Fréttablaðið - 03.04.2013, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
12
A ðaláherslan hefur því verið á ðh j
GRÆNN APRÍL FER AF STAÐÁTAK GRÆNN APRÍL er umhverfisátak sem hefur vaxið og þróast undanfarin ár og er nú ýtt úr vör í þriðja sinn. Því er fyrst og fremst beint að því að auka meðvitund fólks um hvað það getur gert til að draga úr umhverfisáhrifum.
STEFNAN
Ein besta leiðin til að binda koltvísýr-ingsmengun er í
gegnum trjágróður. Þess vegna ákváð-um við að hrinda af stað söfnun-
inni APRÍLSKÓG-AR 2013 Stef
UMHVERFIÐÞær Ingibjörg Gréta Gísla-dóttir og Guðrún Bergmann eru verkefnastjórar fyrir Grænan apríl.
Sérblaðið Fólk tekur þátt í átakinu Grænn apríl.
Markmiðið er að kynna vöru, þekkingu og þjónustu
sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálf-
bæra framtíð á Íslandi. Lumar þú á grænni þjónustu,
vöru og/eða þekkingu sem allt of fáir vita um? Þá er
Grænn apríl eitthvað fyrir þig.
MYND/PJETUR
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING AF YFIRHÖFNUM!
15% AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM ÞESSA VIKUNA
www.visir.is Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 3. apríl 2013 | 7. tölublað | 9. árgangur
F Y R S TA
F L O K K S
Þ JÓNUSTA
OYSTER PERPETUAL DATEJUST II
Stjórn Eimskips breytist mikið
Stjórn Eimskips mun taka miklum breytingum á aðalfundi félagsins sem fram fer í dag. Frest-ur til að gefa kost á sér í stjórnina er runninn út en einungis einn af fimm stjórnarmönnum er í kjöri á aðalfundinum í dag, Richard Winston Mark d‘Abo. Sjálfkjörið verður í stjórnina í dag en auk d‘Abo eru í kjöri Gunnar Karl Guðmunds-son, stjórnarformaður AFL sparisjóðs og fyrr-verandi forstjóri Skeljungs og MP banka, Helga Melkorka Óttarsdóttir, hæstaréttar lögmaður hjá Logos, Hrund Rúdólfs dóttir, framkvæmdastjóri hjá Marel, og Víglundur Þorsteins son, fyrr-verandi stjórnarformaður BM Vallár. Stærstu eigendur Eimskips eru sjóðir á vegum banda-ríska fjárfestingarfyrirtækisins Yucaipa með samanlagt 25,3%, Lífeyrissjóður verzlunar-manna 14 57% og LBI hf með 10 4%
2 SÉRBLÖÐ
Markaðurinn | Fólk
Tækifæri felast
í samfélagsábyrgð
Vitundarvakning hefur átt sér stað
í íslensku viðskiptalífi um mikil-
vægi samfélagsábyrgðar. Fanney
Karlsdóttir hjá Símanum segir
samfélagsábyrgð snúast um að hafa
jákvæð áhrif á samfélagið.
MARKAÐURINN
FRÉTTIR
Sími: 512 5000
3. apríl 2013
77. tölublað 13. árgangur
Slitastjórn eltir Kristján
Slitastjórn Kaupþings reynir enn að
innheimta tveggja milljarða skuld
Kristjáns Arasonar vegna hlutabréfa-
kaupa í bankanum. 2
Stórvirkur raðmorðingi Brasil-
ískur læknir er grunaður um að hafa
valdið dauða að minnsta kosti 300
sjúklinga. 8
SKOÐUN Mikilvægt er að foreldrar
uppfræði börn sín, skrifa stjórnar-
menn Blátt áfram. 13
MENNING Spilavinir eru fluttir í nýtt
húsnæði og fengu hjálp viðskiptavina
við fluttningana. 26
SPORT Kári Kristján Kristjánsson er
laus við æxli og spilar með íslenska
landsliðinu gegn Slóveníu í dag. 22
STJÓRNSÝSLA Alls voru skráðar
8.730 nafnabreytingar hjá þjóð-
skrá Íslands á síðasta ári. Þetta
er sögulegt met í nafnabreyting-
um innan kerfisins en til saman-
burðar má nefna að á fimm ára
tímabilinu á undan, frá árinu 2007
til 2011, voru 13.213 breytingar
skráðar á nöfnum Íslendinga.
Algengustu breytingar á nöfn-
um eru á kenninöfnum, sem oftar
eru nefnd föðurnöfn. Þá er það
að færast í vöxt að Íslendingar
vilji kenna sig við bæði móður og
föður, en það gengur misvel að
fá slíkt í gegn þar sem leyfilegur
fjöldi stafa í nafni er einungis 34
samkvæmt kerfi þjóðskrár. Því
þurfa sumir að sætta sig við að
kenna sig við upphafsstaf annars
foreldris á undan kenninafni sínu,
sökum stafafjölda.
Samkvæmt reglum þjóðskrár
má breyta nafninu sínu aðeins
einu sinni nema sérstakar ástæð-
ur séu fyrir hendi. Nafnbreyt-
ingar eru í flestum tilvikum
gjaldskyldar, til dæmis
ef verið er að fella niður
eða taka upp eiginnafn,
taka á upp eiginnafn
foreldris í eignarfalli
sem millinafn eða
kenna feðrað barn
við stjúpforeldri.
Gja ld veg n a
nafnabreytinga
er 6.600 krónur.
Hafi verið tekið gjald vegna
allra nafnabreytinganna árið 2012
þýðir það að Íslendingar greiddu
tæpar 58 milljónir króna fyrir að
láta breyta nöfnum sínum það ár.
- sv / sjá síðu 10
8.730 breyttu um nafn í fyrra
Um tvö prósent þjóðarinnar breyttu um nafn í þjóðskrá í fyrra. Aldrei hafa breytingar verið jafn tíðar. Margir
ósáttir við reglur þjóðskrár um stafafjölda. Rúmlega 13.000 breytingar voru skráðar á árunum 2007 til 2011.
Nafnabreytingar systkinanna Steinars Óla og Lindu gengu í gegn hjá þjóð-
skrá á mánudaginn síðastliðinn, á afmælisdegi móður þeirra heitinnar.
Þau heita nú Steinar Óli Bjarkar Jónsson og Hólmfríður Linda Bjarkar,
en móðir þeirra, Björk Dúadóttir, hefði orðið 62 ára þann 1. apríl.
„Við gerðum þetta í sameiningu til að heiðra minningu móður okkar
og votta henni virðingu,“ segir Steinar Óli. „Við erum hæstánægð
með að okkur sé nú fært að nota nafn móður okkar sem eins konar
ættarnafn.“
➜ Heiðra minningu móður sinnar
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk
YFIR 50 GERÐIR Á LAGER
FARTÖLVUR
15,6” FARTÖLVUR FRÁ
69.990
15,6“
BLINDUR HJÓLREIÐAMAÐUR Halldór Sævar Guðbergsson lætur fötlun sína ekki aftra sér þegar hann þeysist um á reiðhjóli
eða skíðum, en hann missti alla sjón í september síðastliðnum. Í gær fór hann í hjólatúr um höfuðborgina með aðstoðarmanni
sínum, Guðnýju Einarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bolungarvík 4° SA 3
Akureyri 4° SA 2
Egilsstaðir 3° SA 2
Kirkjubæjarkl. 5° ANA 2
Reykjavík 6° SA 4
Hægur vindur víða um land, bjart með
köflum vestan og norðan til en lítilsháttar
skúrir sunnanlands. Hiti 0 til 8 stig. 4
KJARAMÁL Margir sjúkraþjálf-
arar á Grensásdeild, endurhæf-
ingardeild Landspítala, íhuga að
segja upp störfum ef stofnana-
samningur fæst ekki endurnýj-
aður.
Þetta kemur fram í grein Ídu
Brögu Ómarsdóttur og Laufeyjar
S. Hauksdóttur, sjúkraþjálfara á
deildinni, í Fréttablaðinu í dag.
„Eftir yfirlýsingu velferðar-
ráðherra um að kvennastéttir
innan Landspítala fengju leiðrétt-
ingu launa gætti fyrst nokkurrar
bjartsýni meðal sjúkraþjálfara en
lítið virðist um efndir og svörin
þau að engir peningar séu til,“
segir meðal annars í grein þeirra.
Þær segja jafnframt að sjúkra-
þjálfarar hafi dregist aftur úr
öðrum sambærilegum háskóla-
stéttum. Uppsagnir sjúkraþjálf-
ara þýði að sjúklingar fái ekki þá
sérhæfðu þjónustu sem þar sé í
boði. Það hafi alvarlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir sjúk-
linga og annað starfsfólk, segja
þær Ída og Laufey, sem skora á
stjórnvöld að veita nú þegar því
fjármagni til LSH sem nægir til
að leiðrétta misræmi í launum
innan spítalans. - shá / sjá síðu 12
Óánægja á Grensásdeild:
Sjúkraþjálfarar
íhuga uppsögn
LÖGREGLUMÁL Amfetamínbylgja geng-
ur nú yfir landið, að sögn yfirmanns
fíkniefnadeildar lögreglunnar á Suður-
nesjum. Frá áramótum hefur lögregla
og tollgæsla í Leifsstöð fjórum sinnum
lagt hald á amfetamínsendingar sem
eru tvö kíló eða meira.
Við það bætist risavaxið amfetamín-
mál sem kom upp í janúar hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu. Þá komu
tuttugu kíló af amfetamíni og 1,7 lítrar
af amfetamínbasa til landsins í póst-
sendingum.
„Þetta er búið að vera svolítið
afbrigðilegt ár og sérstaka athygli
vekur þetta magn af amfetamíni,“ segir
Guðmundur Baldursson hjá lögreglunni
á Suðurnesjum.
Í gær greindi lögreglan á Suður-
nesjum frá því að Íslendingur á
fimmtugs aldri hefði setið í gæsluvarð-
haldi frá því í janúarlok eftir að 2,4 kíló
af amfetamíni fundust falin í töskubotni
hans við komuna frá Berlín.
Fyrr í janúar var Pólverji hand tekinn
með tvö kíló af amfetamíni í Leifsstöð,
tveir Pólverjar til viðbótar voru einnig
gripnir þar í janúar með samtals þrjú
kíló af amfetamíni í fórum sínum og
í lok febrúar var Spánverji tekinn við
komuna frá París með tæp þrjú kíló af
amfetamíni í fórum sínum.
„Við höfum ekki séð svona
amfetamín bylgju um nokkurt skeið,“
segir Guðmundur. Hann kunni ekki
á henni einhlíta skýringu en kveðst
standa stuggur af henni. „Það er oft
sagt að svona amfetamínbylgjum fylgi
aukið ofbeldi í samfélaginu þótt það
hafi ekki verið rannsakað hér.“ - sh
Fjórar stórar amfetamínsendingar hafa verið teknar í Leifsstöð á árinu:
Amfetamínbylgja ríður yfir Ísland
10 kg
af amfetamíni hefur
lögreglan á Suður-
nesjum gert upp-
tæk í Leifsstöð frá
áramótum.