Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Side 17
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011
17
/ /
Þessar skemmtilegu myndir lét Oskar Sigurðsson, í Stórhöfða, Fréttir hafa ásamt nafnalista. A þeim eru fermingarbörn í
Vestmannaeyjum 1951. Það var séra Halldór Kolbeins sem fermdi og er hann með á myndunum. Fermt var á hvítasunnu, sem
bar upp á 13. og 14. maí. Það var því hálf öld í síðustu viku frá því börnin 49 voru tekin í kristinna manna tölu.
HVÍTASUNNUDAGUR 13. MAÍ 1. röð Kristín Sigurðardóttir, Skólavegi 37, Guðrún
Guðmundsdóttir, Presthúsum, Guðmunda Eygló Óskarsdóttir, Landagötu 18, Guðríður
Steinþóra Magnúsdóttir, Hásteinsvegi 52, Sr. Halldór Kolbeins, Guðlaug Sigurðarsdóttir,
Hásteinsvegi 31, Guðbjörg Pálsdóttir, Heiðarvegi 44 og Ema Tómasdóttir, Brekastíg 7c.
2. röð Gyifi Guðnason, Urðavegi 4, Ema Margrét Jóhannesdóttir, Hásteinsvegi 22, Birna
Valgerður Jóhannesdóttir, Kirkjulundi, Ásta Sigurlásdóttir, Vesturvegi 9a, Ágústa
Guðmundsdóttir, Saltabergi, Anna Jenný White Marteinsdóttir, Sjómannasundi 3, Anna
Dóra Axelsdóttir, Kirkjuvegi 67 og Eyjólfur Martinsson, Laugarbraut 1.
3. röð Guðbjartur Kristinn Kristinsson, Norðurgarði, Garðar Gíslason, Hásteinsvegi 36,
Einar Þórarinsson, Skólavegi 18, Helgi Þórarinn Guðnason, Norðurgarði, Bjarni
Jónasson, Boðaslóð 5, Ágúst Grétar Jónsson, Brekastíg 23 og Ágúst Bergsson, Skólavegi
10.
4. röð Eymundur Garðar Sigurjónsson, Boðaslóð 1, Guðbjartur Richard Sighvatsson,
Kirkjuvegi 49 og Gísli Matthías Sigmarsson, Brekastíg 15.
ANNAR í HVÍTASUNNU, 14. MAÍ 1. röð Ragnhildur Sigurfinna Jóhannsdóttir,
Helgafellsbraut 19, Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir, Hásteinsvegi 45, Svava Höjgaard
Einarsdóttir, Brekastíg llb, Sr. Halldór Kolbeins, Þórunn Helga Ármannsdóttir, Steinum,
Viktoría Agústa Ágústsdóttir, Aðalbóli og Valgerður Viktoría Valdimarsdóttir,
Herjólfsgötu 12.
2. röð Karl Gunnar Jónsson, Hásteinsvegi 33, Sigurhanna Ágústa Einarsdóttir, Ásavegi
2b, Sigríður Rósa Ágústsdóttir, Sólhlíð 7, Sandra Kolbrún Isleifsdóttir, Kirkjuvegi 20,
Lilja Þorsteinsdóttir, Vesturhúsum, Júlía Sigurgeirsdóttir, Hásteinsvegi 2, Elín Hólmfríður
Ásmundsdóttir, Löndum og Sigurður Hallvarðsson, Vestmannabraut 56b.
3. röð Ingi Ingvarsson, Vestmannabraut 61, Oskar Jakob Sigurðsson, Stórhöfða, Páll
Jóhann Einarsson, Kirkjuvegi 27, Sveinn Ármann Valtýsson, Kirkjufelli, Sveinn Gíslason,
Vestmannabraut 60 og Sigurður Helgi Tryggvason, Vestmannabraut 8.
4. röð Sigurður GoUharð Sigurðsson, Kirkjubæ, Jóhann Ævar Jakobsson, Vesturvegi 8,
Rögnvaldur Ágúst Hreggviðsson, Brimhóíabraut 8 og Sigurbjörn Friðrik Olason,
Hólmgarði.
S
Skátafélagið Faxi - Sjá ekki um rekstur tjaldsvæða - Osáttir við framgöngu bæjarins:
Hefur staðið undir æskulýðsstarfinu
Frosti: Skátafélagið Faxi hefur séð um rekstur tjaldsvæða í Vestmannaeyjum frá árinu 1978 en þá voru
skátamir. beðnir um að taka hann að sér. Var það að beiðni Vestmannaeyjabæjar og hefur rekstur
tjaldsvæðanna gengið vel og verið mikilvægur þáttur til að standa undir æskulýðsstarfi á vegum Faxa í öll
þessi ár.
Skátar eru mjög ónægðir með þá
ákvörðum bæjarráðs að bjóða út
rekstur á tjaldsvæðum sem
Skátafélagið Faxi hefur séð um í
áratugi. Talsmaður þeirra segir að
eftir samskipti þeirra við bæjarstjóra
hafi niðurstaðan verið að bjóða ekki
í reksturinn en afraksturinn hefur að
stórum hluta staðið undir æskulýðs-
starfi félagsins. Ástæðan er að skát-
amir áttu að taka á sig ýmsan auka-
kostnað í kringum þjóðhátíð sem
þeim fannst óaðgengilegt. Samið
var við Sólbakkablóm sem var eini
aðilinn sem bauð í reksturinn. Segja
skátar að í ljós hafi komið að Sól-
bakkablómum voru boðin önnur
kjör en skátunum.
„Skátafélagið Faxi hefur séð um
rekstur tjaldsvæða í Vestmannaeyj-
um frá árinu 1978 en þá voru skát-
amir beðnir um að taka hann að sér.
Var það að beiðni Vestmannaeyja-
bæjar og hefur rekstur tjaldsvæð-
anna gengið vel og verið mikil-
vægur þáttur til að standa undir
æskulýðsstarfi á vegum Faxa í öll
þessi ár,“ sagði Frosti Gíslason,
skátaforingi, sem síðustu ár hefur
haft yfimmsjón með rekstrinum á
tjaldsvæðunum.
Hann segir að skátamir hafi átt von
á áframhaldandi samstarfi en í
febrúar í vetur hafi fulltrúi félagsins
verið kallaður á fund bæjarstjóra
sem tilkynnti að uppi væm hug-
myndir um að bjóða út rekstur tjald-
svæðanna í Eyjum eða að minnsta
kosti annars tjaldsvæðanna sem em
í Herjólfsdal og við Þórsheimilið.
Frosti segir að bæjarstjóra, Elliða
Vignissyni, hefði verið tjáð að það
kæmi sér afar illa fyrir félagið fjár-
hagslega. „Við óskuðum eftir upp-
lýsingum um hvers vegna ætti að
taka reksturinn af okkur, hvort
bæjaryfirvöld væm ósátt með
hvernig staðið væri að rekstri
tjaldsvæðanna. Svar bæjarstjóra var
að ef skátamir hefðu staðið sig illa
hefði þeim ekki verið boðinn rekstur
annars tjaldsvæðanna áfram. Það
var því ljóst að bæjaryfirvöld vom
ánægð með rekstur tjaldsvæðanna
en bæjarstjóri sagði að ástæða þess
að skipta upp rekstri tjaldsvæðanna
væri til þess að fá samkeppni milli
þeirra. Við lögðum áherslu á að
þetta hefði slæm áhrif á Faxa og
drægi úr hagkvæmni í rekstri tjald-
svæðanna í Eyjum að vera með sinn
hvom rekstraraðilann á tjaldsvæð-
unum.“
Frosti sagði að þá hefði bæjarstjóri
sagt að þetta væri svo góð fjáröflun
fyrir skátana að jafnframt væm uppi
hugmyndir um að fella niður ár-
legan styrk til þeirra. Vön væri á það
mörgum ferðamönnum til Eyja í
sumar að skátamir hefðu nóg með
annað tjaldsvæðið.
„Við sögðum honum að skátamir
væm þegar byrjaðir að gera ráð-
stafanir fyrir sumarið til þess að
bregðast við auknum ferðamanna-
straumi. Það ætluðum við að gera
með því að hafa starfsmenn í fullu
starfi í sumar og þegar var hafin
vinna við að útvega starfsfólk og
sjálfboðaliða á næstu þjóðhátíð. Þá
sagði bæjarstjóri að hér væm þó
aðeins um hugmyndir að ræða sem
alls ekki væri víst að kæmu nokkum
tíma til framkvæmda og bað fulltrúa
okkar um að ræða þessar hugmynd-
ir ekki við aðra en ég vildi þó upp-
lýsa félagsforingja Faxa um stöðu
mála,“ sagði Frosti.
Þann 1. mars, innan við viku eftir
fund bæjarstjóra var ákveðið í
bæjarráði að bjóða út rekstur a.m.k.
annars tjaldsvæðanna. „Eg hringdi
í formann bæjarráðs og sagði þetta
ákvörðun sem kæmi sér mjög illa
fyrir starf skátanna. Það væri eins og
bæjaryfirvöldum væri alveg sama
um starfsemi skátanna. Formaður
bæjarráðs, Páley Borgþórsdóttir,
brást illa við en ég óskaði eftir svör-
um um ástæðu þessarar ákvörðunar.
Varð fátt um svör en hún sagði að
skátamir gætu boðið í reksturw
tjaldsvæðisins eins og hver annar.“
Frosti sagði að um miðjan mars
hefðu fulltrúar Faxa verið kallaðir á
fund bæjarstjóra sem hefði lagt fram
drög að samningi vegna reksturs
tjaldsvæðanna við Þórshamar og
Áshamar. „í honum var að finna
auknar álögur og kostnað sem falla
áttu á skátana sem bæjarstjóri sagði
að ættu að greiðast af þeim sem sæi
um reksturinn. Þá sagði bæjarstjóri
að sinn hvor aðilinn ætti að reka
tjaldsvæðin til að tryggja sam-
keppni."
Skátamir vildu vita hvenær ætti að
bjóða reksturinn út en var tjáð af
bæjarstjóra að hugmyndin væri að
jafnvel hætta við útboð og einfald-
lega velja samstarfsaðila. „Þá var
bent á símtal við formann bæjarráðs
sem hafði sagt að skátamir gætu
boðið í reksturinn eins og aðrir.
Bæjarstjóri svaraði með því að segja
að það símtal hafi nú ekki hjálpað
skátunum. Við óskuðum eftir upp-
lýsingum um hvað hann hafi átt við
en fengum ekki svör. í kjölfarið
sendum við bréf til bæjarstjóra en
bæjarstjóri svaraði og sagði að
ýmislegt væri óljóst og enn ætti eftir
að taka ákvörðun uih ýmsa þætti.“
Þann 4. apríl auglýsti Vestmanna-
eyjabær eftir samstarfi við áhuga-
sama um rekstur tjaldsvæðanna.
„Þegar fulltrúi okkar ætlaði að
sækja útboðsgögn í samræmi við
ákvörðun bæjarráðs vom þau ekki
tilbúin, aðeins drög að samstarfs-
samningi um rekstur tjaldsvæða í
Herjólfsdal. Engin útboðsgögn,
ekkert tilboðsblað, engar upplýs-
ingar um með hvaða hætti ætti að
skila tilboðum né hvemig þau yrðu
metin. Óskað var eftir svömm um
fjölmarga þætti og ákveðið var að
sett yrði fram tilboðsblað að beiðni
okkar.
Þá hefur einnig komið í ljós að þeir
sem fengu gögn fengu mismunandi
upplýsingar um kjör og skilyrði sem
bærinn ætlaði að bjóða. Sólbakka-
blóm fengu t.d. upplýsingar um að
bærinn sæi um kostnað vegna leigu
á gámum og girðingum á þjóðhátíð
en bæjarstjóri hafði þvertekið fyrir
að bærinn myndi greiða fyrir þetta
ef skátamir sæju áfram um rekst-
urinn líkt og í fyrra,“ sagði Frosti og
bætti við að aðeins Sólbakkablóm
hefðu skilað inn tilboði.
Frosti er mjög ósáttur við fram-
göngu bæjarins í þessu máli, sem sé
ákaflega lítilmannleg gagnvart
æskulýðssamtökum þar sem lang-
mikilvægasta fjáröflunin er tekin af
félaginu. „Einkum í ljósi þess að
einkaaðila voru boðin kjör sem
bæjarstjóri hafði neitað skátunum
um. Þetta er ástæðan fyrir því að við
buðum ekki í reksturinn. Við vomm
svo sannarlega tilbúin til að takast á
við aukinn ferðamannastraum eins
og ég sagði áðan. Ég óska nýjum
rekstraraðila samt góðs gengis en
harma að bærinn hafi farið þessa
leið sem gerir það að verkum að
rekstur Skátafélagins Faxa verður
mjög erfiður og er hætta að þetta
geti bitnað á hinu mikilvæga æsku-
lýðsstarfi skátanna hjá krökkum á
aldrinum 7 til 15 ára og ég skil ekki
forgangsröðun bæjarins í þessu
máli,“ sagði Frosti Gíslason, skáta-
foringi að lokum.