Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 38
14. MARS 2013 FIMMTUDAGUR6 ● geðhjálp Ómar H. Kristmundsson Félagasamtök þurfa að fylgja nokkrum meginreglum til að tryggja vandaða og árangursríka stjórnarhætti. 1. Ímynd og traust. Stjórnendur skulu vernda orðspor félagsins og efla það traust sem samfélagið ber til þess. Verðmæti félags endurspeglast ekki í kennitölum úr ársreikningi heldur í virð- ingu og trausti samfélagsins. 2. Skráðar reglur. Lög félagsins mynda regluumgjörð þess þar sem lýst er m.a. tilgangi félags, stjórnskipulagi og þeim grunn- gildum sem starfsemin byggir á. Því þarf að vanda til gerðar þeirra og endurskoða reglulega. Til viðbótar þurfa að vera í gildi verklagsreglur stjórnar, þar sem m.a. er lýst reglum um framkvæmd stjórnarfunda og siðareglum um starfshætti. 3. Sjálfboðaliðar. Styðja þarf við sjálfboðaliða félagsins og stöð- ugt þarf að huga að öflun nýrra. Tryggt þarf að vera að þeir geti ávallt leitað í áhugaverð og fjölbreytt verkefni og hafi áhrif á starfsemi félagsins. 4. Hlutverk stjórnar. Hlutverkum stjórnar skal lýst með skýrum hætti í lögum félags og verklagsreglum stjórnar. Stjórnum er venjulega ætlað að móta stefnu félags og taka allar meiri háttar ákvarðanir, hafa eftirlit með fjármunum og rekstri þess, vinna að tekjuöflun og vera fulltrúi félagsins út á við. Einnig ræður stjórn framkvæmdastjóra. Allt of algengt er að stjórnir séu óvirkar. Ýmsum aðferðum er unnt að beita til að stjórn geti sinnt þessum hlutverkum með virkum hætti. 5. Val á stjórnarmönnum. Til að tryggja lýðræði í félaga- samtökum þurfa að vera skýrar reglur um val á stjórnar- mönnum. Allir félagsmenn skulu eiga möguleika á að bjóða sig fram til stjórnarsetu. Setja skal ákvæði í lög félagsins um hámarks setu í stjórn. Tryggja skal að vina- og fjölskyldutengsl séu engin milli stjórnar og framkvæmdastjóra. Það getur tak- markað möguleika á að stjórn sinni eftirlitshlutverki sínu. 6. Fjármálastjórnun. Félagasamtök eiga það sammerkt með fyrir tækjum og opinberum stofnunum að þurfa að fylgja reglum um bókhald og reikningsskil. Mikilvægi vandaðrar fjármálastjórnunar félagasamtaka er síst minna en hjá fyrir- tækjum. Allar efasemdir um að rétt sé farið með fjármuni félagsins geta skaðað varanlega ímynd og traust þess. Árs- reikningar skulu endurskoðaðir af ytri endurskoðendum. 7. Upplýsingamiðlun. Ein áhrifamesta aðferðin til að viðhalda samfélagslegu trausti er að félagasamtökin noti vef- og sam- félagsmiðla til að koma á framfæri upplýsingum um starf- semina. Birta skal upplýsingar um lög félagsins, stjórn, starfs- menn, fundargerðir, ársreikninga, ársskýrslur og aðrar þær upplýsingar sem lýsa ákvörðunum og starfsemi félagsins. Einnig skulu félagar og aðrir hagsmunaðilar eiga þess kost á að senda inn fyrirspurnir og tjá sig um þau málefni sem eru efst á baugi á hverjum tíma. Höfundur er prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi formaður Rauða krossins. Hvernig tryggjum við góða stjórnunarhætti félagasamtaka? Hrefna Pálsdóttir Það er stór ákvörðun að setja barnið sitt á lyf og engu foreldri léttvæg og trúlega oft þrauta- lending. Slík ákvörðun getur engu að síður haft varanleg áhrif til góðs á líf barns og á að skoð- ast í því ljósi. Mér er minnis- stæð umfjöllunin um „læknadóp“. Þar var lyfið Rítalín í brenni- depli. Þessi umræða var vissu- lega afar mikil væg en orðalagið stakk mig. Rítalín er ekki lækna- dóp. Rítalín er lyfseðilsskylt lyf, veitt af læknum og til þess fallið að hjálpa fólki með ofvirkni og athyglis brest (ADHD). Lyfið er svo gjarnan misnotað af einstak- lingum sem glíma við fíkniefna- vandamál. Notkun Rítalíns verð- ur ekki gerð að frekari umfjöllun en stef þessa pistils er: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ ÍNA Ég þekki 11 ára gamla stelpu sem heitir Ína. Hún er dugleg í skólan- um, brosmild og kát. Hún stundar sína íþrótt af krafti og er félags- lynd. Henni hefur samt ekki allt- af liðið vel. Hún var mjög oft þjök- uð af kvíða þegar hún var yngri. Kvíði er ósköp eðlileg tilfinning og flest finnum við einhvern tím- ann fyrir kvíða. Líkt og læknar og aðrir sérfræðingar hafa margoft bent á, þá getur mikill kvíði yfir lengri tíma haft lamandi and- leg áhrif á einstaklinginn, vald- ið mikilli vanlíðan og eins getur hann komið fram í líkamlegum einkennum. Eins er talið að ýmis áföll í lífinu geti stuðlað að kvíða- röskunum og að auki eiga erfðir sinn þátt. MEÐFÆDDUR KVÍÐI Í Ínu tilfelli var talið líklegt að um meðfæddan kvíða væri að ræða. Hún var einkabarn á þeim tíma, hafði aldrei orðið fyrir neinu áfalli en þegar sagan var skoðuð sýndi hún trúlega einkenni strax frá fæðingu. Hún var frekar pirr- að ungbarn, gjarnan óróleg og van- sæl í vöku. Þegar hún fór til dag- mömmu og síðar í leikskóla tók við mikil barátta. Hún vildi ekki fara í leikskólann og var það eink- um vegna manneklu sem var í leikskólunum á þeim tíma. Starfs- fólkið gerði sitt besta en hjá Ínu vakti þetta ástand óöryggi og van- líðan. Eins komu fram hjá henni breytt kvíðaeinkenni. Ef einhver annar en mamma hennar sótti hana á leikskólann fór hún að gráta og varð óörugg. Hún varð einn- ig mjög óróleg ef hún vissi ekki nákvæm lega hvað beið hennar og þráspurði gjarnan um sömu hlut- ina. Ína hætti að vilja sofa í sínu herbergi, óttaðist það líka oft að vakna ekki aftur, var veðurhrædd, þjófahrædd og eldhrædd. Ein jólin varð hún ekki róleg fyrr en búið var að aftengja allar jólaseríur áður en farið var að sofa. Matar- venjur voru erfiðar, hún borðaði lítið og helst alltaf það sama. Eins fór hún snemma að hafa áhyggjur af því að fá illt í magann og kasta upp. Það komu tímabil þar sem hún þorði varla að borða. Ef hún fór í flugvél óttaðist hún mjög að flug- vélin myndi hrapa. Hún hræddist það að fara í barnaafmæli ef hún þekkti ekki til foreldranna. Þessi ótti leiddi til þess að Ína fór stund- um á mis við ýmsar gleðistundir sem mörg börn hugsa hlýlega til langt fram á fullorðinsaldur. LYF EÐA EKKI LYF? Tekin var sú ákvörðun að setja Ínu í fimm ára bekk. Þar tók við henni dásamlegur kennari, sem bæði Ína og foreldrar hennar eiga margt að þakka. Þegar hér var komið sögu (Ína fimm ára) hafði mamma hennar miklar áhyggjur af henni og ákvað að leita aðstoðar. Farið var með hana til barna sálfræðings, sem greindi hana með kvíðaröskun. Jafnframt nefndi sálfræðingurinn að tíma- bundin lyfjagjöf gæti verið lausn en foreldrarnir tóku það ekki í mál. Það var auðvelda leiðin út að mati mömmunnar. VIÐ TÓKU ERFIÐ ÁR Tíminn leið og við tóku mjög sveiflukennd og erfið ár. Haldið var áfram að fara í viðtöl til sál- fræðingsins. Síðar var skipt um sálfræðing og náði sú afar vel til Ínu. Hún hjálpaði henni að átta sig betur á aðstæðum, náði að út- skýra fyrir henni hvað hrjáði hana og jafnframt hjálpaði hún Ínu að beita ákveðinni tækni þegar áleitn- ar og óþægilegar hugsanir fóru að leita á hana og valda henni vanlíð- an. Ína skildi líka að hún var ekki ein um slíka líðan. Haustið 2011 hafði verið mikið um áleitnar hugsanir hjá Ínu sem hún réð illa við og vöktu með henni vanlíðan. Þá tók Ína hrein- læti mjög alvarlega. Hún þvoði og sprittaði á sér hendurnar svo oft að þær urðu eins og sandpappír. Á þessum tíma var álagið orðið of mikið og ákveðið var að leita að- stoðar barnageðlæknis. Tekin var sú ákvörðun að prófa vægt kvíða- lyf. Í stuttu máli sagt gjörbreytt- ist líðan Ínu. Kvíðinn nánast hvarf og Ína blómstraði. Í dag líður Ínu mjög vel. Hún er sjálfsörugg, glöð og það sem meira er, fer ekki leng- ur á mis við margar af þeim já- kvæðu og skemmtilegu hliðum lífsins sem kvíðinn hafði áður hamlað henni að upplifa og njóta. Reyndar ber enn talsvert á þrá- hyggju og áráttuhegðun en í mun minni mæli en áður. Þá hafa Ína og foreldrar hennar áfram aðgang að ráðgjöf. Það sem foreldrar Ínu hræddust mest var á vissan hátt bjargvættur stúlkunnar þeirra. AÐGÁT SKAL HÖFÐ Í NÆRVERU SÁLAR Líf með geðröskunum er erfið reynsla. Ekkert barn eða ung- menni á að þurfa að upplifa skömm vegna þess að þurfa að taka lyf sem hjálpa þeim við einbeit- ingu og stuðla mögulega að betri líðan. Almennt er talið að náms- gengi hafi áhrif á sjálfsmynd. Eins getur lyfjagjöf hjálpað ein- staklingum félagslega og losað þá við stöðugan, nagandi kvíðaverk, eins og hér á undan var reifað. Við foreldrar þurfum að hafa í huga að við þekkjum barnið okkar best. Við erum ábyrg fyrir því að standa vörð um barnið okkar og velja þær leiðir, sem við teljum vera best- ar fyrir það. Foreldar Ínu munu aldrei sjá eftir því að hafa tekið þessa ákvörðun. Óskin er þó auð- vitað sú að lyfið sé tímabundið úr- ræði þannig að Ína geti verið án þess í framtíðinni. Vellíðan hennar og velgengni í lífinu skiptir þó öllu máli, með hjálp eða án. LEGGJUM NIÐUR MEIÐANDI UMRÆÐU Það er ósk mín að foreldrum barna með geðraskanir auðnist að verja þau gegn meiðandi umræðu um þau úrræði sem þeim eru nauðsyn- leg. Það er bæði sjálfsagt og eðli- legt að misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja sé rædd opinberlega. En það er líka mikilvægt að vanda vel til verka. Það er samfélagi okkar til skammar ef slík umræða hefur þær afleiðingar að stór hópur barna og fullorðinna forðast lyfja- töku vegna fordóma og fáfræði í samfélaginu. Höfundur er lýðheilsufræðingur (Master of Public Health (MPH)) og starfar sem sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu í Há- skólanum í Reykjavík. Í viðjum kvíðaröskunar – Sagan hennar Ínu Hrefna Pálsdóttir lýðheilsufræðingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.