Fréttablaðið - 04.03.2013, Qupperneq 6
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
KÖNNUN Minnihluti landsmanna
leggur áherslu á að Alþingi ljúki
stjórnarskrármálinu fyrir kosn-
ingar, samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar Fréttablaðsins
og Stöðvar 2. Meirihlutinn leggur
ýmist litla áherslu á að ljúka mál-
inu eða er hlutlaus.
Alls telja 45,2 prósent fólks á
kosningaaldri mjög eða frekar
mikilvægt að ljúka málinu á kjör-
tímabilinu. Um 15 prósent telja
það hvorki mikilvægt né lítilvægt
og 39,7 prósent telja lítilvægt að
ljúka málinu nú.
Hart hefur verið deilt um málið
á þingi og hafa þingmenn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
flokks deilt hart á stjórnarmeiri-
hlutann fyrir að ætla sér að ljúka
málinu þó stutt sé í að þing verði
rofið í aðdraganda kosninga.
Talsverður munur er á afstöðu
kynjanna til málsins. Um 51 pró-
sent kvenna telur mikilvægt að
ljúka málinu en 33,7 prósent telja
það lítilvægt. Á móti telja 40 pró-
sent karla mikilvægt að þingið
ljúki málinu fyrir þingrof en 45,1
prósent telur það lítilvægt.
Um 60 prósent stuðnings-
manna stjórnarflokkanna telja
mikilvægt að ljúka málinu og 67
prósent stuðningsmanna Bjartr-
ar framtíðar. Hlutfallið er mun
lægra meðal stuðningsmanna
Framsóknarflokksins, 34,6 pró-
sent, og enn lægra hjá þeim sem
styðja Sjálfstæðisflokkinn, 17,8
prósent.
Hringt var í 1.329 manns þar
til náðist í 800 samkvæmt lag-
skiptu úrtaki miðvikudaginn 27.
janúar og fimmtudaginn 28. janú-
ar. Þátttakendur voru valdir með
slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svar-
endur skiptust jafnt eftir kyni
og hlutfallslega eftir búsetu og
aldri. Spurt var: Hversu mikil-
vægt telur þú að Alþingi ljúki
stjórnarskrármálinu fyrir kom-
andi alþingiskosningar? Alls
tóku 87,8 prósent afstöðu til
spurningar innar. - bj
ATVINNULÍF Ríkisstjórnin sam-
þykkti fyrir sitt leyti í gær tillögu
Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra um að hefja útboð
fyrir strandsiglingar. Ögmundi
og Katrínu Júlíusdóttur fjármála-
ráherra var falin framkvæmd
útboðsins þannig að strandsigl-
ingar gætu hafist síðar á þessu
ári.
Um er að ræða tilraunaverk-
efni til sex ára þar sem siglt yrði
vikulega á allt að sjö hafnir og er
gert ráð fyrir að fastbinda fjórar
hafnir sérstaklega í útboðinu;
Reykjavík, Ísafjörð, Akureyri og
Reyðarfjörð. Fleiri hafnir kæmu
til greina sem fastir viðkomustað-
ir en aðrar hafnir eftir atvikum.
- shá
Tilraun til sex ára:
Útboð fyrir
strandsiglingar
SUNDAHÖFN Hugmyndir um strand-
siglingar hafa verið lengi til umræðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Hvaða stjórnmálamaður nýtur
mests trausts til að leiða ríkisstjórn?
2. Hvaða tónlistarhátíð er verið að
ræða að halda á Íslandi í sumar?
3. Hvar verður næsti bardagi Gunnars
Nelsson haldinn?
SVÖR:
1. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 2. All
Tomorrow´s Parties 3. Í Las Vegas
KEFLAVÍK Framkvæmdastjóri
Háskólavalla, Ingvi Jónasson, segir
ekkert hæft í því að verið sé að selja
eða gefa ólöglegar þvottavélar úr
íbúðum á Vallarsvæðinu. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því að
þvottavélarnar hafi verið gefnar eða
seldar eftir að þær urðu ónothæfar í
íbúðum Háskólavalla þar sem amer-
ísku rafkerfi var skipt út fyrir það
íslenska.
Samkvæmt ákvörðun stjórn-
valda á að farga vélunum, þar
sem þær eru ekki hannaðar fyrir
íslensk kerfi. Formaður Rafiðnaðar-
sambandsins og sviðsstjóri hjá
Mannvirkjastofnun hafa báðir heyrt
af því að vélarnar séu í umferð og
segja það alvarlegt mál.
Félagið Háskólavellir á og rekur
1.506 íbúðir á vallarsvæðinu. Í
hverri íbúð var eitt sett af heimilis-
tækjum; þvottavél, þurrkari, elda-
vél og örbylgjuofn. Endurvinnsl-
unni Hringrás bárust 26 tonn af
tækjum frá Vellinum til förgunar
árið 2010, sem gerir um 125 stykki
af hverju.
Samkvæmt upplýsingum frá
starfsmanni Hringrásar hafa engin
önnur heimilistæki komið frá Vell-
inum, hvorki fyrr né síðar. Starfs-
maður benti á möguleikann að
málmendurvinnslan Fura í Hafnar-
firði hefði tekið á móti tækjum eftir
árið 2010, en framkvæmdastjóri
Furu segir engin tæki hafa komið
þangað og vísar aftur á Hringrás
þar sem gámarnir á svæðinu til-
heyri þeim.
Ingvi fullyrðir að vélarnar hafi
verið sendar til förgunar eða not-
aðar sem varahlutir. Tækin séu þó
ekki hættuleg í notkun.
„Þetta er ekki eitur heldur bara
venjuleg rafmagnstæki. Eini
munur inn er sá að þau hafa ekki
þennan íslenska stimpil sem þarf
að vera,“ segir hann. Öllum gömlu
tækjunum sem voru í þeim íbúðum
sem hefur verið breytt hafi verið
fargað.
„Það er einhver förgunaraðili
sem hendir þeim. Verktakar fjar-
lægja þetta og fara með á haugana,“
segir hann. Spurður hvaða verktak-
ar það séu segist Ingvi ekki muna
nöfnin á þeim. „Þeir eru svo marg-
ir sem eru að vinna fyrir okkur og
þetta eru bara litlir verktakar.“
Fréttablaðið komst þó að því að
það eru Íslenskir aðalverktakar sem
sjá mestmegnis um framkvæmdir
á svæðinu. Guðmundur Pétursson
framkvæmdastjóri segist fullviss
um að öll tækin séu send í förgun
til Hringrásar. sunna@frettabladid.is
10 prósentum vélanna
fargað hjá Hringrás
Forstjóri Íslenskra aðalverktaka segir öllum þvottavélum úr íbúðum hersins fargað
hjá Hringrás. Engin tæki hafa þó borist þangað síðan árið 2010. Vélarnar eru ólög-
legar hér á landi. Framkvæmdastjóri Háskólavalla segir þeim hafa verið fargað.
Hringrás fékk greitt fyrir förgun á 26 tonnum af heimilistækjum (þvotta-
vélum, þurrkurum, eldavélum og örbylgjuofnum) frá Vallarsvæðinu árið
2010. Hver þvottavél vegur um 70 kíló, hver eldavél um 70 kíló og þurrkari
og örbylgjuofn vega saman um 70 kíló.
➜ 26.000 kg. / 3 = 8.667 kg.
➜ 8.667 kg. / 70 kg. = 124 stykki
Hringrás hefur því fargað um 124 þvottavélum, eldavélum, þurrkurum
og örbylgjuofnum. Íbúðir á Vallarsvæðinu eru 1.509 og í hverri þeirra
var eitt sett af tækjum. Á milli 200 og 300 íbúðir eru enn í notkun með
ameríska kerfinu og einhverjar þvottavélar hafa verið notaðar í varahluti.
Samkvæmt þessu hafa að minnsta kosti þúsund vélar aldrei skilað sér til
Hringrásar og svo virðist sem afar erfitt sé að fá upplýsingar um hvar þær
eru niður komnar.
Upplýsingar vantar um þúsund vélar
ÍBÚÐIR VARNARLIÐSINS Háskólavellir eiga um 1.500 íbúðir sem áður voru í eigu
hersins. Enn er verið að nota heimilistækin í um 200 íbúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
STJÓRNMÁL Ekki er einhugur um tillögur Árna
Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar,
um að semja um framhald stjórnarskrármálsins
á næsta kjörtímabili. Formenn stjórnmálaflokk-
ana munu ræða um framhaldið í þessari viku.
Árni Páll sagði við RÚV um helgina ljóst að
Alþingi næði ekki að klára málið í heild sinni
fyrir lok þessa þings. Hann vill að þingið álykti
um að vinna við nýja stjórnarskrá haldi áfram
á næsta kjörtímabili og ákvæði um auðlindir
verði samþykkt nú.
Þetta segir Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, ekki hægt. Ekki sé
mögulegt að binda hendur næsta þings og sjálf-
stæðismenn muni ekki samþykkja óbreytt
auðlindaákvæði. Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar, er jákvæður fyrir
tillögu Árna Páls. Þingmenn Hreyfingarinnar
vilja sem fyrr að málið verði klárað á þessu
þingi.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, sagði á
heimasíðu sinni í gær að allir flokkar utan Sjálf-
stæðisflokks ættu vel að geta sameinast um
lyktir málsins með þessum hætti.
Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar, vildi ekki tjá sig um
málið þegar Fréttablaðið náði tali af henni í
gær. - þeb
Skiptar skoðanir eru um tillögu Árna Páls Árnasonar um að halda áfram málinu á næsta þingi:
Ræða um framhald stjórnarskrárinnar
SUÐUR-AFRÍKA Átta lögreglumenn
voru handteknir í Suður-Afríku
á föstudaginn sakaðir um að
bera ábyrgð á dauða mósambísks
leigubílstjóra. Til eru upptökur af
atburðinum þar sem maðurinn sést
tala við lögreglumennina og virðist
vera heitt í hamsi. Þá sést hvernig
lögreglumennirnir taka manninn,
handjárna hann aftan í bifreið sína
og aka af stað, dragandi hann eftir
veginum. Samkvæmt Amnesty
Inter national lést maðurinn úr
höfuð áverkum nokkrum klukku-
tímum síðar, þá í haldi lögreglu.
Atburðurinn gerðist í úthverf-
inu Daveyton sem er í grennd við
Jóhannesarborg og er sagður vera
hörð áminning um það að lögreglu-
ofbeldi sé raunverulegt vandamál
um gjörvalla Suður-Afríku. - trs
Átta handteknir í S-Afríku:
Maður lést eftir
lögregluofbeldi
ÁRNI Formaðurinn segir nauðsynlegt að horfast í
augu við stöðuna og tryggja framhaldið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL
Hótelgestir með fíkniefni
Fjórir einstaklingar voru handteknir á
hótelherbergi í austurborg Reykjavíkur
á sunnudagsmorgun vegna gruns um
fíkniefnabrots. Þeiru voru vistaðir í
fangageymslu á meðan lögreglan rann-
sakaði málið.
Borgaði ekki leigubílinn
Lögregla handtók á sjöunda tímanum
í gærmorgun mann sem greiddi ekki
fyrir leigubíl sem hann hafði tekið og
hafði auk þess í hótunum. Manninum
var stungið í fangageymslu á meðan
reynt var að komast til botns í málinu.
14,5%
25,2% 28,4%
16,9%
15%
➜ Ný stjórnarskrá
Hversu mikilvægt telur þú að Alþingi
ljúki stjórnarskrármálinu fyrir kom-
andi alþingiskosningar?
■ Mjög mikilvægt
■ Frekar mikilvægt
■ Hvorki mikil-
vægt né lítil-
vægt
■ Frekar lítilvægt
■ Mjög lítilvægt
Minnihluti segir mikilvægt að stjórnarskrármálið klárist fyrir kosningar:
45% telja mikilvægt að klára
VEISTU SVARIÐ?