Fréttablaðið - 03.04.2013, Side 10

Fréttablaðið - 03.04.2013, Side 10
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Hyundai Santa Fe Comfort 2,2 dísil, sjálfskiptur. Verð 7.650 þús. kr. Eyðsla 6,6 l/100 km* HYUNDAI SANTA FE SPARNEYTINN D SILJEPPI NEW THINKING. NEW POSSIBILITIES. Kaupt ni 1 - 210 Garðabæ 575 1200 - www.hyundai.is Verið velkomin í reynsluakstur * M ið as t vi ð bl an da ða n ak st ur s am kv æ m t fr am le ið an da E N N E M M / S ÍA / N M 4 6 9 4 1 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf. Verð frá kr. 39.900 Ótrúle gt tilb oð! 2 fyrir 1 til Prag 25. apríl Ótrúlegt tilboð - Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Prag 25. apríl í 4 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni stendur. Verð kr. 39.900 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 25. apríl í 4 nætur. Netverð á mann. Verð áður kr.79.800. Verðdæmi fyrir gistingu: Kr. 17.900 í tvíbýli á hótel ILF *** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 30.300 Kr. 31.600 í tvíbýli á hótel Park INN **** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 60.400 STJÓRNSÝSLA Ólafur Steinar missti ættarnafn sitt á pappírum þegar þjóðskrá var tölvuvædd, þar sem nafnið var of langt fyrir kerfið. „Þegar ég varð átján ára sóttist ég eftir því að fá þetta leiðrétt,“ segir Ólafur, sem þurfti að lokum að leita í gamlar kirkjubækur til að sýna fram á að hann hefði verið skírður upprunalega nafninu sínu. Hann var skírður Ólafur Steinar Kristjánsson Þorvaldz en ættarnafnið strokaðist út árið 1986 sökum tæknilegra ann- marka þjóðskrár. „Ég sannaði að ég er skírður þessu nafni og þeir enduðu á því að leiðrétta það, sem var vesen því seta er ekki lengur viðurkenndur stafur í íslenska stafrófinu. Ég fékk þetta í gegn að lokum og nú heita báðir strákarnir mínir nafninu og bróð- ir minn ætti að geta þetta ef hann drattaðist til þess eftir allt erfiðið sem ég hef gengið í gegnum,“ segir Ólafur á léttum nótum. Ninna Karla Katrínardóttir bar áður nafnið Ása Ninna Katrínardótt- ir. „Ég notaði Ásunafnið lítið sem ekkert og það fór í raun í taugarn- ar á mér að hafa það þarna,“ segir Ninna. „Fólk greip yfirleitt fyrra nafnið og ég var því yfirleitt kölluð Ása, sem mér fannst leiðinlegt því Ninna er að mínu mati afskaplega fallegt nafn og ég fékk það í höfuðið á ömmu minni.“ Ninna lét því verða af breytingunni og lét í leiðinni kenna sig við stjúpföður sinn, Karl. Sólveig Ása B. Tryggvadóttir vildi láta kenna sig við móður sína, Björgu. Hún fékk þó þau svör frá þjóðskrá að þar sem nafnið væri orðið of langt þyrfti hún að segja skilið við Ásunafnið til að passa inn í kerfið. „Upphaflega ætlaði ég að vera Bjargar-Tryggvadóttir, en þar sem þetta varð svo mikið vesen endaði ég á einu litlu B-i,“ segir Sólveig. „Það er ansi fúlt að stafafjöldinn sé svona takmarkaður.“ sunna@frettabladid.is Þurfti að sanna nafn sitt með kirkjubókum Fjölskyldutengsl eru aðalástæða þess að fólk breytir nafni sínu í þjóðskrá. Ungur maður þurfti að leita í kirkjubækur til að fá nafn sitt leiðrétt. Kona þurfti að láta upphafsstaf móður sinnar nægja og er ósátt við hámarksstafafjölda kerfisins. BREYTINGAR Í NÁND? Fjölskylduheiður er ein aðalástæða þess að fullorðnir Íslendingar ákveða að breyta nöfnum sínum. Þó heita langflestir sama nafninu allt sitt líf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég fékk þetta í gegn að lokum og nú heita báðir strákarnir mínir nafninu og bróðir minn ætti að geta þetta ef hann drattaðist til þess eftir allt erfiðið sem ég hef gengið í gegnum. Ólafur S.K. Þorvaldz

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.