Fréttablaðið - 04.03.2013, Page 14
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Kvenfélagið var stofnað 12. mars 1953
en allir fundir í félaginu eru haldnir
fyrsta mánudag hvers mánaðar þann-
ig að við munum halda upp á afmælið
í kvöld,“ segir Margrét Guðjóns dóttir,
kirkjuvörður og formaður afmælis-
nefndar kvenfélagsins. „Hátíðin
verður haldin inni í kirkju og biskup
Íslands verður með okkur ásamt
öðrum góðum gestum. Þar verður
dagskrá í tali og tónum og síðan flytj-
um við okkur yfir í safnaðarheimilið,
þar sem Björk Jakobs dóttir leikkona
ætlar að vera með okkur. Þar ætlum
við bara að njóta þess að vera saman,
borða góðan mat og gleðjast.“
Og stendur starfsemi félagsins enn
með blóma, koma ungar konur inn í það
í dag? „Já, núna. Fyrir nokkrum árum
var staðan þannig að meirihluti félags-
kvenna var orðinn frekar fullorðinn og
séð fram á það að endur nýjunar væri
þörf ef félagið ætti að lifa áfram. Þá
var tekin sú ákvörðun að fá ungar
konur til liðs við félagið og kvenfélags-
konur fóru og hittu ungar konur bæði
hér í söfnuðinum og eins á mömmu-
morgnum og kynntu félagið. Árangur-
inn lét ekki á sér standa og ungum
konum fjölgaði til muna í félaginu.
Eitt af því sem gert var til að höfða
til yngri kvenna var að stofnað var til
prjónakaffis, stofnaður gönguhópur,
skrapphópur, leshópur, tónlistarhópur
og bænahópur og starfsemin stendur
nú með miklum blóma.“
Hvert er hlutverk kvenfélagsins í
safnaðarstarfinu? „Fyrst og fremst að
hlúa að innviðum kirkjunnar. Kven-
félagið hefur í áranna rás fjármagnað
marga ótrúlega flotta og góða hluti og í
fyrra gaf það til dæmis kirkjunni eina
og hálfa milljón. Eins ef eitthvað hefur
þurft að gera hérna, þurft að mála eða
vantað húsgögn, þá hefur kvenfélagið
séð um það og á fimmtíu ára afmæli
félagsins gaf það kirkjunni glerlista-
verkið eftir Sigríði Ásgeirsdóttur sem
nú eru hliðargluggar kirkjunnar. Svona
mætti lengi telja en þetta snýst líka
bara um félagsskapinn, að koma saman
og skemmta sér og styrkja böndin milli
kvennanna.“
Og heldur endurnýjun félagsins
áfram? „Já, já, já. Við erum vakin og
sofin yfir því að fá fleiri konur inn í
félagið og ágætt að það komi fram
að þær þurfa alls ekki að tilheyra
Langholts sókn, það eru allar konur
velkomnar.“
Þannig að þetta sextuga félag lifir
góðu lífi? „Já, félagið er ungt og yngist
með hverju árinu.“ fridrikab@frettabladid.is
Sextíu ára og yngist
með hverju árinu
Kvenfélag Langholtssóknar fagnar sextíu ára afmæli um þessar mundir og í kvöld verður
haldin afmælishátíð þar sem boðið er upp á skemmtun í tali og tónum, góðan mat og
góðan félagsskap, að sögn Margrétar Guðjónsdóttur kirkjuvarðar.
KIRKJUVÖRÐURINN Margrét Guðjónsdóttir segir starfsemi Kvenfélags Langholtskirkju sjaldan hafa verið með meiri blóma þótt það hafi
starfað í sextíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þennan dag árið 1933 sór Franklin Delano Roosevelt embættis-
eið sem forseti Bandaríkjanna. Kreppan mikla var í algleymingi
um þær mundir og við innsetningarathöfnina kynnti Roosevelt
löndum sínum „New deal“-stefnu sína og mælti hin fleygu orð að
það væri ekkert að óttast nema óttann sjálfan.
Roosevelt fæddist árið 1882 í New York. Frændi hans var
Theodore Roosevelt, forseti Bandaríkjanna árin 1901 til 1909.
Árið 1905 kvæntist hann Önnu Eleanor Roosevelt og var kjörinn
á þing fyrir demókrata fimm árum síðar. Árið 1920 var hann vara-
forsetaefni demókrata í forsetakosningunum sem repúblikanar
unnu. Ári síðar veiktist hann af lömunarveiki og var bundinn við
spelkur og hjólastól allar götur síðan.
Árið 1928 var Roosevelt kjörinn ríkisstjóri New York-ríkis og
bauð sig fram til forseta fjórum áður síðar. Hann gjörsigraði
Herbert Hoover, sitjandi forseta, sem margir kenndu um kreppuna.
Roosevelt tryggði sér endurkjör auðveldlega árið 1936 og var
fyrstur bandarískra forseta til að bjóða sig fram í þriðja sinn
árið 1940. Ári seinna lýstu Bandaríkin stríði á hendur Japan og
Þýskalandi, sem hafði úrslitaáhrif í stríðinu og markaði endalok
einangrunarstefnu Bandaríkjanna.
ÞETTA GERÐIST 4. MARS 1933
Roosevelt sver embættiseið
MERKISATBURÐIR
1213 Hrafn Sveinbjarnarson á Eyri við Arnarfjörð er veginn á
heimili sínu eftir aðför Þorvalds í Vatnsfirði.
1461 Rósastríðið: Hertoginn af Jórvík hertekur Lundúnir og lýsir
sjálfan sig Játvarð 4. Englandskonung.
1861 Abraham Lincoln verður sextándi forseti Bandaríkjanna.
1936 Zeppelin-loftfarið Hindenburg flýgur sitt fyrsta reynslu-
flug.
1945 Finnland segir Þýskalandi stríð á hendur.
1955 Armed Forces Radio and Television Service Keflavik fær
heimild íslenskra stjórnvalda til sjónvarpsútsendinga.
1964 Hljómar frá Keflavík slá í gegn á fyrstu Bítlatónleikum á
Íslandi, sem haldnir eru í Háskólabíói. Fjórar aðrar hljómsveitir
koma fram á þessum tónleikum.
1968 Fyrsta leikritið sem sett er upp sérstaklega fyrir sjónvarp
á Íslandi er sent út. Það var verkið Romm handa Rósalind eftir
Jökul Jakobsson.
1983 Menningarmiðstöðin Gerðuberg er opnuð í Breiðholts-
hverfi í Reykjavík.
2000 PlayStation 2 kemur fyrst út í Japan.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
INGIMUNDUR JÓNSSON
skipstjóri,
Lindarhvammi 12, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 22. febrúar. Hann
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 5. mars klukkan 13.00.
Sjöfn Magnúsdóttir
Jón Ingimundarson
Hafsteinn Ingimundarson
Okkar ástkæri
JÓN SÖRING
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann
24. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Lilja Gunnarsdóttir.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN PÁLL INGIBERGSSON
pípulagningameistari,
til heimilis að Furugerði 1, Reykjavík,
lést á LSH Fossvogi fimmtudaginn
21. febrúar. Útförin fer fram frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 6. mars kl. 13.00.
Ingibjörg Jónsdóttir Þorsteinn Friðþjófsson
Guðrún Kolbeins Jónsdóttir Eyjólfur Kolbeins
Þuríður Jónsdóttir Sigurður Heimir Sigurðsson
Málfríður Jónsdóttir
Sigurður Jónsson Olga Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.