Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 29
FÖRÐUN 60+
Myndband þar sem hinn frægi förðunarmeistari Lisa
Eldridge farðar 64 ára konu hefur vakið mikla athygli
á netinu. Yfir 140 þúsund hafa skoðað myndbandið
og um 1.500 hafa skrifað við það, jafnt ungar
konur sem eldri. Myndbandið má skoða á Lisa-
Eldridge.com.
Þó að ég fylgi tískunni reyni ég alltaf að standa aðeins upp úr og vera örlítið öðruvísi en allir hinir,“
segir Nína Dagrún, sem stundar nám á
fyrsta ári í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Til að ná þessu markmiði sínu pantar
Nína Dagrún sum fötin sín af erlendum
vefsíðum. „Ég panta aðallega af tveimur
síðum, www.asos.com og www.motel-
rocks.com. Þetta eru mjög vinsælar
síður og ég held að íslenskar búðir
panti eitthvað frá þeim líka. Allavega
hef ég stundum keypt þar flíkur og séð
þær nokkrum mánuðum síðar í búð
hér á landi,“ segir hún glaðlega. Þegar
Nína Dagrún verslar á Íslandi segist hún
þræða búðir á borð við Zöru, TopShop
og Dúkkuhúsið.
Nína Dagrún hefur duflað við fyrir-
sætustörf. „Ég tók um daginn þátt í
myndatöku fyrir nýtt veftímarit, Dea
magazine, og hef setið fyrir í auglýs-
ingu,“ segir Nína Dagrún, sem gæti
vel hugsað sér að taka þátt í fleiri
fyrirsætu verkefnum. „Ég gæti þó líklega
ekki orðið alvarlegt módel því ég er
ekki hávaxin,“ segir hún glettin.
En hver er framtíðardraumurinn?
„Eftir menntaskóla langar mig að vinna
eitthvað með tísku. Fara til dæmis að
læra förðunarfræði eða að stílista,“
segir hún en bætir við að stærsti fram-
tíðardraumurinn sé að fara síðan út í
háskóla og læra arkitektúr eða verk-
fræði.
■ solveig@365.is
LEITAR ÚT FYRIR
LANDSTEINANA
TÍSKA Nína Dagrún Hermannsdóttir, menntaskólamær í Borgarnesi, hefur
alla tíð heillast af tísku. Hún reynir ávallt að móta sinn eigin stíl.
VIÐ SJÓINN Nína Dag-
rún hefur afar gaman af
tísku og gæti hugsað sér
að starfa við hana án þess
þó að gera hana að fram-
tíðarstarfi. MYND /STEFÁN
NÝTT NÝTT
teg 110917 - þunn,
fínleg blúnda í B,C
skálum á kr. 5.800,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
Laugardaga frá kl. 10-14