Reykvíkingur - 01.03.1952, Page 4
EVIEMYNDIR (góðar & slæmar)
VITTORIO
Yndisleiki
ReYKVÍKINGI er það sönn ánægja að
helga fyrstu línur þessara dálka kvikmynd
þeirri sem Tjarnarbíó byrjaði að sýna í gær.
Þetta er ítölsk mynd og
nefnist á flestum þjóðtung-
um (frumtungunni ásamt
ensku og frönsku að minnsta
kosti) nafni sem þýðir næst-
um orðrétt: Of seint á morg-
un, en kallast hér Vandamál
unglingsáranna, samkvæmt m.k
þeirri skringilegu ástríðu
reykvískra bíóstjóra að
breyta helzt alltaf nöfnum
kvikmynda, venjulega til
hins verra. Þó mega menn '1§
ekki halda, að Vandamál
unglingsáranna sé rangnefni,
myndin fjallar vissulega um
þau vandamál, og það með
þeim hætti, að ógleymanlegt
hlýtur að verða hverj-
um hugsandi manni. —
Mynd þessi er fullkomin að
leik, efni og formi, enda
stjórnað af Vittorio de Sica,
höfundi Reiðhjólaþjófsins,
en hann fer þarna jafnframt með eitt aðal-
hlutverkið. Og í öllum sínum mannlega ynd-
isleik og lifandi húmor, flytur myndin
veigamikinn uppeldislegan boðskap, sýnir
átökin milli þröngsýni gamla tímans og víð-
sýni hins nýja gagnvart vandamálum þeim
og spurningum sem kynþroskinn vekur hjá
unglingunum. Reykvíkingur hvetur alla til
að sjá þessa mynd og sérstaklega þó for-
eldra sem eiga börn á hinum viðsjárverða
aldri; þeir ættu að sjá hana strax í dag;
það getur orðið — of seint á morgun.
/itFTUR á móti er önnur mynd, sem Tjam-
arbíó mun sýna bráðlega, „Katrín mikla,“
ekki eins góð. Sú mynd endar þar sem hún
ætti að byrja, þ. e. a. s. á þeirri stund þegar
Katrín tekur völdin „yfir öllum Rússunum",
eða m. ö. o. þegar allir hinir ómerkilegri
hlutir eru búnin að gerast, en allir hinir
merkilegri hföíwramundan. Nafn myndar-
inna^er þamjBvTllandi; það ætti að vera
„Kajgn litlar Deikur er þarna þó sæmi-
köflum, og raunar mjög góður hjá
þs Fairbanks yngra, sem leikur hinn
Ivo geðveikg manninn IJatrínar.
Garfield leikur þarna andlegan kryppling,
ráðþrota, hvæsandi afbrotamann. En kvik-
myndarhandritið er að ýmsu leyti gallað.
Garfield er of áttaviltur, og
maður á bágt með að trúa
því, að þessi maður geti í
rauninni verið til. Þó eru í
myndinni „sterkir" sprett-
kaflar, og sumir raunar á-
gætir. En hafi það verið
ætlun höfundar og kvik-
myndarstjóra, að áhorfand-
inn fengi einhverja samúð
með aðalpersónunni, — þá
missa þeir marks.
Hafnarbíó á í fórum sínum
nýstárlega, bandaríska
mynd: Francis. Asni leikur
aðalhlutverkið með aðstoð
Donalds O’Connor. Myndin
gerði lukku í Bandaríkjun-
um. Hún verður sýnd bráð-
lega.
DE SICA
& húmor.
jin all the way — er ameríska nafnið
libíó sýnir næstú
aalhlutverkið
sér til aðstoðar.
Sþekkur leikari; hún
lollywoodgljáann þraut-
íisheppnaða: hún gæti rétt
rúng stúlka í Austurstræti. John
rK
Stjörnubíó byrjar væntan
lega um næstu helgi að sýna
þýsku óperumyndina Brúðkaup Figaros.
Myndin er ný. Forráðamenn bíósins vona,
að henni verði ekki verr tekið en metmynd-
inni La Traviata. Stjörnubíó sýndi hana á
5. viku — og á kannski eftir að taka hana
til sýningar einu sinni enn.
Abott &
Costello
verða
stjörn-
urnar í
Nýja Bíó
næstu
daga í
Mexican
Hayride.
Næsta
mynd
Austur-
bæjarbíós
á eftir
„Kaldar
kveðjur"
J. GARFIELD & S. WINTERS verður
„Hann hljóp alla leið.“ væntan-
lega franska myndin Parísarnætur. Gaman-
mynd með ekta myndum úr næturlifi
heimsborgarinnar.
— ★ —
SVÆSNASTA ÍÞRÓTTAFRÉTTIN, SEM
VIÐ MUNUM EFTIR ÞESSA STUNDINA
(Morgunblaðsdeild)
OSLO, 18. febr. — Formaður Alþjóða-
olympíunefndarinnar, Sigfrid Edström, ligg-
ur sjúkur af kvefsótt. Varaforseti nefndar-
innar gegnir störfum hans á meðan.
Ég vona nú ritstjóri góður að þér
athugið þetta fyrir mig og já alveg
rétt, hvernig er rneð Hnefaleikaráðið
er búið að leggja það niður? (Þjóðv.
14. 2.).
Gott ef ekki er bara búið að
berja það niður.
Timinn birtir sunnud. 17. 2. kvæði
er néfnist: „Bergmál frá englanna
söng (Lag: Beautiful brown eyes)."
Kvæðið er birt undir fyrirsögninni:
„Þáttur kirkjunnar." Höfundur: Sr.
Árelíus Nielsson.
Það er líka til „Tennessee
þolka."
„Eldurinn er talinn hafa kviknað
vegna rafmagnsleysis, er hér var um
Suðurnesin . . . Ekki var hægt að
dæla vatni á eldinn fyrst í stað vegna
rafmagnsleysis." (Mbl. 14. 2.).
Með öðrum orðum: Fyrst
kveikti rafmagnsleysið i og
svo . . .
Eitt sinn meðan hann dvaldist
eystra gerði hann sér h'tið fyrir og
gekk allt austan frá Seyðisfirði og til
Borgarness. Var 13 daga á leiðinni.
í þá daga var slikt ferðalag sjaldgæft.
(Afmælisgrein í Mbl. 13. 2.).
Nú eru menn alltaf að skjót-
ast þetta, blessaðir veriði!
Var síðan gengið til einvíganna
ýmist tveir saman (tvíliðakeppni) eða
einn og einn. (Þjóðv. 19,2.).
Ekkert þrivigi?
Haukur lagði
fyrstur af stað,
datt einu sinni
illa og öðru sinni
vel . . . (Tíminn,
20. 2.).
Og þriðja byltanl Sæmileg?
Glæpamennska fer hér í Reykja-
vík mjög í vöxt og glæpir þeir, sem
hér hafa verið drýgðir að undanförnu,
eru af því tægi, að varla má geta
þeirra, án þess að gagnrýni fylgi með.
(Vísir, 11. 2.).
Góð eða vond?
Berjast í skotheldum vestum í
Kóreu. (Alþbl. 21. 2.).
Einhneþptum eða tvlhneppt-
um?
REYKVÍKINGUR