Fréttablaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 8
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Anna Björk
Bjarnadóttir
Eyjólfur Árni
Rafnsson
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Grímur
Sæmundsen
Kristín PétursdóttirRannveig Rist
Adolf
Guðmundsson
Þorsteinn PálssonVilmundur
Jósefsson
Ásberg Jónsson
Ávörp:
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra
Samstöðuleiðin: Fleiri störf – betri störf
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor
Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs og formaður LÍÚ
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital
Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits
Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og
stjórnarformaður Festu
Fundarstjóri:
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA
Nýkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins
flytur lokaorð og slítur fundi.
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins
miðvikudaginn 6. mars 2013
á Hilton Reykjavík Nordica
Opin dagskrá kl. 14-16
SKRÁNING Á WWW.SA.IS
SAMSTÖÐULEIÐIN
FLEIRI STÖRF
BETRI STÖRF
REYKJAVÍK Jacob Bundsgaard,
borgar stjórinn í Árósum, seg-
ist afar hrifinn af hugmynd Jóns
Gnarr, starfsbróður síns í Reykja-
vík, um að flytja skrifstofu borgar-
stjóra í Breiðholt og gæti hugsað
sér að fara svipaðar leiðir og færa
skrifstofu sína út fyrir miðborgina.
Bundsgaard var staddur hér
á landi í heimsókn á dögunum
og sagði aðspurður í samtali við
Fréttablaðið að honum litist vel á að
flytja skrifstofu sína til Gellerup,
sem er það hverfi í Árósum þar sem
hlutfall innflytjenda er hæst. Það
líður fyrir ímynd sína og þar hafa
glæpir og ýmis önnur samfélags-
mein verið landlæg um árabil.
„Það er hvetjandi að sjá hvern-
ig borgarstjórinn ykkar færði sig
til hverfis sem er að takast á við
ýmsar áskoranir og það er góð leið
til að efla áherslu á þau málefni,“
segir Bundsgaard og bætir því við
að það sé til margs að vinna að efla
hverfin.
Bundsgaard segir margt líkt
með borgunum tveimur, til dæmis
í skólamálum.
Breytingarnar í skólakerfinu í
Reykjavík síðustu misseri, þar sem
margar stofnanir voru sameinað-
ar, vöktu hörð viðbrögð en Bunds-
gaard segir slíkt viðbúið þegar
skólamál séu annars vegar. Hann
þekkir þessi mál af eigin raun því
hann stýrði skólamálum í Árósum
á árunum 2005 til 2006 þegar inn-
leiddar voru miklar sameiningar á
yfirstjórnum skóla annars vegar
og leikskóla hins vegar. Til dæmis
voru leikskólarnir 360 árið 2005
en eru nú 81, en breytingarnar ollu
miklum deilum á sínum tíma.
„Fólk hefur eðlilega áhyggjur af
útkomunni þegar breytingar eiga
sér stað. Okkar reynsla er þó góð
og það eru ekki deilur um málið
lengur. Fólk er líka ánægt með að
með stærri einingum er til dæmis
orðið auðveldara fyrir hvern skóla
eða leikskóla að sækja sérfræði-
aðstoð og samvinna hefur aukist
til muna.“
Bundsgaard segir að tvö til þrjú
ár hafi tekið að lægja öldurnar en
nú sé mikill meirihluti foreldra
ánægðir með starfið.
Árósar fóru ekki þá leið að sam-
eina leikskóla og grunnskóla, vegna
mismunandi löggjafar um stigin
tvö, en þó er víða afar náið sam-
starf og jafnvel í sama húsnæði, að
sögn Bundsgaards.
„Við fórum aðeins öðruvísi leiðir
en Reykjavík en við munum fylgj-
ast með því hvernig málin þróast
hér og sjáum hvort við getum ekki
lært eitthvað af því sem Reykjavík
er að gera.“
thorgils@frettabladid.is
Borgarstjóri Árósa kveðst
taka Gnarr til fyrirmyndar
Borgarstjórinn í Árósum er hrifinn af flutningi skrifstofu Jóns Gnarr upp í Breiðholt og íhugar að fara svipaða
leið. Hann segir margt líkt með borgunum varðandi sameiningar í skólamálum. Þær hafi gefist vel í Árósum.
BORGARSTJÓRINN Jacob Bundsgaard, borgarstjóri í Árósum, er hrifinn af flutningi
borgarstjóraskrifstofu úr miðbænum og íhugar að fara svipaða leið.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Það er hvetjandi að
sjá hvernig borgarstjórinn
ykkar færði sig út til
hverfis sem er að takast á
við ýmsar áskoranir og
það er góð leið til að efla
áherslu á þau málefni.
Jacob Bundsgaard,
borgarstjórinn í Árósum
VENESÚELA, AP Hugo Chavez er
enn að „berjast hetjulegri baráttu
fyrir lífi sínu og heilsu“ segir
Nicolas Maduro, varaforseti Vene-
súela. Hann not-
aði reyndar svip-
að orðalag um
miðjan desem-
ber um heilsufar
forsetans.
Samkvæmt
nýrri skoðana-
könnun telja um
60 prósent íbúa
landsins að forsetinn muni ná
heilsu og snúa til valda á ný. Hann
hefur mánuðum saman verið á
sjúkrahúsum vegna krabbameins.
Chavez hefur hins vegar hvatt
þjóð sína til að kjósa Maduro í for-
setaembættið, komist hann ekki
til heilsu aftur. - gb
Flestir trúa á endurkomu:
Chavez berst
fyrir lífi sínu
SJÁVARÚTVEGUR Fryst hafa verið
15 þúsund tonn af loðnu í fiskiðju-
veri Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað það sem af er vertíð. Um er að
ræða frystingarmet en mest hafa
áður verið fryst tæplega 14 þúsund
tonn á loðnuvertíðinni 2005.
Gera má ráð fyrir að heildar-
frystingin á vertíðinni verði 16-17
þúsund tonn í lok vertíðar.
Unnið hefur verið að ýmsum
umbótum á fiskiðjuverinu þannig
að afköst þess hafa aukist veru-
lega og eru gjarnan fryst yfir 500
tonn á sólarhring þegar best lætur.
- shá
15.000 tonn af loðnu í frost:
Met í frystingu
í Neskaupstað
NICOLAS
MADURO