Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 64
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
visir.is
Ítarlegt viðtal við Alfreð má
finna á íþróttavef Vísis.
STÓRT SKREF Góður árangur Alfreðs
hjá Volda vakti athygli stóru liðanna í
Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÚRSLIT
DOMINOS-DEILD KVENNA
VALUR - GRINDAVÍK 78-43
Valur: Jaleesa Butler 24/15 fráköst/6 stoðsending-
ar/4 varin skot, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 14/8
fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 8/5 fráköst, Unnur
Lára Ásgeirsdóttir 8/10 fráköst, Kristrún Sigurjóns-
dóttir 7/8 fráköst/8 stoðsendingar.
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 19/7 fráköst,
Crystal Smith 9/5 fráköst, Eyrún Ösp Ottósdóttir 5,
Jóhanna Rún Styrmisdóttir 4/6 fráköst, Ingibjörg
Yrsa Ellertsdóttir 3
KEFLAVÍK - SNÆFELL 71-64
Keflavík: Jessica Ann Jenkins 21/4 fráköst, Ingunn
Embla Kristínardóttir 12/7 fráköst, Pálína Gunn-
laugsdóttir 12/4 fráköst/7 stoðsendingar, Birna
Ingibjörg Valgarðsdóttir 9/5 fráköst.
Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 23/7 fráköst/5
stolnir, Kieraah Marlow 16/9 fráköst, Hildur Björg
Kjartansdóttir 12/12 fráköst, Berglind Gunnars-
dóttir 8/6 fráköst/6 stoðsendingar
HAUKAR - FJÖLNIR 70-72
Haukar: Siarre Evans 21/19 fráköst/7 stoðsend-
ingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 19/7 fráköst,
Jóhanna Björk Sveinsdóttir 8/5 fráköst, Margrét
Rósa Hálfdanardóttir 8/6 stoðsendingar.
Fjölnir: Britney Jones 25/4 fráköst/8 stoðsend-
ingar, Bergdís Ragnarsdóttir 16/12 fráköst/6
stoðsendingar, Hrund Jóhannsdóttir 11/13
fráköst, Bergþóra Holton Tómasdóttir 6, Eyrún Líf
Sigurðardóttir 5, Fanney Lind Guðmundsdóttir 4
KR - NJARÐVÍK 68-57
KR: Shannon McCallum 33/11 fráköst/6 stolnir,
Helga Einarsdóttir 7/6 fráköst, Rannveig Ólafs-
dóttir 7, Björg Guðrún Einarsdóttir 6/4 fráköst,
Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 4.
Njarðvík: Lele Hardy 22/18 fráköst/6 stoðsend-
ingar, Salbjörg Sævarsdóttir 14/10 fráköst, Eva Rós
Guðmundsdóttir 9/5 fráköst, Erna Hákonardóttir
5, Svava Ósk Stefánsdóttir 3/4 fráköst
MEISTARADEILD EVRÓPU
FC BAYERN - ARSENAL 0-2
0-1 Olivier Giroud (2.), 0-2 Laurent Koscielny (86.)
Bayern komst áfram samanlagt, 3-3.
MALAGA - PORTO 2-0
1-0 Isco (43.), 2-0 Roque Santa Cruz (49.)
Malaga komst áfram samanlagt, 2-1.
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone | Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000
VINSÆLASTA KAPPAKSTURSKEPPNI
ALLRA TÍMA HEFST Á NÝ!
Nýtt keppnistímabil byrjar með hvelli í Ástralíu!
FORMÚLAN HEFST 17. MARS
Ert þú með HD sjónvarp? Tryggðu þér aðgang að
frábærri dagskrá í bestu mögulegu myndgæðum.
FÁÐU MEIRA ÚT ÚR SJÓNVARPINU
FÓTBOLTI Stelpurnar okkar náðu
að rífa sig upp og enda Algarve-
mótið á flottum 4-1 sigri á Ung-
verjum í gær en liðið hafði áður
tapað fyrir Bandaríkjunum (0-3),
Svíþjóð (1-6) og Kína (0-1) í fyrri
leikjum sínum á þessu sterka móti.
Sara Björk Gunnarsdóttir, Rakel
Hönnudóttir, Katrín Ómars dóttir
og Sandra María Jessen skoruðu
mörk íslenska liðsins í gær en
Sandra María hefur þar með skor-
að 3 mörk á aðeins 119 mínútum í
íslenska landsliðsbúningnum.
„Það var rosa gott að hafa endað
á sigri. Við bættum leik okkar
aftur og vorum ánægð með það
að enda þetta vel,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson landsliðs-
þjálfari.
„Ef ég geri upp mótið þá höfum
við lært ýmislegt af þessu eins
og það að okkur finnst undir-
búningurinn vera of stuttur. Við
komum hingað degi fyrir fyrsta
leik á móti besta liði í heimi og
það er ekki nóg að undirbúa sig
bara í einn dag fyrir svoleiðis leik
eftir að hafa ekki hist í fimm mán-
uði fram að því,“ segir Sigurður
Ragnar.
Lykilmenn í lélegu formi
Íslenska liðið tapaði fyrstu tveim-
ur leikjunum með markatölunni
1-9. „Þegar ég gerði upp þessa
fyrstu tvo leiki þá fannst mér liðið
ekki í góðu formi og margir lykil-
menn ekki í góðu spilformi,“ sagði
Sigurður Ragnar.
„Við eigum alltaf að gera
hlaupið, barist og verið í góðu
formi. Mér fannst vanta upp á það
hjá okkur á þessu móti en góðu
fréttirnar eru kannski að við
höfum fjóra mánuði til að bæta
þann þátt,“ sagði Sigurður Ragnar
sem sendir atvinnumönnum liðs-
ins skýr skilaboð.
„Leikmennirnir hjá íslensku
liðunum voru heilt yfir í betra
formi en atvinnumennirnir okkar
og það er áhyggjuefni. Einhverj-
ar eru þó að koma til baka eftir
meiðsli. Svo voru líka leikmenn
sem mér fannst geta gert betur og
hafa afsökunina að vera stíga upp
úr meiðslum eða veikindum. Þær
eiga bara að vera í betra formi og
bera ábyrgð á því sjálfar,“ sagði
Sigurður.
„Ég held að þær hafi lært heil-
mikið af þessu móti og við öll. Við
náðum að þjappa okkur vel saman
eftir fyrstu tvo leikina, áttum
góða fundi og vorum staðráðin í að
gera betur. Mér fannst þeim tak-
ast það í seinni tveimur leikjunum
því það var mikil breyting til batn-
aðar í þeim leikjum. Síðasti leik-
urinn var fínn,“ sagði Sigurður
Ragnar sem hrósaði sérstaklega
Glódísi Perlu Viggósdóttur.
Glódís Perla átti gott mót
„Glódís Perla átti mjög gott mót
og spilaði þrjá heila leiki í hafsent.
Hún verður átján ára á þessu ári
og það var mjög jákvætt og ljós
punktur,“ sagði Sigurður Ragnar.
„Næst tökum við stutta ferð
til Svíþjóðar og sjáum til hvort
við náum eitthvað að bæta okkur.
Þá erum við að spila við Svíþjóð
á þeirra heimavelli sem verður
mjög erfitt. Þá eiga okkar leik-
menn að vera komnar í örlítið
betra stand en það er líka samt
stutt í þennan leik. Svo erum við
óðum að nálgast mótið,“ sagði Sig-
urður Ragnar að lokum.
ooj@frettabladid.is
Eiga að vera í formi
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér níunda sætið í Algarve-bikarnum
með sannfærandi 4-1 sigri á Ungverjalandi í lokaleik sínum í gær.
FÉKK HRÓS Glódís Perla Viggósdóttir
lék vel á Algarve-mótinu og fékk hrós
frá þjálfaranum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
HANDBOLTI Alfreð Örn Finnsson
verður næsti þjálfari norska
úrvalsdeildarfélagsins Storhamer
en hann tekur við liðinu í sumar.
Alfreð, sem þjálfaði áður
kvennalið Gróttu og ÍBV með
góðum árangri, bætist þar með í
hóp fjölmargra íslenskra þjálfara
sem eru að þjálfa í bestu deildum
heims því norska kvennadeildin
telst ein sú sterkasta í heimi.
„Það kom mér á óvart að það
var haft samband við mig. En svo
tók þetta ekki langan tíma enda
var þetta of gott tækifæri til að
sleppa því,“ sagði Alfreð, sem
hefur þjálfað Volda sem leikur
í C-deildinni. Liðið hefur unnið
alla 22 leiki sína í sínum riðli í
deildinni í vetur.
„Alfreð er ekki þekkt nafn
meðal þjálfara í Noregi en
við erum þess fullvissir að
hann sé rétti maðurinn fyrir
okkur,“ sagði Erik Stensrud,
framkvæmda stjóri Storhamar,
við norska fjölmiðla. - esá
Gat ekki sleppt
tækifærinu