Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Side 2
2
préttir / Fimmtudagur 26. maí 2011
STÚLKURNAR 14 sem taka þátt í keppninni í ár.
Sumarstúlkan 2011 í Höllinni á laugardag - Verður í alla staði glæsileg:
Jóhanna Guðrún og Jónsi skemmta
Sumarstúlkukeppnin verður haldin í 24. sinn í
Höllinni næstkomandi laugardag. Alls taka
fjórtán stúlkur þátt í keppninni en stelpumar vom
kynntar sérstaklega í síðasta tölublaði Frétta.
Eins og alltaf er boðið upp á glæsilega dagskrá
og frábæran mat sem Einsi kaldi matreiðir.
Evróvisionstjaman Jóhanna Guðrún kemur tví-
vegis fram ásamt gítarleikaranum Davíð Sigur-
geirssyni. Þá mun Jónsi í Svörtum fötum koma
fram ásamt vinum sínum en hljómsveitin I svört-
um fötum leikur svo fyrir dansi eftir keppnina.
Aðalatriðið er hins vegar stelpurnar sem munu
koma fjórum sinnum fram, í sérstöku opnunar-
atriði, tveimur tískusýningum og svo lokaatriði.
Miðasala verður opin fram að keppni, miðaverð
er aðeins 6.500 krónur fyrir mat og skemmtun en
hægt er að panta miða í síma 896-6818 og 891-
6818. Húsið verður opnað kl. 19:30 og borðhald
hefst klukkan 20:15.
Framkvæmda- og hafnarráð - Þriggja tunnu flokkun á sorpi frá 1. júli:
Brún fyrir lífrænt, græn fyrir pappír
og grá fyrir óendurvinnanlegt
Framkvæmda- og hafnarráð ákvað
á síðasta fundi sínum að taka upp
þriggja tunnu kerfi við frekari
flokkun á sojpi í Vestmannaeyjum.
Ráðið fól Ólafl Þór Snorrasyni,
framkvæmdastjóra umhverfis- og
framkvæmdasviðs, að taka upp við-
ræður við núverandi rekstraraðila
sorporkustöðvar, sem er Islenska
gámafélagið, um samning um
þriggja tunnu flokkunarkerfi og
sorphreinsun. Miðað er við að nýr
samningur taki gildi 1. júlí 2011 og
að nýr samningur verði að hámarki
til 12 mánaða og er þá miðað við að
heildarverkið verði boðið út.
íbúar geta sameinast um
tunnur
Þegar Ólafur Þór var spurður hvort
húseigendur þyrftu ekki að kaupa
tunnurnar sagði hann að Vestmanna-
eyjabær kæmi til með að útvega
tunnurnar og leigja bæjarbúum.
Leiguverð væri ekki alveg komið á
hreint en reiknað með að hækkunin
yrði óveruleg fyrir viðskiptavini frá
því sem verið hefur. „Maíspokar
verða notaðir undir lífræna úr-
ganginn og ekki settir pokar í hinar
tunnurnar og þannig losnar um
gríðarlegt magn af plastpokum. Það
þarf að skola mjólkurfemur og ílát
en að öðru leyti er það tiltölulega
hreinn úrgangur. Brúna tunnan, með
lífrænum úrgangi, er losuð einu
sinni í viku yfir sumartíma og
hálfsmánaðarlega yftr veturinn en
græna tunnan, pappír o.fl., og gráa
tunnan, óendurvinnanlegur úrgang-
ur, eru losaðar einu sinni í mánuði,"
sagði Ólafur en fjölbýlishús og
raðhús geta sameinast um tunnur
t.d. brúnu tunnurnar sem hafa
minnsta sorpið.
Flokkunarkerfið
íslenska Gámafélagið heldur úti vef
um flokkunarkerftð og þar kemur
fram að þriggja tunnu kerfið byggist
upp á brúnni, grænni og grárri
tunnu.
Brúna tunnan er eingöngu ætluð
undir lífrænan úrgang sem settur er í
lífræna maíspoka sem brotna niður.
Þetta er úrgangur sem fellur til af
heimilum s.s. afskurður af ávöxtum,
grænmeti og brauði, leifar af kom-
vömm, kjöti, ftski, pasta og hrís-
grjónum, eggjaskurn, kaffikorgur
o.fl.
Lífræni úrgangurinn er losaður og
fluttur beint á jarðgerðarsvæði fyrir-
tækisins þar sem notast er við
jarðgerðarvélar sem vinna úrgang-
inn þannig að afurðin er molta sem
nota má sem áburð fyrir skógrækt
eða garða.
I grænu tunnuna á að setja allan
pappír heimilisins, pappa, plast,
minni málmhluti, t.d. niðursuðu-
dósir, málmlok af glerkrukkum og
femur sem þarf að skola og einnig
þarf að fjarlægja matarleifar af flát-
um. Tunnan er losuð mánaðarlega,
sorpið flokkað og fer mismunandi
leiðir í endurvinnslu. Gler og
rafhlöður má alls ekki fara í tunnuna
þar sem innihald tunnunnar er hand-
flokkað og því getur brotið gler
verið varasamt.
Óendurvinnanlegur úrgangur fer í
gráu tunnuna. Dæmi um slíkt er
bleiur, gler, ryksugupokar og skal
koma fyrir í lokuðum plastpokum
t.d. eins og þeim sem notaðir eru
undir matvömr.. Stranglega bannað
er að setja rafhlöður, spilliefni, eld-
eða sprengifim efni í gráu tunnuna.
Slík efni eiga heima í viðurkenndri
spilliefnamóttöku og fólk er hvatt til
að hafa samband við Islenska
Gámafélagið til þess að fá leið-
beiningar um hvemig skal koma
þessum efnum í _ réttan farveg.
Flokkunarmiðstöð íslenska Gáma-
félagsins flytur úrganginn á viður-
kenndan förgunarstað þar sem úr-
gangurinn er urðaður.
Vor við sæinn - Minningartónleikar um Oddgeir
-Allur ágóði rennur til styrktar Hófí og Stymma sem misstu hús sitt
Langflestir tónlistarmenn í Eyjum
standa að tónleikum í Höllinni nk.
miðvikudagskvöld sem verða helg-
aðir því að í ár em 100 ár frá fæð-
ingu Oddgeirs Kristjánssonar. Bera
þeir yfirskriftina Vor við sæinn,
minningartónleikar um Oddgeir.
Allir sem koma að tónleikunum
gefa vinnu sína og er ákveðið að
styrkja fólk sem varð fyrir miklu
tjóni þegar veggjatítla uppgötv-
aðist í húsi þeirra.
Höllin kemur myndarlega að
verkefninu þannig að takist vel til
gæti safnast umtalsverð upphæð.
„Við vomm öll sammála um að
gera þetta en um sjálfa tónleikana
er það að segja að eingöngu verða
leikin lög eftir Oddgeir nema eitt
sem var samið við kvæði sem Ási
í Bæ orti til minningar um þennan
vin sinn,“ sagði Jarl Sigurgeirsson,
talsmaður tónlistarfólksins.
Þeir sem koma fram em Lúðra-
sveit Vestmannaeyja, Stórsveit
Vestmannaeyja, Stuðlar, Tríkot,
Afrek, Hippabandið, Leikhús-
bandið, Dólgamir og Obbosí.
„Kynnir verður Ámi Johnsen og
mun hann taka einhver lög,“ sagði
Jarl sem lofar góðum tónleikum.
„Öll þekkjum við lögin hans Odd-
geirs og það er okkur heiður að fá
þetta tækifæri til að minnast hans
um leið og við styrkjum gott
málefni."
Hólmfríður Sigurpálsdóttir og
Styrmir Gíslason, Hófi og Stymmi,
vom á götunni þegar uppgötvaðist
að veggjatítla hafði eyðilagt hús
þeirra að Kirkjuvegi 29. Þau þurftu
að yfirgefa húsið strax og ljóst er
að þau hafa orðið fyrir mildu tjóni
því engar tryggingar ná yfir tjón
að þessu tagi.
Dagar lita og tóna:
Engin
hátíð í ár
Nú ljóst að djasshátíðin, Dagar
lita og tóna, sem hefur verið fastur
liður á hvítasunnu í 20 ár, fellur
niður í ár. Er það mikill skaði því
hátíðin hefur alveg frá upphafi
verið einn af stóra póstunum í
menningarlífi Vestmannaeyja.
Ingi Tómas Bjömsson, sem hefur
verið í forsvari fyrir Daga lita og
tóna ásamt Hermanni Einarssyni,
staðfesti þetta í samtali við Fréttir.
„Aðsókn hefur veríð að minnka
síðustu ár með aukinni samkeppni
og nú er svo komið að við
treystum okkur ekki til að halda
áfram. í fyrra var mikið lagt í
hátíðina en aðsóknin stóð ekki
undir kostnaði. Hátíðin stóð alltaf
í þrjú kvöld en núna vomm við að
gæla við að hafa eitt kvöld en það
gekk ekki upp og því var ákveðið
að Dagar lita og tóna verða ekki í
ár,“ sagði Ingi Tómas.
Frá upphafi var mikill metnaður
lagður í Daga lita og tóna og á
vegum hennar hafa komið fram
allir okkar bestu tónlistarmenn í
djassi og blús síðustu 20 árin. Það
er því eftirsjá í hátíðinni og
vonandi taka þeir félagar upp
þráðinn að nýju næsta ár eða að
aðrir taki við kyndlinum.
Huginn
einn við
makrílleit
„Við erum að leita að makríl og
erum 40 mflur suður af Kötlu-
tanga,“ sagði Ómar Steinsson,
stýrimaður á Hugin VE á mið-
vikudagsmorgun en Huginn er nú
í fyrsta túr eftir endurbætur og
lagfæringar. „Við fóram út á
sunnudag og emm eina skipið
sem er á makríl og emm búnir að
fá tvisvar sinnum fimmtíu tonn og
það er bara lélegt. Það hefur verið
leiðindaveður og bræla, en er fínt
núna. Við emm að leita og prófa
búnaðinn og hann virkar fínt, “
sagði Ómar og allir um borð
ánægðir með að vera byrjaðir
aftur eftir langt stopp.
Leitað að
organista
Við starfslok Guðmundar H.
Guðjónssonar organista Landa-
kirkju hefur verið auglýst eftir
organista við Landakirkju í fulla
stöðu. Þegar auglýst var sl. vor bar
það ekki árangur að sögn sr.
Kristjáns Bjömssonar þannig að
nú er verið að leita að organista til
að koma til starfa sem fyrst. Þar til
fundinn er vel menntaður og þjálf-
aður kórstjóri og organisti verður
reynt að fá afleysingamenn eftir
því sem þarf svo kórinn geti sinnt
sínu hlutverki og hægt verði að
halda uppi söng kórsins við
athafnir og hefðbundið helgihald í
sumar.
ÍJtgefandi: Eyjasýn ehf. 480378-0549 - Vestmannaeyjiun. Ritstjóri: Ónwr Garðarsson.
BlaxJamenn: (íuðbjörg Signrgeirsdóttir og Július Ingason. Ábyrgðarmenn: ÓmarGardars-
son & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyja])rent. Vestmannaeyjum. Adsetur ritstjómar: Strandvegi 47.
Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1393. Netfang/rafpóstur frettir@eyjafrettrr.is.
Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTt’lit koma út aJla fimmhidaga. Blaðid er selt í áskrift og einnig i lausasölu á Kletti,
Tvistinimi, Toppnum, Vörnval, Herjólfi, Flughafnarversliininni, Krónunni, ísjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu í Fridarhöfn.. FRÉ'l'i'iK eru prentaðar i 3000 eintökum.
FRÉTi'lR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaðiu Eftirjirentun, hljóðritun,
notkun ljósmjmda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.