Fréttablaðið - 03.04.2013, Qupperneq 14
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI HÓLM ÓSKARSSON
frá Þúfum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
mánudaginn 25. mars sl. Útförin fer fram
frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 5. apríl kl. 14.00. Blóm og
kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki.
Erla E. Steingrímsdóttir
Óskar Stefán Gíslason Adela Y. Magno
Gísli Guðberg Gíslason María Þóra Sigurðardóttir
Á. Rúnar Hólm Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
VILHJÁLMUR ÓLI VALSSON
stýrimaður/sigmaður,
Furugrund 54,
lést laugardaginn 30. mars á Krabbameins-
deild Landspítalans við Hringbraut. Útför
hans fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
12. apríl kl. 11.00.
Berglind Jónsdóttir
Kristberg Óli Vilhjálmsson Dagný Heiða Vilhjálmsdóttir
Bjarki Freyr Vilhjálmsson Guðný Sunna Vilhjálmsdóttir
Valur Heiðar Einarsson Dagný Heiða Vilhjálmsdóttir
Margrét Viðarsdóttir
Einar Heiðar Valsson Magdalena Ólafsdóttir
Halldóra Sigrún Valsdóttir
Birgir Snær Valsson Erla Heiðveigardóttir
Okkar elskulega
ÞÓRHILDUR JÓNSDÓTTIR
TÓTA
leikskólakennari,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi föstudaginn
29. mars sl. Hún verður kvödd í Fossvogs-
kirkju föstudaginn 5. apríl klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
reikning til styrktar börnum hennar í Arion banka,
0372-13-111075 kt. 071189-2449.
Steinn Skaptason
Erla Rún Þórhildardóttir Jóhann Páll Kulp
Urður Mist Þórhildardóttir
Björn Máni Björnsson
Jóhanna Björnsdóttir
systkini og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar,
ÁRNÝ SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR
Digranesvegi 18, Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 23. mars. Útför hennar fer
fram frá Digraneskirkju föstudaginn 5. apríl
kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Hilmarsdóttir
Jón Hilmarsson
Sigrún Hilmarsdóttir
Katrín Hilmarsdóttir
Þórey Hilmarsdóttir
Steinunn Hilmarsdóttir
Þorsteinn Hilmarsson
Hilmar Hilmarsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR
forvörður,
Austurbrún 2,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
22. mars sl., verður jarðsungin frá Áskirkju
miðvikudaginn 3. apríl kl. 13. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á MND félagið.
Sigurjón Þ. Ásgeirsson
Hlynur V. Ásgeirsson Patricia Bono
Þórunn H. Óskarsdóttir Sigurður A. Jónsson
Hrafnkell S. Óskarsson Arndís B. Huldudóttir
Margrét L. Óskarsdóttir Rúnar Salvarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Útför elskulegrar systur okkar og mágkonu,
KRISTÍNAR BRAGADÓTTUR
Efstalandi 4, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu 16. mars, fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 3. apríl, kl. 15.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Geðhjálp.
Angela Baldvins Stefán Valur Pálsson
Grímhildur Bragadóttir Haukur Guðlaugsson
Baldur B. Bragason Esmat Paimani
Halldór Bragason
Steingrímur Bragason Sesselja Einarsdóttir
Kormákur Bragason Þórdís Pálsdóttir
Matthías Bragason Gréta Gunnarsdóttir
Þorvaldur Bragason Ólöf Sighvatsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SÓLVEIG MARÍA BJÖRNSDÓTTIR
lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði
26. mars síðastliðinn. Útför hennar fer fram
frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 4. apríl
kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði.
Lúðvík Duke Wdowiak
Barbara Wdowiak Einar Pálmi Jóhannsson
Terry Wdowiak Juan Marquez
Gunnar Bill Björnsson Sigrún Guðmundsdóttir
Þorgeir Sigurður Þorgeirsson Karina (Chaika) Þorgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
ÞÓRARINN ELDJÁRN Hér gægist skáldið upp úr eigin barnabókahrúgu. Svo er að minnst kosti ein í smíðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Ég hef gaman af þegar börn fara
með heilu bálkana eftir mig utan að og
segjast hafa lært þá óvart,“ segir lista-
skáldið Þórarinn Eldjárn, en eftir hann
liggja margar bækur með bundnu
máli fyrir börn. Í gær, á degi barna-
bókarinnar, var hann heiðraður fyrir
þau höfundarverk með hálfri milljón
króna og verðlaunagripnum Sögu-
steini. Samtökin IBBY á Íslandi veita
verðlaunin árlega og að þessu sinni
var það Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti Íslands, sem afhenti
þau. Valnefndina skipuðu þær Brynja
Baldursdóttir, íslenskufræðingur og
kennari, Dagný Kristjánsdóttir pró-
fessor og Ragnheiður Gestsdóttir, rit-
höfundur og myndlistarmaður.
Af verkum Þórarins fyrir börn má
nefna Stafrófskver og ljóðabækurnar
Óðfluga, Heimskringla, Halastjarna,
Grannmeti og átvextir, Gælur, fælur
og þvælur og Árstíðirnar. Þrjár þær
fyrstnefndu komu út á tíunda ára-
tug síðustu aldar og hafa síðan verið
gefnar út í einni bók sem heitir Óð-
halaringla, en nafnið gefur góða mynd
af orðasmíð skáldsins. „Sum orðin sem
ég bý til eru nytjaorð en önnur eru
bara bull og þvæla sem er alveg bráð-
nauðsynlegt að hafa með,“ út skýrir
hann.
Eftir Þórarin liggur líka nútímaút-
gáfa af Völuspá á aðgengilegu máli
fyrir börn og talvert af barnabóka-
þýðingum. Hann kveðst hafa gaman
af að skrifa fyrir börn, enda séu þau
þakklátir lesendur. Ekki síst sé gaman
að yrkja fyrir þau, þar sem hljóðstaf-
ir og rím eigi yfirleitt greiðan aðgang
að þeim.
Þórarinn kveðst hafa prófað efni
bókanna á eigin börnum og barna-
börnunum. „Svo koma alltaf ný börn,“
bendir hann á og kveðst aðspurður
með enn eina barnabók í undirbúningi
en útgáfuárið er ekki ákveðið.
gun@frettabladid.is
Sum orðin sem ég bý
til eru bull og þvæla
Þórarinn Eldjárn rithöfundur tók við verðlaununum Sögusteini í gær fyrir framlag sitt til
barnabókmennta. Vigdís Finnbogadóttir afh enti þau fyrir hönd IBBY.
Í ávaxtadeildinni er úrvalið mest
af öllu því gómsæti er mér þykir best.
Þar finn ég sviðaldin, sæfíkjur, nöldrur,
sigurber, fríðaldin, lítrónur, skvöldrur.
Síaldin, flatber og ofurepli,
umsínur grænar með bleikum depli.
Goðdalíettur og grammófínur,
groddur og snjóþrúgur, andrésínur.
Brimsætar hnuðlur og beiska tota,
biðlistasúrur og útúrsprota.
Gammsínur mjúkar og meðalónur,
menningarfíkjur og aðaltrónur.
Úlfaldinkjarna, ráðber og reskjur,
ritepli, myndber og granatsveskjur.
Veimiltítur og vitsmuníerur,
viðloður, æsiber, sýndarperur.
Úr bókinni Grann-
meti og átvextir
Harry S Truman, þáverandi forseti Bandaríkjanna, skrifaði undir áætlun um aðstoð við
stríðshrjáð lönd Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina. Áætlunin var skipulögð af banda-
ríska utanríkisráðuneytinu og nefnd eftir þáverandi utanríkisráðherra, George Marshall,
sem átti hugmyndina. Sjóðnum sem stofnaður var í þessu skyni var ætlað að efla efna-
hagslegan uppgang í löndum Evrópu og að vera liður í því að auka samvinnu milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna.
Alls þáðu sextán þjóðir boð Bandaríkjanna um aðstoð, þar á meðal Íslendingar.
Miðað við höfðatölu högnuðust Íslendingar líklega mest á aðstoðinni því uppbyggingin
hér á landi eftir stríð var henni mikið að þakka. Hjól atvinnulífsins fóru að snúast, inn-
flutningur og útflutningur hófst að nýju og líf manna féll í réttar skorður.
ÞETTA GERÐIST: 3. APRÍL 1948
Marshall-aðstoðin var grundvölluð