Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Síða 13
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011 13 FOLAR sem stóðu undir nafni. Sumarstúlkurnar í óvissuferð: Folar, góður matur og dekkjaskipti Við hófum óvissuferðina á skemmtilegum leik þar sem stúlk- unum var skipt í þrjá hópa og fengu á blaði 15 atriði sem þær áttu að leysa. Allt átti að festa á filmu með a.m.k. einum úr liðinu. Áttu þær að láta mynda sig með t.d. leikmanni úr meistaraflokki karla í fótbolta, einhverjum úr bæjarstjóm, sem þeim gekk erfíðlega að fínna, og ein brá á það ráð að láta taka mynd af sér með brúðkaupsmynd af við- komandi í fanginu. Svo áttu þær að vefja einhvem sem múmíu með rúllu af klósettpappír og taka mynd af fola, sem var misjafnt hvemig þær túlkuðu. Eftir 45 mínútna kapphlaup fómm við svo og fengum okkur í svanginn á 900 grillhúsi, sem klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Síðan röltum við okkur niður á bryggju þar sem Friðrik og Alma tóku á móti okkur frá Rib-safari og fóm með okkur í geggjaða ferð í kringum Heimaey. Má segja að yfirskrift ferðarinnar hafi verið „wet and wild“ í orðsins fyllstu merkingu! Veðurbamar og flottar fóm þær síðan á klifurvegginn hjá Björgunarfélaginu og sýndu hreint ótrúlega fæmi, flestar. Síðan var haldið á dekkjaverkstæðið hjá Braga Magg þar sem tvær og tvær kepptust um að skipta um dekk, svissa afturdekki og framdekki, sem gekk vonum framar, þannig að ef dekkið springur hjá þér, þá hóar þú bara í eitt stykki sumarstúlku og því verður reddað á 0.1!! Síðan enduðum við á frábærri óvissuferð í kósýpartý á Hamrinum. Ég vil þakka öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við að gera þessa ferð svona skemmti- lega....ástarþakkir fyrir okkur, þið emð frábær!! Hjördís framkvœmdastjóri. RIB-SAFARI „Wet and Wild“ í þess orðs fyllstu merkingu. HESTAR heiiluðu stúlkurnar. Viska - Utskrift eftir raunhæfísmat og verslunarfagnám: Kom sérlega vel út í Eyjum -Að mati Sólrúnar Bergþórsdóttur, náms- og starfs- ráðgjafa, sem útskrifaði sjö nemendur í síðustu viku ÚTSKRIFT FAGNAÐ Nemendur og kennarar, f.v. Valgerður Guðjónsdóttir, forstöðukona Visku, Sólrún, Ragna Birgisdóttir, Jón Björn Marteinsson, Þórhildur Ragna Karlsdóttir, Guðbjörg Erla Ragnarsdóttir, Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir, Ingimar Georgsson Vöruvali, Inga Sigurbjörg Arnadóttir, Elín Þóra Olafsdótir, Sigmar Georgsson og Jónatan Guðni Jónsson. Vöruval- Gott vöruúr- val og þjónusta Fjórir nemendur tengjast verslun- inni Vömvali, annaðhvort sem fyrrverandi eða núverandi starfs- menn, og voru áhrif þess greinileg í verkefnunum. Þar sem eigandinn býður upp á heilsuvörur ákvað Elín Þóra Ólafsdóttir að safna saman upplýsingum um heilsu- vömr sem starfsmenn gætu deilt með viðskiptavinum og þar koma fram svör við spumingum um ein- stakar vörur, svo sem hveitikím, spelt og ýmsar tegundir af baun- um og hvemig hægt er að nýta þær við matargerð. Síðan gerði hún lítinn bækling fyrir viðskipta- vini og fólk getur þá lesið sér til um heilsuvörumar. Inga Sigurbjörg Árnadótdr safn- aði saman upplýsingum fyrir starfsmenn og viðskiptavini um ávexti og grænmeti sem eru í boði í Vöruvali. Þar koma fram al- mennar upplýsingar um hvem ávöxt og grænmeti; í hvaða mat hann er heppilegur ásamt geymsluþoli og slíku. Þar á meðal eru ávextir eins og appelsínur, bananar, mangó, granatepli, drekaávextir og fleira auk þess sem þeir em merktir eftir ákveðnu kerfi sem starfsmenn Vöruvals vinna eftir. Þetta er handhægt upplýsingarit fyrir starfsmenn jafnt sem viðskiptavini. Ragna Birgisdóttir og Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir fóru yfír þróun einyrkja í matvöruverslun í Vestmannaeyjum frá því fyrir gos og fram til dagsins í dag. Fram kom að fyrir gos voru tíu mat- vöruverslanir í bænum en í dag em þær aðeins fjórar, þar af er bara ein einyrkjaverslun. Þær gerðu líka könnun meðal við- skiptavina Vöruvals og þar kom í ljós að meginástæða þess að þeir kjósa að kaupa inn matvöru þar er að þar fer saman gott vömúrval og góð þjónusta. Viska - símenntunarmiðstöð út- skrifaði sjö nemendur úr verslun- arfagnámi við hátíðlega athöfn í Vinaminni á föstudag. Námið er hannað af Fræðslumiðstöð at- vinnulífsins og því er ætlað að auka verslunarfærni og efla almenna og persónulega færni starfsfólks til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nútímaverslun. Allir nemendur skiluðu athyglisverðum lokaverkefnum en þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á slíkt nám í Vestmannaeyjum. Bóklegt og verklegt nám Sólrún Bergþórsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, sagði, þegar hún var spurð út í tilhögun námsins, að námið væri starfstengt og metið til 51 einingar á framhaldsskólastigi. „Bóklegi hlutinn er 510 kennslu- stundir og vinnustaðahlutinn 340 klukkustundir en námið skiptist f nokkra þætti og fer fram í lotum. Þættimir em m.a. verslunarfæmi, persónuleg fæmi og almenn fæmi, en innan þeirra em fög eins og upplýsingatækni, verslunarreikn- ingur og hagnýtar raungreinar. Þegar námið fór upphaflega af stað fyrir nokkram áram kom í ljós að þeir sem sóttu námið höfðu margir hverjir mjög mikla reynslu og því var ákveðið að gera tilraun með að setja upp raunfæmimat,“ sagði Sólrún en það var gert til að meta viðkomandi þannig að þeir reynslu- miklu þyrftu ekki að taka eins mikið námsefni og þeir sem höfðu litla sem enga reynslu. „Viska, Mímir í Reykjavík, og Símey á Akureyri fengu styrk til að bjóða upp á raunfæmimat í tii- raunaskyni. Við auglýstum námið, níu nemendur sóttu um og allir fóra í gegnum raunfæmimatið í bóklega hlutanum sl. haust og fengu metnar mismargar einingar. Eftir það var boðið upp á nám til að klára bóknámið og var það klæðskera- saumað að hverjum og einum, en allir nemendur urðu einnig að vinna lokaverkefni. Eftir bóklega hlutann var raunfæmimat á vinnu- staðahlutanum og allir sem ákváðu að haida áfram, en það voru sjö nemendur, kláraðu það með stæl.“ Skiptir höfuðmáli að halda vel utan um nemendur Sólrún segir að lokaverkefnin hafí komið mjög vel út í Eyjum og ánægjulegt að allir þátttakendur luku náminu, en sú var ekki reynd- in annars staðar. „Hér kláraðu allir og reynslan segir okkur að það skiptir höfuðmáli að halda vel utan um nemendur í ferlinu. Við höfðum það þannig að lokaverkefnið var hluti af námsferlinu og fellt inn í stundaskrá og hefur það greinilega haft mjög jákvæð áhrif,“ sagði Sólrún og tók fram að nú væri tilraunaverkefninu lokið og nú yrði námið endurskoðað og bætt. „Hugmyndin er nú að hafa raun- fæmimat á bóklega hlutanum og vinnustaðahlutanum saman. Við eram búin að fá nýjan styrk og ætlum að bjóða upp á raunfæmimat í haust og svo námið í kjölfarið. Ég er þegar komin með áhugasama einstaklinga sem hug hafa á að sækja þetta nám.“ Sólrún segir lokaverkefnin, sem nemendur unnu, hafa verið mjög athyglisverð en hugmyndin var að nemendur fengju tækifæri til að sýna fram á þekkingu sína og fæmi í gegnum verkefni sem gætu komið að notum, annað hvort á þeirra vinnustað eða í verslun og þjónustu almennt. Kjöt og flísalím Kjötvara er vandmeðfarin og Guð- björg Erla Ragnarsdóttir og Jón Bjöm Marteinsson, fyrrverandi verslunarstjóri Krónunnar, unnu lokaverkefni um kjöt og með- höndlun á því. Upplýsingamar nýtast ekki síst nýjum starfsmönnum sem koma að því að vinna í kjötborði. Þar er farið yfír geymslu og meðferð á kjöti. Þar má finna upplýsingar um lamba-, nauta-, og grísakjöt og ýmsum spumingum svarað eins og hvaða nautakjöt viðskiptavinurinn á að velja í matinn. í Húsasmiðjunni í Reykjavík getur starfsmaðurinn sérhæft sig í ákveðnum vöruflokkum. Þegar kemur að lítilli verslun í Eyjum er stefnan að hafa býsna fjölbreytt vöruúrval og viðskiptavinurinn gerir kröfur um góða þjónustu. Þórhildur Ragna Karlsdóttir, starfar í Húsasmiðjunni og er hún búin að safna saman upplýsingum fyrir starfsmenn og viðskiptavini um ýmsar byggingavörur og má þar fínna hagnýtar upplýsingar um eiginleika vörannar, notkunar- leiðbeiningar o.fl. Hún tók einnig saman upplýsingar um timbur og þær vörar sem seldar verða í Húsamiðjunni sumarið 2011. Hér hefur verið safnað saman miklum og hagnýtum upplýsingum sem geta komið viðskiptavinum að góðu gagni. Guðbjörg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.