Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Síða 24

Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Síða 24
(FRÉTTIRJI plús ☆ ™ 5umfiRFfR0,R Frétta- og ouglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 1 brjÚðÉúÆí' riMjiáagjafíMJ) £L-í*íí jl-'~IXláí J 3"/ííibHJ-d&ÚMiaaríij IlllÍMlÍl iif * ' 1 WSP'" 'aBi |U L J ':fi ~ < ML4 MT R W!k-~ EYJASTÚLKUR urðu sigursælar í keppninni um Ungfrú Suðurland. Hlíf Hauksdóttir, leikmaður ÍBV í knattspyrnu, var valin Ungfrú Suðurland. Birgitta Osk Valdimarsdóttir, til vinstri varð í öðru sæti og Ragna María Gestsdóttir í því þriðja. Sjá nánar á bis. 22. Mynd Sunnlenska fréttaveitan/Egill. Margt í boði í Vestmannaeyjum um páskana: Kirkjurnar hressa andann á daginn / -A kvöldin og á nóttunni kemur það í hlut skemmtistaða Vestmannaeyjabær stendur ekki fyrir gönguferðum eða öðrum uppákomum um páskana eins og undanfarin ár. Kirkjan heldur hins vegar sínu striki enda páskamir stærsta hátíð kristinna manna. Skemmtistaðir bæjarins láta heldur ekki sitt eftir liggja því og nóg um að vera alla páskana og eldri borgarar verða með þriggja kvölda páskaeggjaspilakeppni í Alþýðu- húsinu næstu þrjú fimmtudags- kvöld. I Landakirkju verður kvöldmessa með altarisgöngu á skírdag og í guðþjónustu á föstudaginn langa lesa félagar úr Leikfélagi Vest- mannaeyja úr píslasögu guðspjall- anna og erindi úr Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar. Klukkan átta á páskadagsmorgun verður hátíðarguðþjónusta og að henni lokinni er kirkjugestum boð- ið til morgunverðar í Safnaðar- heimilinu. Barna- og fjölskyldu- guðþjónusta verður í kirkjunni á annan í páskum. Hvítasunnukirkjan stendur líka fyrir öflugu samkomustarfi um páskana. A skírdag verður Theodor Petersen frá Færeyjum ræðumaður á samkomu á fimmtudagskvöld. Gídeonmenn og fleiri lesa Passíu- sálma og valda sálma á föstudaginn langa. Hátíðarsamkomur verða á páskadag og annan dag páska. Það verður líka nóg um að vera á skemmtistöðum bæjarins. A kaffi Kró verður Eyjakvöld á fimmtu- dagskvöld. Skítamórall verður í Höllinni eftir miðnætti föstudagsins langa og Hljómsveitin Buff eftir miðnætti á páskadag. Einsi kaldi stendur fyrir Galadinner í Höllinni laugardaginn 3. aprfl þar sem boðið verður upp á glæsilegan kvöldverð með léttu undirspili og ekkert til sparað. Volcano Café verður líka með veglega dagskrá, Einar Ágúst skemmtir á miðvikdagskvöld, þá verður opið fram á morgun og Skítmórall spilar á fimmtudags- kvöld. Það var líka opið á föstu- dagskvöld og Kiddi Bigfoot heldur uppi stuðinu á laugardagskvöld. Volcano Café verður opið föstudags og sunnudagskvöld. Á Lundanum verður plötusnúður á miðvikudagskvöld og hljómsveit- in Tríkot heldur uppi fjörinu á föstudags- og laugardagskvöld. Siglingstofnun hefur samþykkt fækkun í áhöfn Herjólfs: Starfsfólk óttast að gripið verði til uppsagna þegar siglingar hefjast í Landeyjahöfn Siglingastofnun hefur samþykkt fækkun í áhöfn Herjólfs úr 14 til 15 í níu eftir að skipið byrjar að sigla í Landeyjahöfn um mitt sumar eins og áætlað er. Mun þetta einkum bitna á þjónustufólki og hásetum. Hvað gengið verður langt í að fækka í áhöfninni liggur ekki fyrir en ljóst er að allt að 20 manns gætu horft upp á að missa vinnuna þegar kemur fram á árið. I dag er fyrirkomulagið þannig að 14 eru áhöfn yfir vetrartímann, 15 frá 1. apríl til 1. september og allt að Kristján skipstjóri á Gandí Nýr skipstjóri hefur verið ráðinn á Gandí VE 171. Hann heitir Kristján E. Gíslason og er sem stendur skipstjóri á ísfisk- togaranum Mars RE 205. Kristján hefur lengst af starfað hjá Granda og var bæði skip- stjóri og stýrimaður á Engey RE á árunum 2005 til 2007. Kristján hefur störf fljótlega, um miðjan apríl enda reiknað með að skipið komi um það leyti til Eyja. Kristján kemur til með að eiga lögheimili í Vestmanna- eyjum. Mynd Þorgeir Baldursson. 17 þegar mestir flutningar eru. Samkvæmt heimildum Frétta er gert ráð fyrir níu og mest tólf þegar siglingar hefjast í Landeyjahöfn. Til að manna skipið þannig að áhöfnin fái tilskilinn frítírha er tvöföld áhöfn á Herjólfi í dag og það verður áfram. Þeim mun þó fækka úr um 30 í um 20. Sami fjöldi verður í brú þar sem sjö skiptast á, í þjónustunni eru tíu til tólf en gæti farið niður í tvo kokka. Hver niðurstaðan verður liggur enn ekki fyrir og er málið til skoðunar hjá Eimskip sem heldur áfram rekstri skipsins. Þó minni þörf verði fyrir þjónustu með færri farþegum í ferð, engum klefum og styttri siglinu er ólíklegt að ekki verði ein- hver þjónusta í boði. En á meðan ekki liggur fyrir hvernig henni verði háttað og hvað mörgum er ætlað að sinna störfum á dekki er stór hluti áhafnarinnar í óvissu um framtíð sína. Engum hefur verið sagt upp en þernumar eru með mánaðar upp- sagnarfrest. VIKUTILB0Ð 31. mars - 7. apríl ^lcöiícaa * 0PNUNARTÍMI Skirdagur (fimmtud.) kl. 10.00 -19.00 Laugardaga kl.10.00 -19.00 2. i póskum (mónud.) kl.11.00-19.00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.