Reykvíkingur - 01.03.1952, Side 13
UMHEIMURINN
EF taka má mark á upplaginu, er ritstjóri
Reader’s Digest sá slyngasti, sem nokkurntíma
hefur verið uppi. í Bandaríkjunum einum selj-
ast 9.500.000 eintök af Reader’s'Digest mán-
aðarlega, en í öllum heiminum um 15.000.000
eintök. Ritið er prentað á 11 tungumálum og
lesið í 59 löndum, en sem stendur fara fram
samningar um að hefja útgáfu á því í Hollandi
og Indlandi. Reader’s Digest er nú 30 ára, og
DeWitt Wallace, eigandi þess og aðalritstjóri,
hleypti því af stokkunum með 4.000 dollurum,
sem hann fékk að láni hjá föður sínum og bræðr-
um. Kona hans er einn af fjölmörgum aðstoðar-
ritstjórum.
Það eru skiptar skoðanir um, hvað valdi vin-
sældum Reader’s Digest. DeWitt segir: ,,Ég
geri mér einfaldlega far um að grafa upp efni,
sem ég hef sjálfur gagn og gaman af, og svo
birti ég það.“ Rithöfundurinn Louis Bromfield,
sem oft selur ritinu greinar, segir hinsvegar, að
vinsældir þess eigi fyrst og fremst rót sína að
rekja til „andlegs auðnuleysis" og að „miðlungs-
gáfur ritstjórans“ séu „í algeru samræmi við gáf-
ur lesendanna.“ Þeim geðjast að Digestinu,
segir Bromfield,* vegna þess að við lestur þess
,,þarf hvorki að beita hugsun né ímyndunar-
afli.“
Ritstjórar Reader’s Digest fara leynt með það,
en satt er það samt, að meir en helmingur grein-
anna, sem í því birtast, eru ekki endurprentanir.
Digestið notaði eingöngu ,,úrval“ blaða- og
tímaritagreina fram til ársins 1933, en fór þá
að ráða til sín menn til þess að skrifa um það
efni, sem DeWitt var hugleikið. En sumar
greinanna, sem þannig sjá dagsins ljós, fá fyrst
inni í öðrum tímaritum, svo að Reader’s Digest
geti síðar ,,endurprentað“ þær. DeWitt segist
hafa orðið að grípa til eigin manna, vegna þess
að „úrvalið“ hafi ekki verið orðið nóg á mark-
aðnum. Hann borgar mönnum sínum rausnar-
lega fyrir ómakið. Aðstoðarritstjórar hans fá
allt að 800.000 króna árslaun og ríflegan bónus.
En það er einn af duttlungum DeWitt að láta
launin og bónusagreiðslurnar breytast frá ári til
árs, þannig að enginn veit eiginlega með vissu
fyrr en í árslok, hve miklar heildartekjur hans
verða. Þannig fékk ónefndur Digest-ritstjóri eitt
árið 550.000 króna árslaun og svo rösklega
1.400.000 í uppbót. En annað ár fékk sami
maður 1.400.000 króna laun en alls enga upp-
bót. Svokallaðir „lausamenn," fyrsta flokks
skriffinnar, sem ferðast um fyrir Digestið og
senda því greinar þegar svo liggur á þeim, fá
160.000—350.000 króna árslaun, plús að
minnsta kosti 20.000 krónur fyrir hverja birta
grein — plús bónus! Það kemur mönnum því
ekki á óvart þótt DeWitt sé vinsæll vinnuveit-
andi, þegar það bætist við, að fullvrt er, að hann
sé ástúðlegur og feiminn og hafi óbeit á að segja
mönnum upp starfi. Það telst til tíðinda, að
starfsmanni við ensku Digest-útgáfuna var þá
loksins sagt upp, þegar hann hafði ekki sést á
vinnustað í átta vikur.
VINNA hefst í vor við lengstu bílagöng í
heimi. Fyrir framkvæmdum stendur franskt-
ítalskt-svissneskt fyrirtæki, og hugmyndin er
að fara beint í gegnum Mont Blanc, hæsta tind
Alpafjallanna (15.781 fet).
Göngin verða sjö mílur á lengd, 50 fet á
breidd og 15 feta há. Um þau eiga að liggja
fjórar akbrautir, og fullgerð verða þau rösklega
þrisvar sinnum lengri en lengstu bílagöngin,
sem nú eru í notkun, göngin undir Mersey-
fljótið við Liverpool í Englandi. Hreinu lofti
verður dælt í göngin um mikla loftrás
undir akbrautunum, en verkinu á að vera lokið
að fullu innan þriggja ára.
Bílar verða 15 mínútur að aka undir Mont
Blanc. I fyrstu verður vegtollur tekinn af far-
artækjum (um 25 krónur) til þess að greiða
verkkostnaðinn, en hann er áætlaður 330 millj.
FóLKSFJÖLGUNIN í heiminum er orðin
hugsandi mönnum mikið áhyggjuefni. Mann-
fólkinu fjölgar um 70.000 dag hvern, þ. e. 25
milljónir á ári. Sumir telja, að alþjóðasamvinna
um takmörkun barneigna sé óhjákvæmileg.
I BANDARÍSKUM skólum er hægt að fá
tilsögn í hinum ólíklegustu hlutum. Dæmi frá
háskólanum í New York: Kennsla í bókavali
og almennri hugsun; ábendingar til aukins
skilnings á málverkum; leiðbeiningar handa
kaupendum gamalla listmuna; fræðileg athugun
á því, hvernig lesa beri fréttir í dagblöðum.
Sagt er, að einn þeirra manna,
sem útvarpið hefur valið til að
segja fslendingum frá útlöndum,
hafi á héraðsdómsprófi í lögfræði
dæmt mann í 9 ára fangelsi fyrir
að stela skotthúfu af gamalli
konu . . . Einn þekktasti rithöf-
undur okkar trúir á náttúrulækn-
ingastefnuna; kveðst ekkert geta
skrifað ef hann borði kjöt. Það
er haft eftir einum kollega hans,
að svo virðist sem hann lifi ekki
á öðru en steik þessa dagana . . .
Haft er fyrir satt, að úthlutun-
arnefnd listamannalauna hafi við
síðustu úthlutun veitt manni ein-
um allríflegan styrk vegna þess
hve áktakanlega hann lýsti kjör-
um sínum, hungri og volæði, í
bréfi til nefndarinnar. Hann
skrifaði bréfið sem myndlistar-
maður; hefur sýnt eina mynd á
æfinni. En styrkurinn, sem hann
hlaut, var tekinn frá öðrum mál-
ara, sem þegar er orðinn vel
þekktur . . . Þórbergur Þórðar-
son er sagður hvata mjög för
sína framhjá Lækjartorgi þegar
maðurinn á kassanum er að tala.
Því að ef það hendir hann að
stanza, snýr maðurinn sér óðara
persónulega beint að honum og
fer að svívirða hann fyrir anda-
trú . . . Ung íslensk söngkona á
Ítalíu hefur tekið sér nafnið Nini
Palis. Mun Palis vera stytting úr
Palla ís . . . Sagt er að uppistað-
an í skáldsögu þá, sem Halldór
Kiljan hefur I smíðum, sé sótt í
Fóstbræðra sögu. Hefur Kiljan
sagt opinberlega, að hin nýja
saga f jalli um stríð og frið, og má
efiaust treysta því að þeir félag-
arnir Þorgeir Hávarsson og Þor-
móður Kolbrúnarskáld sjái að
minnsta kosti vel fyrir því fyrr-
nefnda ... Nýlega var í Danmörk
gerð mesta hvítlaukspöntun sem
um getur í allri veraldarsögunni.
Pantandi: Náttúrulækningafélag
íslands . . . Nemendur Hús-
mæðrakennaraskólans gerðu ný-
lega verkfall til að mótmæla
ókurteisi sem þeir töldu sig hafa
orðið fyrir af hálfu skólastjór-
ans . . .
REYKVÍKINGUB
13