Fréttablaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 10
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Miðvikudaginn 6. mars kl. 12.00–14.00
Laugardalsvöllur í sal KSÍ 3. hæð
Aðgangur ókeypis. Skráning á phs@getspa.is
MÁLÞING
ÍSÍ og Íslenskar getraunir efna til málþings um baráttu
gegn hagræðingu úrslita í íþróttum
DAGSKRÁ
12:00 Setning – Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri Getspár/Getrauna
12:10 Heildstætt yfirlit – Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og FIBA Europe
12:45 Hagræðing úrslita, hættumerki á Íslandi – Þórir Hákonarson
framkvæmdastjóri KSÍ
13:00 Kaffi
13:10 Hagræðing úrslita í íþróttum sem viðfangsefni lögreglu og réttar-
kerfisins – Jón H. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari
höfðuborgarlögreglu
13:25 Umfang og eðli vandamálsins – Pétur Hrafn Sigurðsson deildarstjóri
getraunadeildar
13:45 Umræður og niðurstöður – Sigurður Elvar Þórólfsson fundarstjóri
og formaður Samtaka íþróttafréttamanna
14:00 Ráðstefnulok
TYRKLAND, AP Um miðja síðustu
viku staðfesti Nazmi Gur, kúrdísk-
ur þingmaður á tyrkneska þinginu,
að Abdullah Öcalan, leiðtogi Verka-
mannaflokks Kúrda, hefði sent frá
sér tillögur að friðarsamkomulagi
sem gæti orðið að veruleika á næstu
mánuðum.
Öcalan er helsti leiðtogi
aðskilnaðar sinnaðra Kúrda í Tyrk-
landi. Hann hefur setið í fangelsi á
fangaeyju, rétt utan við Istanbúl,
frá árinu 1999.
Í tuttugu blaðsíðna bréfi, sem
hann sendi bæði til Kúrdaflokks-
ins á tyrkneska þinginu og til yfir-
manna uppreisnarsveita Kúrda í
Tyrklandi, hvetur hann til þess
að Kúrdar hætti vopnaðri baráttu
sinni gegn tyrkneska hernum þann
21. mars næstkomandi, en þann
dag halda Kúrdar upp á Nowruz-
hátíð sína, sem er vorhátíð. Há tíðin
hefur oft orðið tilefni til harðra
átaka milli Kúrda og tyrkneskra
hermanna.
Öcalan hvetur uppreisnarsveitir
síðan til þess að yfirgefa Tyrkland
og halda yfir landamærin til Íraks
fyrir 15. ágúst, en þá verða 29 ár
liðin frá því vopnuð barátta Kúrda
hófst í Tyrklandi. Síðan þá hafa
átökin kostað tugi þúsunda lífið.
Í staðinn vonast Öcalan til þess
að tyrknesk stjórnvöld láti hundruð
Kúrda laus úr fangelsum. Jafn-
framt reiknar hann með því að
Tyrkir tryggi réttindi Kúrda í
nýrri stjórnar skrá og veiti héraðs-
stjórnum á svæðum Kúrda aukin
völd.
„Þetta er sögulegt ferli,“ segir
Gur og fullyrðir jafnframt að
meðal Kúrda sé ríkur vilji til þess
að semja um frið við Tyrki. Hins
vegar muni Kúrdar fylgjast vand-
lega með því hvaða umbætur tyrk-
nesk stjórnvöld geri.
„Þetta eru tillögudrög hans,“
segir Gur um bréfið frá Öcalan.
„Endanlega útgáfan mun taka á sig
mynd eftir að flokkurinn og aðrir
sem hlut eiga að máli hafa komið
með sínar tillögur.“
Reiknað er með laga breytingum í
Tyrklandi sem gerðu það að verkum
að ekki yrði lengur lögbrot að fara
opinberlega lofsamlegum orðum um
uppreisnarsveitir Kúrda. Þar með
væri hægt að láta marga Kúrda
lausa úr fangelsum. Jafnframt er
tyrkneska þingið að vinna að nýrri
stjórnarskrá, sem Kúrdar vonast til
að tryggi betur réttindi minnihluta-
hópa. gudsteinn@frettabladid.is
Friðartilboð Kúrda
berst úr fangelsinu
Abdullah Öcalan, leiðtogi aðskilnaðarsinnaðra Kúrda í Tyrklandi, hefur sent frá sér
tillögur að friðarsamkomulagi. Öcalan hefur setið í fangelsi nálægt Istanbúl síðan
1999. Hann reynir nú að fá yfirmenn uppreisnarliðsins til að leggja niður vopn.
KÚRDAR Í TYRKLANDI Aðskilnaðarhreyfing hefur í nærri þrjá áratugi barist fyrir
sjálfstæði Kúrda. NORDICPHOTOS/GETTY
Erum með gott úrval af góðum
bílum á frábæru tilboði.
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
BMW X5 3.0i
Nýskr. 05/06, ekinn 120 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr.3.980.000
TILBOÐ kr. 3.280 þús.
SUBARU LEGACY LUX
Nýskr. 01/08, ekinn 77 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr.2.680.000
TILBOÐ kr. 1.990 þús.
TOYOTA LAND CRUISER 150
Nýskr. 12/10 ekinn 30 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 7.990.000
TILBOÐ kr. 6.990 þús.
PORSCHE CAYENNE TURBO
Nýskr. 09/03 ekinn 77 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr.4.980.000
TILBOÐ kr. 3.590 þús.
NISSAN X-TRAIL SE
Nýskr. 06/08, ekinn 107 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr.3.340.000
TILBOÐ kr. 2.290 þús.
TILBOÐSVERÐ!
4.590 þús.
Rnr. 200490
Rnr. 151206
Rnr. 101868
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 06/08, ekinn 94 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.980.000
TILBOÐ kr. 3.980 þús.
LEXUS RX400h HYBRID
Nýskr. 06/08, ekinn 68 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 5.990.000
Rnr. 140136 Rnr. 280303
Rnr. 120089
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
KOMDU STRAX Í DAG! GERÐU FRÁBÆR KAUP!
TILBOÐ