem varð í 2. sæti, Hlíf sem var valin ungfrú Suðurland og Ragna María sem varð í þriðja sæti. Myndir Sunnlenska fréttaveitan/Egill.
S
Ungfrú Suðurland - Eyjastúlkur stóðu sig frábærlega - Þrjár í ungfrú Island:
Hlíf í fyrsta sæti og Birgitta Osk í öðru
-Thelma ljósmynda- og sportstúlkan - Sara Dögg vinsælust - Eyjmenn studdu
Vestmannaeyingar áttu salinn á
Fegurðarsamkeppni Suðurlands sem fram
fór á Hótel Selfossi. Þar áttu
Vestmannaeyingar sjö stúlkur af ellefu og
þeir geta unað glaðir við sitt því Hlíf
Hauksdóttir, leikmaður IBV í knattspyrnu
sem á ættir að rekja til Vestmannaeyja,
var valin ungfrú Suðurland. Eyjastúlkan
Birgitta Ósk Valdimarsdóttir varð í öðru
sæti og Ragna María Gestsdóttir í því
þriðja. Sara Dögg Guðjónsdóttir frá
Vestmannaeyjum var valin vinsælust og
Thelma Sigurðardóttir, líka frá Eyjum,
var valin ljósmyndafyrirsætan og sport-
stúlkan. Sex stúlkur komast áfram og í
þeim hópi eru Hlíf, Birgitta Ósk, Ragna
María, Sara Dögg, Svava Kristín Grétars-
dóttir frá Vestmannaeyjum og Steinunn Yr
Hjaltadóttir Bender.
Keppniskvöldið var á allan hátt hið
glæsilegasta. „Salurinn var kjaftfullur og
áberandi hvað Eyjamenn voru fjölmenn-
ir,“ sagði Egill Bjarnason, blaðamaður og
Ijósmyndari, sem tók myndirnar á síðunni.
„Þeir stóðu með sínum stúlkum og létu
vel til sín heyra og voru komnir upp á
borð þegar best lét.“
Að sjálfsögðu voru stúlkurnar í aðal-
hlutverki, komu fram á sundfötum og
kjólum en líka var boðið upp á tónlist.
Meðal annars fluttu nemendur
Fjölbrautaskóla Suðurlands atriði úr söng-
leik sem fluttur var á árshátíð skólans.
„Eyjamenn áttu kvöldið og salinn sem
kom best í Ijós þegar úrslitin voru birt.
Annars var þetta í alla staði vel heppnað,
þriggja rétta máltíð, góð skemmtiatriði og
góð stemmning. Og ekki má gleyma
stúlkunum sem stóðu sig frábærlega,“
sagði Egill.
Ungfrú Suðurland, Hlíf
Hauksdóttir:
Aldrei leið-
inlegt að
vinna
Hlíf Hauksdóttir, ungfrú Suður-
land, var að vonum ánægð með
úrslitin þegar Fréttir náðu tali af
henni á mánudag. „Þetta var
æðislegt, ég bjóst ekki við að
þetta yrði svona skemmtilegt.
Þarna var mikið af fólki og góð
stemming."
Urslitin, komu þau óvart?
„Þau komu mér mjög mikið á
óvart, þau gerðu það,“ sagði Híf
og viðurkennir að hún sé
keppnismanneskja. „Það er
aldrei leiðinlegt að vinna,“ bætti
hún við enda keppir hún í fót-
bolta og mikil áhugamanneskja
um íþróttir.
Hvernig leggst keppnin um
ungfrtí Island í þig?
„Bara vel, ég veit ekki ennþá
hvenær hún verður. Eg er að fara
út með fótboltanum til Bene-
dorm á fimmtudag þar sem við
verðum í viku æfmgaferð. Það
verður gott að komast í sólina og
spila fótbolta pg ég einbeiti mér
svo að ungfrú Islands keppninni
þegar nær dregur."
Hlíf er á fyrsta ári í Iþrótta-
fræði við Háskóla íslands þannig
að það er í nógu að snúast. „Mér
l'innst best að hafa nóg að gera
og ég ætla að koma beint eftir
prófín til Eyja. Það er frábært að
spila með IBV. Ég er svolítill
Vestmannaeyingur í mér og hann
vex með hverju ári.“
FLOTTAR stúlkur Á efri myndinni eru Eyjastúlkurnar Thelma og Birgitta Ósk og Sara Dögg og Svava
Kristín á þeim neðri.
Birgitta Ósk:
Frábært
Birgitta Ósk Valdimarsdóttir
varð í öðru sæti. „Þetta var rosa-
lega gaman og frábært kvöld.
Við vorum búnar að æfa í tvo
mánuði og vorum ógeðslega
spenntar og pínulítið stressaðar.
En þetta var bara gaman, hvort
sem við komum fram á tísku-
sýningu eða á síðkjólum.
Salurinn var þétt setinn, um
þrjú hundruð manns, og gerði
það meira spennandi að sjá alla
ættingja og vini í salnum. Ég er
rosa sátt við þetta.“
Birgitta sagði það hafa komið á
óvart þegar kynnirinn tilkynnti
að sex keppendur kæniust áfram
í keppnina um ungfrú ísland.
„Við vissum ekkert af því og
hann bað okkur að stíga fram um
leið og hann las nöfnin. Síðan
var tilkynnt um þriðja sætið og
það var skemmtilegt að
tvíburasystir Rögnu Maríu krýn-
di hana því hún var j þriðja sæti
í keppninni í fyrra. Ég var auð-
vitað mjög ánægð að fá annað
sætið og stelpan sem krýndi mig
var í því sæti í fyrra og mamma
og tengdamamma hennar eru
góðar vinkonur. Þannig að þetta
var bara skemmtilegt, “ sagði
Birgitta en þrjár af
Eyjastelpunum komast áfram í
ungfrú Island keppnina.
„Ég er mjög spennt fyrir ungfrú
ísland keppninni en tók tvo daga
í óhollustu svo er bara að halda
áfram en ég er ekki viss hvenær
sjálf keppnin fer fram. Mér er
sagt að keppnin unt ungfrú
Island sé miklu meiri vinna en
ég held það verði gaman að
takast á við þetta," sagði Birgitta
að lokum.