Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
24
FÖRÐUN 60+Myndband þar sem hinn frægi förðunarmeistari Lisa
Eldridge farðar 64 ára konu hefur vakið mikla athygli
á netinu. Yfir 140 þúsund hafa skoðað myndbandið
og um 1.500 hafa skrifað við það, jafnt ungar
konur sem eldri. Myndbandið má skoða á Lisa-
Eldridge.com.
Þ ó að ég fylgi tískunni reyni éallt f
LEITAR ÚT FYRIR LANDSTEINANATÍSKA Nína Dagrún Hermannsdóttir, menntaskólamær í Borgarnesi, hefur
alla tíð heillast af tísku. Hún reynir ávallt að móta sinn eigin stíl.
NÝTT NÝTT
teg 110917 - þunn, fínleg blúnda í B,C skálum á kr. 5.800,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Laugardaga frá kl. 10-14
GEÐHJÁLP
FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
BATAMIÐUÐ ÞJÓNUSTA
Páll Matthíasson og Margrét
Ófeigsdóttir. Bls. 1 og 5
2 SÉRBLÖÐ
Geðhjálp | Fólk
Sími: 512 5000
14. mars 2013
62. tölublað 13. árgangur
Kona leiðir í fyrsta sinn
Aleqa Hammond, leiðtogi Sósíal-
demókrataflokksins á Grænlandi,
er ótvíræður sigurvegari kosninga
til grænlensku landstjórnarinnar.
Hammond verður nýr formaður land-
stjórnarinnar, fyrst kvenna. 8
Kemur neytendum illa Eindagar
lána Íbúðalánasjóðs færðir nær
gjalddaga. Vont fyrir neytendur, segir
formaður Neytendasamtakanna. 6
Eitt sinn líf Tímamótauppgötvun
NASA leiðir í ljós að eitt sinn gæti
hafa verið lífvænlegt á Mars. 10
Almenningur á verði Fjöldi ábend-
inga um verðhækkanir berst frá neyt-
endum inn á nýjan vef ASí. 16
SPORT Þjálfari kvennalandsliðsins er
ekki ánægður með líkamlegt ástand
lykilleikmanna. 48
Nýtt kortatímabil
KRINGLUKAST
20–50% AFSLÁTTUR
OPIÐ TIL 21
Heilsubúð í Smáralind
MIKIÐ ÚRVAL • FRÁBÆR GÆÐI • BETRI VERÐ
Holland and Barrett ÍslandSími 534-1414 • w w w.hollandandbarrett.is •
KONUKVÖLD 15% afsláttur af Dr.Organic húðvörum
HEILBRIGÐISMÁL Dæmi eru um að
drengir í elstu bekkjum grunn-
skóla byggi upp vöðvamassa með
hjálp stera. Ásmundur Kristinn
Símonar son, einkaþjálfari í World
Class, segist hafa þjálfað hóp
drengja úr tíunda bekk sem hafi
talað opinskátt um steraneyslu
sína.
Ásmundur segir fjölda þeirra
sem neyti ólöglegra steralyfja
hafa rokið upp. „Við höfum miklar
áhyggjur af því að unglingar byrji
snemma að reykja og drekka og
höfum verið með öfluga forvarna-
fræðslu gegn því en síðan er horft
framhjá öllu svona.“
Hann kallar eftir aukinni
umræðu um skaðsemi steraneyslu
og segir mikilvægt að herða eftir-
lit með sölu þeirra. „Lyfja notkun
fer stöðugt vaxandi og spurningin
er hvort við ætlum bara að sam-
þykkja það eða fara að grípa í
taumana.“
Tollgæslan hefur frá ára mótum
lagt hald á tvöfalt meira magn
stera en allt árið í fyrra. Kári
Gunnlaugsson, yfirtollvörður í
Leifsstöð, segir ógnvænlegt hve
ört innflutningurinn aukist.
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir
á Vogi, segist ekki efast um að til
séu grunnskóladrengir sem noti
stera. Inn á Vog hafi komið ung-
menni niður í sautján ára aldur
sem hafi misnotað slík lyf.
„Ef ungir menn sem halda
að þeir geti allt fá þá hugmynd
að sterar geri ekki annað en að
hjálpa þeim að vera fallegir, og
að þeir séu hættulausir af því að
þeir fái svo góðar leiðbeiningar
frá sölumönnunum, þá auðvitað
prófa þetta margir.“
- hó / sjá síðu 4
Grunnskóladrengir
á ólöglegum sterum
Einkaþjálfari segir dæmi um að drengir í elstu bekkjum grunnskóla tali fjálglega
um steranotkun sína. Yfirtollvörður segir þróunina í sterasmygli ógnvænlega.
Bolungarvík 0° NA 12
Akureyri -2° NA 5
Egilsstaðir -2° A 6
Kirkjubæjarkl. 3° A 5
Reykjavík 2° NA 3
KÓLNAR Í dag verða norðaustan 10-15
m/s NV-til, en annars hægari. Víða él
einkum V-til. Kólnandi veður. 4
SKOÐUN Kennari sem veikist í tíma-
bundinni ráðningu fyrirgerir veikinda-
réttinum, skrifar Guðlaug Sjöfn. 28
SJÁVARÚTVEGUR Hjörtur Gíslason, stjórnarformað-
ur Ögurvíkur, segir einsýnt að verði ekki gerðar
breytingar á álagningu veiðigjalda muni fyrir-
tæki hans ekki hafa rekstrargrundvöll til
framtíðar. Álagning veiðigjalda fyrir árið 2010
tók allan hagnað fyrirtækisins það ár og 22
milljónum betur.
„Skatturinn mun knésetja okkur. Ef þetta
módel verður keyrt svona áfram er ljóst að
mörg félög heltast úr lestinni,“ segir Hjörtur í
viðtali við Fréttablaðið í dag.
Georg Gísli Andersen, framkvæmdastjóri
Valafells í Ólafsvík, vék að þessu atriði á aðalfundi
Samtaka atvinnulífsins á dögunum. Hann tíundaði
fleiri dæmi um það sem Hjörtur lýsir og benti enn
fremur á að þegar lögin um veiðigjöld yrðu komin
að fullu til framkvæmda myndi gjaldið hækka
verulega, jafnvel um helming. Til marks um
óvissuna sem væri til staðar gæti enginn
reiknað hækkunina út enn sem komið
væri, sagði Georg Gísli. Hann segir
afleiðingar svo mikillar gjaldtöku og
óvissu leiða til uppsagna og minni fjár-
festinga. - shá / sjá síðu 12
Ögurvík greiddi 22 milljónir umfram hagnað í veiðigjald fyrir árið 2010:
Hætta útgerð ef ekkert breytist
Opið til
23
í kvöld
MENNING Hönnunartvíeykið Eley
Kishimoto hefur endurhannað
Selsham hönnunarfyrirtækisins
Víkur Prjóns-
dóttur og verð-
ur hann hluti af
haustlínu hins
fræga tísku-
húss.
„Þau hjá
Hönnunarsafn-
inu í London
höfðu sam-
band við okkur
fyrir um ári og vildu gera eitt-
hvað með okkur. Þau þekktu
Eley Kishimoto og þá kom upp
sú hugmynd að fá þau til að
endurhanna Selshaminn okkar,
líkt og Henrik Vibskov hafði
gert árið 2008,“ segir Guðfinna
Mjöll Magnúsdóttir, sem rekur
Vík Prjóns dóttur ásamt Bryn-
hildi Páls dóttur og Þuríði Rós
Sigurþórs dóttur, um samstarfið.
Hamur inn verður frumsýndur í
Þjóðleikhúsinu í dag. - sm / sjá síðu 54
Íslenska ullin heillar:
Með í haustlínu
Eley Kishimoto
MENNING Ný heimasíða Páls
Óskars inniheldur meðal annars áður
óútgefið efni. 54
Lyfjanotkun fer stöð-
ugt vaxandi og spurningin
er hvort við ætlum bara að
samþykkja það eða fara að
grípa í taumana.
Ásgrímur Kristinn Símonarson
einkaþjálfari í World Class
FRANS PÁFI I Argentínumaðurinn Jorge Mario Bergoglio var kjörinn nýr páfi í gær. Þúsundir manna voru á Péturstorginu.
Eftir bið daglangt varð mannfjöldinn vitni að því þegar hvítur reykur liðaðist úr reykháfi Sixtínsku kapellunnar síðdegis og þegar
nýr páfi steig fram í fyrsta skipti. NORDICPHOTOS/AFP
HJÖRTUR
GÍSLASON
GUÐFINNA MJÖLL
MAGNÚSDÓTTIR
VATIKANIÐ „Þetta var ólýsanleg
stund,“ segir Hjálmar Blöndal,
lögfræðingur og nemi í Róm, sem
var staddur á Péturstorginu í gær
þegar Jose Mario Bergoglio, 76
ára kardínáli frá Argentínu og nýr
páfi, steig fram í fyrsta skipti.
Gríðarlegur fjöldi fólks var
samankominn á torginu og götum
þar í kring, að sögn Hjálmars og
eftirvæntingin gríðarleg. Hann
segir að valið hafi komið fólki á
óvart. „En áhrifaríkast var þegar
fjöldinn sameinaðist í hljóðri bæn
fyrir fráfarandi páfa. Það heyrð-
ist bókstaflega ekkert, þrátt fyrir
mannfjöldann, og þetta er augna-
blik sem ég mun aldrei gleyma,“
segir Hjálmar. Bergoglio tók sér
nafnið Frans I og er fyrsti páfinn
sem á rætur að rekja til lands utan
Evrópu. Bergoglio hefur þjónað
sem erkibiskup í Buenos Aires frá
því árið 1998 og sem kardínáli frá
árinu 2001. - shá
Páfi tók sér nafnið Frans I:
Fyrsti frá landi
utan Evrópu
Nánar á bls. 27
Græddu á gulli
Kringlunni 3. hæð.
Opið frá kl. 11:00 til 18:00
www.kaupumgull.is - Uppl.: Sverrir s. 661-7000