Fréttablaðið - 03.04.2013, Síða 6

Fréttablaðið - 03.04.2013, Síða 6
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað plagar slökkviliðið á höfuð- borgarsvæðinu þessa dagana? 2. Hvað styrkir kenningar um íslensk- an uppruna Lewis-tafl mannanna? 3. Hvað hét Mammút upphafl ega? SVÖR 1. Áhyggjur af þurrki og sinueldavá. 2. Fund- ur rostungshausa á Snæfellsnesi. 3. ROK. Save the Children á Íslandi Ráðstefna um framtíð húsnæðislána á Íslandi Setning Höskuldur Ólafsson, formaður SFF. Danska húsnæðislánakerfið Karsten Beltoft, framkvæmdastjóri Realkreditforeningen. Sjónarhorn ASÍ Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Vandamál og valkostir á íslenska fasteignalánamarkaðnum Ásgeir Jónsson, hagfræðingur, kynnir meginniðurstöður skýrslunnar Nauðsyn eða val – verðtrygging, vextir og verðbólga á Íslandi. Sjónarhorn ÍLS Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs. Umbætur á íslenska fasteignalánamarkaðnum Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur SFF. Pallborðsumræður Pallborðsumræður með formönnum stjórnmálaflokkana sem eiga sæti á Alþingi. Auðbjörg Ólafsdóttir, hagfræðingur, stjórnar umræðum. Fundarstjóri: Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ. Skráning á ráðstefnuna fer fram á vef Samtaka fjármálafyrirtækja www.sff.is Ráðstefna Alþýðusamband Íslands, Íbúðalánasjóðs og Samtaka fjármálafyrirtækja um fasteignalán. Ráðstefnan fer fram á Hilton Nordica þann 4. apríl 2013. Ráðstefnan hefst 8:30 og stendur til 11:15. NÁTTÚRA „Þetta er hrina í snarpari kantinum,“ segir Benedikt Ófeigs- son, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um jarðskjálftahrinu sem nú stendur yfir austur af Grímsey. Skjálfti af stærðinni 5,5 varð klukkan eitt í fyrrinótt og í kjöl- farið mældust mjög margir eftir- skjálftar. Sá stærsti var 4,3 að stærð en stór skjálfti upp á 4,7 varð á svipuðum slóðum í gær- morgun. Stærsti skjálftinn fannst vel víða á Norðurlandi og fékk Veður- stofan tilkynningar frá Grímsey, Húsavík, Raufarhöfn, Mývatns- sveit, Akureyri og Sauðárkróki. Almannavarnir lýstu yfir óvissustigi á svæðinu vegna skjálftanna í gær. „Upptök skjálftans eru á brota- belti sem er hluti af flekaskilum sem tengja norðurgosbeltið við Kolbeinseyjarhrygginn. Þarna verða hrinur og þarna verða stór- skjálftar annað slagið. Hrina af þessari stærðargráðu verð- ur kannski á tíu til fimmtán ára fresti, þetta er bara það sem við er að búast,“ segir Benedikt. Erfitt er að spá fyrir um ein- hvers konar framhald á skjálfta- hrinunni, en hrinur geta varað allt frá nokkrum dögum til nokk- urra vikna. „Það geta alltaf komið stærri skjálftar og þetta getur færst. Flekaskilin liggja suðaustur í Axarfjörð og menn geta búist við skjálftum sunnar og austar en þar sem þessi varð. Hvort þessi hrina kemur af stað einhverri atburða- rás eða ekki höfum við hreinlega ekki forsendur til að meta. Við þurfum bara að fylgjast vel með því.“ thorunn@frettabladid.is Jarðskjálftahrina í snarpari kantinum Jarðskjálftahrina stendur nú yfir austur af Grímsey. Stærsti skjálftinn mældist 5,5 á Richter en engar skemmdir urðu vegna hans svo vitað sé. Hrinur af þessu tagi verða með reglulegu millibili og fylgjast verður vel með framhaldinu. STÉTTARFÉLÖG Einn frambjóðenda til formanns í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur kært kosninguna sem fram fór í mars. Niðurstaðan var kynnt 14. síðasta mánaðar, en þá kom í ljós að Ólaf- ur G. Skúlason hjúkrunarfræðing- ur hafði verið hlutskarpastur sex frambjóðenda. Einu atkvæði mun- aði á honum og næsta manni. Elsa Björk Friðfinnsdóttir, frá- farandi formaður félagsins, segir að kjörnefnd félagsins fjalli um kæruna sem kom fram fimmtu- daginn 21. mars. Á þriðjudeginum þar á undan hafði stjórn félagsins þegar óskað eftir áliti lögmanns á lögmæti kosningarinnar vegna meintra ágalla á skriflegum hluta hennar. Kosningin var bæði skrif- leg og rafræn. Álit lögmannsins liggur fyrir en stjórn félagsins ákvað að gera það ekki opinbert fyrr en kjörnefnd hefði lokið skoðun sinni. Hún hefur þó fengið álitið til að styðj- ast við. Elsa segist búast við að kjörnefnd kveði í þessari viku upp úrskurð um lög- mæti formanns- kosningarinnar. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga fj a l l a ð i u m málið á fundi sínum í gær. „Auðvitað er ekki gott þegar svona aðstæður koma upp og verður að vera ljóst að for maður í svona félagi sé rétt kjörinn, sér í lagi þegar munar bara einu atkvæði,“ segir Elsa. Ólafur G. Skúlason segist ekk- ert hafa heyrt, fremur en aðrir frambjóðendur, um hvar málið standi eftir að ákveðið var að kalla eftir lögmannsáliti og kæra kom fram. Hann segir nokkra óánægju meðal hjúkrunarfræðinga vegna þess hve langan tíma þessi skoð- un hafi tekið. Formannsskipti í félaginu eru fyrirhuguð í byrjun maí. - óká Frambjóðandi kærði kosningu þar sem einu atkvæði munaði í formannskjöri hjúkrunarfræðinga: Kjörnefndin hefur fengið álit lögmanns ÓLAFUR G. SKÚLASON SJÁVARÚTVEGUR Síldarvinnslan tók á móti rúmlega 160 þúsund tonnum af loðnu á nýliðinni vertíð. Afurð- ir loðnuvertíðarinnar hjá fyrir- tækinu námu rúmlega 53 þúsund tonnum, þar af voru rúmlega 21 þúsund tonn frystar afurðir. Vertíðinni lauk skömmu fyrir páska. Heildarkvóti á vertíðinni var um 570 þúsund tonn og komu liðlega 463 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa. Öll þrjú loðnuveiðiskip Síldar- vinnslunnar öfluðu vel á vertíð- inni. Börkur NK landaði 28.746 tonnum og Beitir litlu minna, eða 27.914 tonnum. Birtingur NK landaði 15.134 tonnum en hóf ekki veiðar fyrr en í byrjun febrúar þegar ákveðið var að bæta við þann kvóta sem áður hafði verið gefinn út. Alls voru fryst 19.264 tonn af heilli loðnu fyrir ýmsa markaði í fiskiðjuverinu í Neskaupstað, auk 909 tonna af loðnuhrognum. Þá voru unnin 1.120 tonn af loðnu- hrognum í Helguvík í samvinnu við Saltver ehf. Fiskimjölsverksmiða Síldar- vinnslunnar á Neskaupstað tók á móti 69.400 tonnum; á Seyðisfirði var tekið á móti 31.500 tonnum og 28.155 tonnum í verksmiðju fyrir- tækisins í Helguvík. - shá Síldarvinnslan framleiddi 53 þúsund tonn af afurðum á loðnuvertíðinni: Tóku á móti 160.000 tonnum NESKAUPSTAÐUR Tugir þúsunda tonna berast að landi á vertíðinni. MYND/KRISTÍN SVANHVÍT HÁVARÐSDÓTTIR JARÐSKJÁLFTAHRINA AUSTUR AF GRÍMSEY Skýringar Brotabelti og fl ekaskil Jarðskjálft ar Stærsti skjálft inn Þéttbýlisstaðir 5,5EYJAFJARÐARÁLL GRÍM SEYJARGRUNN Ö XA FJA R Ð A R D JÚ P EYJAFJÖ RÐ U R SKJÁLFANDI ÖXA RFJ ÖRÐ UR TJÖ RN ES MELRAKKASLÉTTA Húsavík Siglufj örður Grímsey Kópasker Raufarhöfn Ólafsfj örður Dalvík VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.