Fréttablaðið - 03.04.2013, Qupperneq 4
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
➜ Svo fæ ég
bara fyrirmæli
um hvað ég á
að gera. Fara til
hægri, vinstri,
stoppa eða
renna.
217,2335
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,16 123,74
187,2 188,12
158,06 158,94
21,2 21,324
21,142 21,266
18,986 19,098
1,3195 1,3273
184,81 185,91
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
02.04.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
FÓLK Halldór Sævar Guðbergsson vakti
athygli annarra skíðaiðkenda á Hlíðarfjalli
um páskana enda íklæddur skærgulu vesti
þar sem varað var við því að þar væri blind-
ur skíðamaður á ferð. Á eftir Halldóri fór
aðstoðarmaður hans einnig klæddur í gult
vesti, merktur sem leiðsögumaður.
„Ég var svolítið á skíðum sem krakki
þegar ég hafði smá sjón og fékk þá góða
þjálfun. Ég byrjaði svo á þessu aftur fyrir
um sex árum og var fljótur að ná þessu
aftur. Þetta er svona svipað og að læra að
hjóla, maður gleymir þessu aldrei.“
Halldór fæddist blindur á vinstra auga en
hafði lengst af 10 prósenta sjón á því hægra.
Hann missti þó sjónina algjörlega í septem-
ber á síðasta ári. Halldór lætur sjónleysið
ekki aftra sér frá því að stunda útivist en
auk þess að fara á skíði stundar hann hjól-
reiðar af kappi. „Það hvarflaði aldrei annað
að mér en að halda þessu áfram þó að sjónin
færi alveg. Ég veit af blindu fólki erlendis
sem stundar skíði þannig að ég vissi að
þetta væri hægt.“
Helgi á mynd af brekkunum í Hlíðarfjalli
í höfðinu á sér frá því áður en hann missti
sjónina. Hann segir það hjálpa sér þegar
hann skíði niður fjallið og veiti ákveðið
öryggi. „Þetta gæti orðið erfiðara ef ég fer
á staði sem ég hef aldrei komið á áður en ég
skíða ekki einn. Ég þarf alltaf að hafa með
mér aðstoðarmann sem stýrir mér í raun-
inni með orðum. Aðstoðarmenn mínir þurfa
að vera mjög vanir skíðamenn. Þeir skíða
eins nálægt mér og þeir geta, oftast fyrir
aftan mig, og reyna að hafa sem minnst bil
á milli okkar. Svo fæ ég bara fyrirmæli um
hvað ég á að gera. Fara til hægri, vinstri,
stoppa eða renna. Það tekur tíma bæði fyrir
aðstoðarmanninn að þjálfa sig upp og fyrir
mig að læra að treysta aðstoðar manninum
og fyrir hann að treysta mér.“
Að sögn Halldórs hefur allt gengið stór-
slysalaust fyrir sig í brekkunum þótt það
hafi komið fyrir að hann reki sig í aðra eða
lendi í „smápústrum“, eins og Halldór orðar
það. Hann vonast til að vera hvatning fyrir
aðra sem hafa áhuga á að stunda skíði.
„Það er svo gaman að vera úti í nátt-
úrunni með fjölskyldunni. Að sitja ekki bara
heima á meðan dóttirin og konan fara á
skíði heldur vera með og taka þátt.“
hanna@frettabladid.is
Blindur rennir sér
á skíðum og hjólar
Blindur maður rennir sér á skíðum og stundar hjólreiðar af miklum móð. Hann
segir samhæfingu og traust lykilatriði. Ánægjulegt að geta stundað íþróttir með
fjölskyldunni. Hann vonast til að fleiri fari á skíði þrátt fyrir sjónleysi.
ÁRÉTTING
Umferðarstofa vill árétta að starfsmað-
ur Umferðarstofu annast ekki skoðun
eða úttekt á metanbreytingum bifreiða,
sem Jón Jónsson bifvélavirki hélt fram
í frétt blaðsins í gær. „Slíkt eftirlit er á
hendi faggiltra skoðunarstöðva,“ segir í
tilkynningu.
HALLDÓR Á HJÓLI Hann lætur sjónleysið ekki aftra sér frá því að stunda
útivist á borð við skíðamennsku og hjólreiðar. Hér er hann með aðstoðar-
manni sínum, Guðnýju Einarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NETLEIKUR Varðstaða við Torg hins
himneska friðar er væntanlega ekki eitt
þeirra verkefna sem spilarar leysa af
hendi í tölvuleiknum. NORDICPHOTOS/AFP
KÍNA Kínversk stjórnvöld virð-
ast hafa gefist upp á baráttu
sinni gegn tölvuleikjum og
hefur skotleikurinn Glorious
Mission, sem þróaður var
fyrir kínverska herinn, nú náð
miklum vinsældum.
Í leiknum þarf að takast á
við ýmsar aðstæður sem beðið
gætu kínverskra hermanna.
Í umfjöllun BBC um leikinn
kemur fram að óvinahermönn-
um svipi óneitanlega til banda-
rískra hermanna og banda-
manna þeirra, og að áróður
kínverska hersins skíni þar
augljóslega í gegn.
Leikurinn er spilaður í gegn-
um netið og hefur verið hlaðið
niður meira en milljón sinnum
frá því hann var settur á netið
fyrir nokkrum mánuðum síðan.
- bj
Kínverjar snúa við blaðinu:
Tölvuleikur frá
hernum vinsæll
MJANMAR, AP Að minnsta kosti
þrettán börn létust í eldsvoða í
Rangoon, stærstu borg Mjanmar,
í gær. Eldsvoðinn varð í mosku
sem hýsti skóla og heimavist og
hefur lögreglan sagt að eldurinn
hafi kviknað af völdum rafmagns-
bilunar. Þrátt fyrir það hafa sjón-
arvottar sagt alla bygginguna hafa
lyktað af dísil og telja að kveikt
hafi verið í.
Sextán börn eru sögð hafa sofið
á svefnlofti og orðið innlyksa
þegar eldurinn náði í stigann að
loftinu. Þrír drengir stukku út
en hin börnin brunnu inni. Mikil
átök hafa verið á milli búddista
og múslíma í Mjanmar, ekki síst í
Rangoon undanfarið. - þeb
Múslíma grunar íkveikju:
Þrettán börn
létust í eldsvoða
EVRÓPUMÁL Atvinnuleysi í
Evrópu sambandinu hélt áfram að
aukast í febrúar síðastliðnum.
Atvinnuleysið mælist nú 10,9
prósent en var 10,8 prósent í
janúar. 1,8 milljónum fleiri eru án
vinnu nú en í febrúar í fyrra.
Innan evrusvæðisins hefur fjöldi
atvinnulausra haldist stöðugur
frá upphafi ársins. Tólf prósent
fólks á svæðinu eru án atvinnu og
hafa aldrei verið fleiri. Atvinnu-
vandi ungs fólks í álfunni heldur
áfram að aukast og í febrúar voru
23,5 prósent fólks undir 25 ára án
vinnu. - þeb
Ungt fólk áfram í vanda:
Tæpur fjórð-
ungur án vinnu
STJÓRNSÝSLA
Nýr ráðuneytisstjóri
Stefán Thors hefur verið skipaður ráðu-
neytisstjóri í umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytinu. Stefán á að baki áralangt
starf í opinberri stjórnsýslu. Hann var
skipaður skipulagsstjóri ríkisins árið
1985 og forstjóri Skipulagsstofnunar 1.
janúar 2011.
BANDARÍKIN Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti í gær sögulegan sátt-
mála um reglur um vopnasölu. Unnið hefur
verið að sáttmálanum í tæpan áratug.
154 aðildarríki greiddu atkvæði með til-
lögunni en þrjú ríki gegn, Sýrland, Íran og
Norður-Kórea. 23 ríki sátu hjá í atkvæða-
greiðslunni í gær. Samkvæmt sáttmálanum
mega ríki ekki flytja út hefðbundin vopn í
trássi við vopnasölubönn. Þá mega ríki ekki
flytja út vopn þangað sem þau yrðu notuð í
þjóðernishreinsunum, glæpum gegn mann-
kyni, stríðsglæpum eða hryðjuverkum.
Ríki eiga samkvæmt sáttmálanum að hafa
eftirlit með þessu og koma í veg fyrir að
vopn þeirra nái á svartan markað.
„Við skuldum þeim milljónum, oft þeim
berskjölduðustu í samfélaginu, sem hafa
þurft að lifa í skugga óábyrgrar og ólög-
legrar vopnasölu milli landa,“ sagði sendi-
herra Ástralíu hjá SÞ, Peter Woolcott.
Rússar og Kínverjar voru meðal þeirra
sem sátu hjá, en bæði ríkin eru meðal
þeirra sem mest flytja út af vopnum. Rúss-
ar sögðu vanta bann við því að selja öðrum
en ríkjum vopn og fulltrúar Sýrlands voru
á sama máli, enda óttast þeir vopnasölu til
uppreisnarmanna þar. - þeb
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna vill að ríki hafi eftirlit með vopnasölu:
Samþykktu vopnasölusáttmála
KÝPUR, AP Fjármálaráðherra
Kýpur, Michalis Sarris, sagði af
sér embætti í gær. Haris Georgi-
ades atvinnumálaráðherra hefur
tekið við ráðuneytinu.
Fyrr í gær var greint frá því
að þrír dómarar myndu rannsaka
aðdraganda hrunsins á Kýpur.
Nikos Anastastiades forseti
greindi frá rannsókninni. Hann
sagði engan undanskilinn rann-
sókn, en fram hafa komið ásakan-
ir um að fjölskyldumeðlimir hans
hafi komið peningum úr landi - þeb
Kreppan á Kýpur:
Fjármálaráð-
herrann hættir
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
Fremur hægur vindur um allt land.
HELDUR KÓLNAR á landinu næstu daga og frystir norðan- og austanlands
seinnipart vikunnar. Hæglætisveður verður víða um land og lítilsháttar úrkoma en
bjart með köflum vestan og norðanlands í dag og birtir heldur sunnan til á morgun.
4°
3
m/s
5°
5
m/s
6°
4
m/s
6°
7
m/s
Á morgun
Hæg breytileg átt um allt land.
Gildistími korta er um hádegi
2°
-2°
0°
-4°
-4°
Alicante
Aþena
Basel
19°
21°
15°
Berlín
Billund
Frankfurt
4°
4°
7°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
10°
4°
4°
Las Palmas
London
Mallorca
23°
5°
19°
New York
Orlando
Ósló
6°
27°
2°
París
San Francisco
Stokkhólmur
7°
17°
5°
5°
2
m/s
4°
5
m/s
3°
2
m/s
0°
6
m/s
4°
2
m/s
4°
2
m/s
1°
2
m/s
7°
2°
6°
3°
2°
7.407
milljarðar króna
er áætluð
upphæð vopna-
sölu í heiminum