Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 8
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
40
30
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
ALÞINGI Tekjur ríkisins af sköttum
og gjöldum tengdum mengun hafa
aukist um sem nemur 15 prósent-
um frá hruni, uppreiknað miðað
við verðlag síðasta árs. Að baki
aukningunni eru tekjur af gjöldum
á eldsneyti, vörugjöld af bensíni og
olíuvörum og kolefnisgjald.
Tekjur af gjöldum á eldsneyti
námu árið 2008 tæpum 19 milljörð-
um króna (á verðlagi ársins 2012)
en voru í fyrra tæpir 22 milljarðar.
Aukningin er 15,7 prósent. Þetta má
lesa úr skriflegu svari fjármála- og
efnahagsráðherra við fyrirspurn
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, þingmanns Framsóknar-
flokks. Uppreiknaðar tölur sýna líka
að 2007 voru tekjur ríkisins af þess-
um tekjuliðum rétt tæpum milljarði
meiri en 2012.
Á tímabilinu bættist líka við nýr
tekjustofn þegar kolefnisgjald var
tekið upp árið 2010.
Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir í svari sínu
að ríkissjóður hafi á undanförnum
árum ekki haft miklar tekjur sem
rekja megi til mengunar. Stjórn-
völd hafi ekki beitt hagrænum hvöt-
um nema í takmörkuðum mæli til
þess að draga úr álagi á umhverfið.
Þess í stað hafi verið meiri áhersla
á leið „boða og banna“ þar sem sett
séu skilyrði fyrir efnainnihaldi
með reglum. „Flest gjöld sem lögð
eru á mengandi efni eru lögð á til
að mæta þeim kostnaði sem förgun
þeirra hefur í för með sér.“ Undan-
tekning frá tekjuöflun á grundvelli
mengunar sé síðan gjöld á jarðefna-
eldsneyti. - óká
Tekjur ríkisins af gjöldum og sköttum tengdum mengun eru rétt tæpum milljarði lægri en árið 2007:
Stigvaxandi tekjur af mengunarsköttum frá hruni
KOLEFNISGJALD FYRST
LAGT Á ÁRIÐ 2010
TEKJUR RÍKISINS AF
MENGUNARSKÖTTUM
Heimild: Svar fj ármála- og efnahags-
ráðherra á Alþingi 8. mars 2013.
M
ill
ja
rð
ar
Uppreiknaðar miðað við verðlag ársins 2012.Uppreiknað miðað við verðlag ársins 2012.
2010
2.094
milljónir króna 2012
3.061
milljón króna
Hlutfallsleg aukning:
46,2%
Innköllun
VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR
HLUTABRÉFA Í VÁTRYGGINGAFÉLAGI ÍSLANDS HF.
Fimmtudaginn 21. mars 2013 verða hlutabréf í Vátryggingafélagi Íslands hf. tekin til rafrænnar skráningar
hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Vátryggingafélags Íslands hf. þess
efnis. Þar af leiðandi verður ekki tekið við tilkynningum um eigendaskipti á hlutabréfum félagsins þann 21.
mars 2013. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við ákvæði laga og
reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Hlutabréf í Vátryggingafélagi Íslands hf. verða tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru gefin út á nafn
hluthafa, auðkennd raðnúmerum 1-2 og útgáfudags getið á hvoru bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald
þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Vátryggingafélags Íslands hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn
til skrifstofu félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki
verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir 21. mars nk.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri fyrir skráningardag við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða
sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf
á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á
möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum framangreindum
takmörkunum á tilkynningum um eigendaskipti þann 21. mars 2013.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með hlutum sínum í
félaginu til að geta framselt hluti sína, svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun stofnar í þessu
skyni VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Eigendum hluta í félaginu er kynnt framangreint bréfleiðis.
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.
Save the Children á Íslandi
GRÆNLAND Aleqa Hammond, leið-
togi sósíaldemókrataflokksins
Siumut, er ótvíræður sigur vegari
kosninga til grænlensku landstjórn-
arinnar, sem haldnar voru á þriðju-
dag.
„Ég er ánægð með að Siumut
er kominn aftur,“ segir hún, en
flokkur inn var í forystu land-
stjórnarinnar í þrjá áratugi, allt
frá því að Grænlendingar fengu
heimastjórn árið 1979 og þangað til
vinstri flokkurinn Inuit Ataqatigiit
vann sigur fyrir fjórum árum.
Hammond er jafnframt fyrsta
konan sem verður formaður græn-
lensku landstjórnarinnar.
Siumut hlaut 14 sæti í landstjórn-
inni, þannig að flokknum nægir að
fá til liðs við sig einn tveggja manna
flokk til að vera með 16 manna
meirihluta, en í landstjórninni situr
31 fulltrúi grænlensku þjóðarinnar.
Ríkisstjórn Danmerkur hefur
fagnað úrslitunum og vonast eftir
betra samstarfi við grænlensku
landstjórnina, einkum varðandi
auðlindalöggjöfina sem grænlenska
þingið samþykkti á síðasta ári.
Auðlindalögin opna á erlendar
fjárfestingar í vinnslu auðlinda úr
jörðu á Grænlandi og hafa verið
kölluð Kínverjalögin vegna þess að
Kínverjar hafa sýnt mikinn áhuga á
slíkum fjárfestingum.
Til að lögin fái fullt gildi þarf
danska þingið hins vegar að gera
breytingar á útlendinga löggjöfinni,
en hefur verið að bíða með það þang-
að til eftir kosningarnar á Græn-
landi, sem nú eru afstaðnar.
Danskir stjórnmálamenn hafa
margir verið ósáttir við grænlensku
auðlindalögin en hafa engu að síður
ekki viljað neita þeim um breyting-
ar á dönsku útlendingalöggjöfinni.
Siumut-flokkurinn hefur hins
vegar sagst vera ósáttur við ýmis-
legt í lögunum og boðar að þeim
verði breytt, þannig að með sigri
flokksins er þrýstingi létt af danska
þinginu um stund.
„Ég vænti þess að nú hefjist við-
ræður um þá þætti sem Siumut
hefur gagnrýnt,“ er haft eftir
Flemming Møller Mortensen, tals-
manni danska Sósíaldemókrata-
flokksins, á fréttasíðu danska dag-
blaðsins Politiken.
gudsteinn@frettabladid.is
Jafnaðarmenn
aftur til valda
Grænlenski jafnaðarmannaflokkurinn Siumut vann
stórsigur í kosningum á þriðjudag. Aleqa Hammond
verður nýr formaður landstjórnarinnar, fyrst kvenna.
ALEQA HAMMOND Leiðtogi Siumut-flokksins á kjörstað á þriðjudag.
NORDICPHOTOS/AFP
Úrslit kosninganna á Grænlandi
14
Siumut (Áfram) Sósíaldemókratar
þingmenn
11
Inuit Ataqatigiit (Samfélag inúíta) Vinstriflokkur, sjálfstæðissinnar
þingmenn
2
Atassut (Samkennd) Frjálshyggjuflokkur, sambandssinnar
þingmenn
2
Lýðræðissinnar Frjálslyndur flokkur, sambandssinnar
þingmenn
Inúítaflokkurinn Klofningsflokkur frá Inuit Ataqatigiit.
Stofnaður í janúar 2013
2 þingmenn
SLYS Tæplega sextugur starfs-
maður álversins í Straumsvík
meiddist illa í vinnuslysi þar
aðfaranótt miðvikudags.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu klemmdi hann báða
fætur í búnaði í álverinu með
þeim afleiðingum að ökklinn
brotnaði á öðrum fætinum og
ristin á hinum. Samstarfsmenn
komu honum þegar í stað til
aðstoðar og í kjölfarið var hann
fluttur með sjúkrabíl á spítala.
Ólafur Teitur Guðnason, upp-
lýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á
Íslandi, segir að hjá fyrir tækinu
sé nú verið að kanna tildrög
slyssins. - sh
Klemmdist í Straumsvík:
Brotnaði á rist
og sköflungi
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Verið er að
kanna tildrög slyssins. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI