Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 30
FÓLK|TÍSKA
Fendi varð fyrstur til að ríða á vaðið með marglitum hana-kömbum í Mílanó. Síðan
þá hafa kambarnir sést víða, þó
ekki aðeins á höfði fyrirsætanna
heldur einnig á töskum og skóm.
Heider Ackermann sendi fyrirsætur
sínar niður sýningarpallinn með
svokallaða dauðakamba (e. death
hawk), sem er vinsæl greiðsla meðal
þeirra sem aðhyllast gotneska tísku.
Vivienne Westwood er þekkt fyrir
pönkaralegan stíl. Hanakambinn
var líka að finna á síðustu
sýningu hennar en þó
aðeins á skófatnaði. Jean
Paul Gaultier gerði tilraunir
með hárgreiðslu sem helst
mætti nefna blending af
hanakambi og síðu að
aftan. Skórnir hjá
Leowe höfðu líka
mikla skírskotun
til hanakambs-
ins.
Heimild: www.
style.com
KAMBAR Á
TOPPI OG TÁ
TÍSKUSÝNINGAR Pönkið hefur ráðið ríkjum á tísku-
sýningum undanfarið. Hanakambar hafa víða sést,
bæði á höfði fyrirsæta og skóbúnaði þeirra.
FENDI Fjólublár hanakambur á tísku-
sýningu Fendi í Mílanó í febrúar.
NORDICPHOTOS/GETTY
JEAN-PAUL
GAULTIER
Sérstæð
greiðsla
fyrirsætu á
tískusýningu
Gaultiers nú í
mars.
LOEWE Hana-
kambur á hælaskóm
á tískusýningu Loewe
í París 2. mars.
VIVIENNE
WESTWOOD Pönkara-
legir skór á sýningu
Westwood í París 2. mars.
HAIDER ACKERMANN Dauðakambur
á tískusýningu Haiders Ackermann á
tískuvikunni í París nýverið.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
VISTVÆN
TÍSKA
Við framleiðslu á fatnaði og
efnum er gríðarlegt magn
eiturefna notað, bæði til
að lita föt og til ræktunar
ýmissa plantna sem notaðar
eru í fatagerð. Vistvænn
fatnaður er sá fatnaður sem
framleiddur er með minni
skaða fyrir umhverfið en
áður hefur tíðkast. Vist-
vænir framleiðendur og
hönnuðir leitast við að finna
ný efni, endurvinna eða nota
nýjar umhverfisvænni að-
ferðir við að búa til efni en
áður. Slíkur fatnaður nýtur
sífellt meiri vinsælda eftir
því sem umhverfisvitund
fólks vex. Sem stendur er
slíkur fatnaður oftast dýrari
en sá sem framleiddur er
eftir hefðbundnari leiðum.
Í framtíðinni er þó líklegt
að þetta muni breytast,
þar sem krafan um minni
mengun fer sífellt vaxandi.
Á vefsíðunni www.eco-
friendly-fashion.com má
fylgjast með hönnuðum og
framleiðendum sem bjóða
vistvænar vörur.
Rúmföt frá 8.390 kr
Dúnsæng 24.990 kr
Ótrúlegt úrval af kjólum, skokkum
bólerójökkum og peysum
st 36-48
Sjá fleiri myndir á
Fyrir fermingaveisluna
Belladonna á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Nýjar vörur
í hverri viku
Stærðir 40-58
Ferming 2013