Fréttablaðið - 04.03.2013, Page 13

Fréttablaðið - 04.03.2013, Page 13
MÁNUDAGUR 4. mars 2013 | SKOÐUN | 13 Á netinu má sjá erindi Þorvald- ar Þorsteinssonar – þess snilldar- manns – á málþingi BÍL um skapandi greinar frá sjónarhóli listamanna þar sem hann deildi á tilhneigingu til að beita akadem- ískum vinnubrögðum í listsköpun. Hann talaði um „gervireynd“ í því sambandi. Í erindinu vék hann stuttlega að íslenskunni og aðferðum okkar við að kenna krökkum hana. Hann sagði eitthvað á þá leið að krakk- arnir hefðu í raun ámóta færni í að nota íslensku og konsertpíanisti hefur á hljóðfæri sitt, en kennslu- háttunum mætti líkja við það að konsert píanistinn einblíndi í þjálf- un sinni á feilnóturnar – krakkarn- ir skilgreina málnotkun sína út frá feil nótunum – og áherslan á grein- ingu og lýsingu málsins fremur en beitingu þess jafngilti því að láta konsert píanistann einbeita sér að því að taka flygilinn í sundur og setja hann aftur saman í réttri röð. Málótti og málþótti Þetta er frábær líking hjá Þorvaldi. Þegar einblínt er á að kenna málið út frá villunum en ekki möguleikunum sem í því felast gleymist að krakk- arnir kunna málið þegar þeir koma í skólann. Stundum hefur hvarflað að manni að markmið íslensku- kennslu í skólum sé að sýna börnum fram á að íslenska sé útlenska. Og ekki bara útlenska heldur ákaflega erfið útlenska sem þau muni aldrei ná tökum á. Er þetta atviksorð? Er þetta óákveðið fornafn (hvur fjár- inn sem það nú annars er)? Kenni- liður? Sagnliður? Veistu þetta ekki? Þá kanntu ekki íslensku. Íslenska er nefnilega útlenska. Stundum hittir maður fólk með ómælda frásagnargáfu sem getur haldið áheyrendum föngnum með snilldarlega uppbyggðum sögum en þegar maður spyr hvort þetta fólk hafi ekki löngun til skrifta er eins og tenginguna vanti milli munn- legrar málnotkunar og skriflegrar; það segist ekki kunna neitt; kannski af því að það man ekki hvenær maður skrifar „geysa“ og hvenær „geisa“. Þessu fólki hefur verið talin trú um að íslenska sé útlenska. Erf- itt mál sem það muni aldrei geta lært. Og það fyllist málótta. Aðrir fyllast málþótta. Til er fólk sem amast við málfari sam borgara sinna, ekki síst þeirra sem hafa atvinnu af því að nota tungumálið – tala í útvarp eða skrifa í blöð. Til dæmis les maður iðulega aðfinnslur um þau Andra Frey og Gunnu Dís sem eru á morgnana á Rás tvö, fólk sem er einmitt sérstaklega gaman að hlusta á af því að þau eiga svo auð- velt með að tjá sig, hafa skemmtilegt tungutak með sterku svipmóti. Þessi málgæslustörf eru af góðum hug sprottin – umhyggju fyrir varnar lausum menningar- verðmætum í spilltum heimi. En hún er seig sú gamla og ekki víst að hún þurfi á slíkri umhyggju að halda. Við erum ekki stödd á safni þar sem einungis má fara hljóðlega um sali og skoða viðkvæmu orðin, sem hreinsuð eru reglulega af fólki með hvíta hanska. Íslenskan brotn- ar ekki þó að einhver segi „Ég vill“. Hún er heldur ekki latína, endan- legt, lokað mengi. Hún er ekki við- kvæmt blóm að berjast fyrir lífi sínu í menningarnæðingnum: hún er ein- mitt eins og íslenskur heiða gróður: kraftmikil og ódrepandi. Hún er ekki hrum og veikbyggð heldur sterk og frjósöm. Hún er „orða frjó- söm móðir“ eins og Bólu-Hjálmar kvað. Nýjasta dönskuslettan vitnar um þetta: „Haltu kjafti, hvað var gaman í gær,“ segja krakkarnir upp á dönsku, en danskurinn lætur þennan frasa duga: hér eru daglega búnir til nýir: „Farðu í sturtu, hvað mig langar í pönnuköku“, „farðu á ball í Garðabæ hvað Snjólfur er vit- laus“, „skafl beygjattu skalli, hvað þetta er ljót peysa“. Orða frjósöm móðir. Það er svo gaman að bulla á íslensku. Hún er svo opin og frjósöm og til í tuskið. Hún er svo blæbrigða- rík, svo sveigjanleg og teygjanleg – og beygjanleg. „Ýmsir, báðir, sérhver…“ Málþótti eins er málótti annars. Og málflótti þess þriðja. Í skóla- kerfinu grúfa blessuð börnin sig yfir setningafræðina – taka flygil- inn í sundur – og geta romsað upp úr sér óákveðnum fornöfnum – annar, fáeinir, enginn, neinn, / vömb, keppur, laki, vinstur – en þau læra ekki að tjá sig; tala, skrifa, skálda, bulla; móta hugsun í orð, nota þetta tungumál sem þau kunna. Það er eftirlátið Junior Chamber hreyf- ingunni að þjálfa ungt fólk í því að halda ræður, og virðist áskilið í þeirri þjálfun að hafa enga sann- færingu en þykjast hafa hana og eru gefin stig fyrir að baða út hönd- unum, hvessa augun, hækka og lækka róminn. Útkoman er gervi- mælska, ámóta spennandi og kjöt- lokur frá Borgarnesi. Fyrir vikið eru ræðustólar landsins þéttsetn- ir fólki sem baðar út höndunum og talar hálfkjökrandi um málefni sem því stendur í rauninni hjartanlega á sama um. Vandað málfar vitnar um vand- aða hugsun; vont málfar sýnir vonda hugsun. Eitt einkenni góð- ærisins var mikil löngun til að tala ensku öllum stundum, kannski af því að íslenskan er svo gagnsæ að allt skilst sem maður segir. Hefði hrunið ekki komið er eins víst að útrásarvíkingarnir (sem nú bíða í ofvæni eftir kosningaúrslitum) hefðu haft sitt fram, búnir að taka skortstöðu á íslenskuna og enska orðið opinbert tungumál hér á landi. Og kannski er erfitt að rök- styðja hvers vegna við eigum að tala þetta skrýtna mál, sem enginn kann víst almennilega, nema nokkrir sér- lundaðir prófarkalesarar – og það að málið sé skemmtilegt og dásamlegt og orða frjósöm móðir nær kannski skammt. En við hérna erum eina fólkið í heiminum sem talar þetta mál. Okkur er trúað fyrir því. Hætt- um við að tala íslensku deyr hún og veröldin verður einum hugsunar- hættinum fátækari: enginn sem skilur Njálu, Laxness og Þórberg og ljóðin öll og allt hitt sem heilan heim margbrotinna og fínlega sam- ofinna hugmynda þarf til að skynja að fullu: heilt tungumál. En við verðum líka að muna að íslenska er handa okkur; til þess að nota hana þurfum við ekki að þylja upp þessi fornöfn sem aldrei geta ákveðið sig. Hún er okkar mál. Íslenska er ekki útlenska. Hún er innlenska. En við verðum líka að muna að íslenska er handa okkur... Va n ræksl a er ei n birtingar mynda ofbeldis gegn barni. Þegar þörf- um barns er ekki sinnt nægjanlega þannig að barninu er búin hætta af, eða það getur leitt til skaða á þroska þess, er um vanrækslu að ræða. Vanræksla getur verið líkamleg, tilfinningaleg eða sálræn og vanræksla getur einnig snúið að umsjón og eftirliti varð- andi nám. Þegar rætt er um van- rækslu er ekki átt við eitt og eitt skipti heldur síendurtekin atvik. Til dæmis telst til vanrækslu ef sex ára gamalt barn kemur ítrekað of seint í skóla, kemur þangað óhreint eða í skítugum fötum dag eftir dag eða fær ekki næga hvíld að staðaldri. Foreldrar bera einfaldlega ábyrgð á að þessir þættir séu í lagi. Van- ræksla getur orðið til þess að barn getur dregist aftur úr jafnöldrum sínum á mismunandi hátt, átt erfið- ara með að leysa úr vandamálum og árangur þess í skóla orðið slakari. Einnig getur vanræksla orðið til þess að barn verði berskjaldaðra fyrir öðru ofbeldi, s.s. kynferðis- ofbeldi. Vanræksla getur því vald- ið varanlegum skaða bæði andlega og líkamlega. Samkvæmt íslenskum lögum ber öllum skylda að tilkynna til við- komandi barnaverndarnefndar, neyðarlínu 112 eða lögreglu, grun um að barn sé beitt ofbeldi eða það búi við óvið- unandi aðstæður. Því miður er raunin oft sú að þessari skyldu er ekki framfylgt. Hafa má í huga að sá sem tilkynnir getur óskað eftir nafnleynd gagn- vart öðrum en barnaverndarstarfs- manni. Barnið á ávallt að njóta vaf- ans og það er hlutverk fagfólksins að meta hvort aðbúnaði barnsins er ábótavant. Á vef samtakanna, www.barna- heill.is/verndumborn má finna nán- ari upplýsingar um vernd barna gegn ofbeldi, hvernig þekkja má einkennin og hvernig bregðast skuli við. Það er bæði siðferðis- leg og lagaleg skylda okkar að til- kynna um grun á ofbeldi eða van- rækslu gegn barni. Það þarf þjóð til að vernda barn. Nú stendur yfir átakið Út að borða fyrir börnin þar sem sex- tán veitingastaðir og viðskipta- vinir þeirra styðja vernd barna gegn ofbeldi með því að gefa hluta af verði valinna rétta til verkefna Barnaheilla. Það þarf þjóð til að vernda barn BARNAHEILL Sigríður Guðlaugsdóttir verkefnastjóri ➜ Barnið á alltaf að njóta vafans og það er hlutverk fagfólksins að meta hvort aðbúnaði barnsins er ábótavant. Fyrirmyndar fyrirtæki 2012 Tökum á skulda- og greiðsluvanda heimilanna Í þágu heimilanna › Verðtrygging á húsnæðis- og neytendalánum verði ekki almenn regla › Auðveldum afborganir af húsnæðis- lánum með skattaafslætti › Fellum niður skatt þegar greitt er inn á höfuðstól húsnæðislána í stað þess að greiða í séreignarsjóð › Leyfum skuldsettum íbúðareigendum að hefja nýtt líf án gjaldþrots › Afnemum stimpilgjöld Markvissar og raunhæfar aðgerðir í þágu heimilanna sem má koma í framkvæmd án tafar. Er íslenska útlenska? Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.