Fréttablaðið - 03.04.2013, Síða 18

Fréttablaðið - 03.04.2013, Síða 18
 | 4 3. apríl 2013 | miðvikudagur FRÉTTASKÝRING/FYRIRTÆKJAÁBYRGÐ Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is Vitundarvakning hefur verið að eiga sér í stað í íslensku viðskipta- lífi á síðustu árum um mikil- vægi samfélagsábyrgðar í rekstri fyrir tækja. Sífellt fleiri fyrirtæki veita þessari hugmyndafræði at- hygli og stofnuðu sex stór íslensk fyrir tæki Festu, miðstöð um sam- félagsábyrgð, árið 2011. Að undan- förnu hefur Festa boðið fleiri fyrir- tækjum að taka þátt í starfi sínu og ræddi Markaðurinn við nokkra af þeim frumkvöðlum sem rutt hafa brautina. MARGÞÆTT STARFSEMI FESTU Ketill B. Magnússon var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri Festu en miðstöðin verður tveggja ára gömul á árinu. Festa er sjálfstæð stofnun með samstarfssamning við Háskólann í Reykjavík sem er fjármögnuð með félagsgjöldum aðildar fyrirtækja. Festa var stofnsett af sex ís- lenskum fyrirtækjum; Alcan á Ís- landi, Íslandsbanka, Landsbank- anum, Landsvirkjun, Símanum og Össuri. Í síðasta mánuði var svo opnað fyrir félagsaðild fleiri fyrir- tækja og varð Ölgerðin fyrsta nýja aðildarfyrirtækið undir lok mars. „Festa hefur það markmið í fyrsta lagi að hvetja til aukinn- ar umræðu um samfélagsábyrgð í samfélaginu þannig að það skap- ist meiri þekking um hugmynda- fræðina og að hún komist enn frek- ar á dagskrá hjá bæði fyrirtækjum, yfirvöldum og fjölmiðlum,“ segir Ketill. „Við stefnum auk þess að því að vera þekkingarmiðstöð um hug- myndafræðina og stöndum í þeim tilgangi fyrir fræðslufundum og námskeiðum um samfélagsábyrgð þar sem meðal annars erlendir sér- fræðingar hafa komið og talað.“ Ketill segir að Festa styðji auk þess með ýmsum hætti við fyrir- tæki sem vilja innleiða starfs- hætti í anda hugmyndafræðinnar um samfélagsábyrgð. „Við bjóðum þessum fyrirtækjum upp á vinnu- stofur, fundi, tengslanet og ráðgjöf auk þess að gefa þeim tækifæri til að taka beinan þátt í mótun þessar- ar tiltölulega ungu hugmyndafræði á Íslandi,“ segir Ketill. SAMFÉLAGSÁBYRGÐ SNÝST EKKI BARA UM STYRKI Spurður hvernig íslensk fyrirtæki hafi breytt starfsemi sinni með það fyrir augum að gera hana sam- félagslega ábyrgari svarar Ketill: „Fyrirtæki gera það með mjög fjöl- breyttum hætti. Yfirleitt byrjar það með stefnumótun þar sem gerð er tilraun til þess að svara þeirri grundvallarspurningu hvert fram- lag fyrirtækisins er til samfélags- ins. Því næst fara fyrir tæki að spyrja sig hvort vörur þeirra séu öruggar, hvort hráefni og aðföng séu nýtt með réttum og ábyrgum hætti og svo framvegis.“ Þá segir Ketill að í allri slíkri vinnu sé langtímahugsun rauður þráður þótt nákvæma nálgunin geti verið ólík eftir geirum. „Best er þegar hún tengist kjarna- starfseminni. Fyrir nokkrum árum snerist samfélagsábyrgð á Íslandi einungis um að gefa styrki til góðra málefna. Það er hið besta mál og mikil vægt að fyrirtæki leggi sitt af mörkum. Það er hins vegar mikill og útbreiddur mis- skilningur að samfélagsábyrgð snúist einungis um slíkt. Það er vel hægt að hugsa sér fyrirtæki sem er alls ekki ábyrgt þó það gefi fullt af peningum til góðgerðarmála.“ TÆKIFÆRI Í SAMFÉLAGSLEGA ÁBYRGUM REKSTRI Áhersla fyrirtækja á eigin sam- félagsábyrgð er stundum gagn- rýnd á þeim forsendum að slík áhersla færi athyglina frá því sem mestu máli skipti; rekstri og arð- semi fyrirtækjanna. „Við teljum þetta tvennt mjög vel geta farið saman og raun- ar fjölmörg tækifæri í því fólg- in fyrir fyrirtæki að beita þeirri langtímahugsun sem samfélags- ábyrgð krefur. Því má segja að það séu viðskiptaleg rök fyrir því að fyrir tæki leggi áherslu á samfélagsábyrgð ekki síður en siðferðis leg rök,“ segir Ketill. „Erlendar rannsóknir hafa sýnt að mjög margir neytendur vilja frekar eiga í viðskiptum við sam- félagslega ábyrg fyrirtæki og að starfsmenn sem starfa hjá slík- um fyrirtækjum séu stoltari og ánægðari með starf sitt. Þá getur traust á fyrirtækjum sem beita þessari hugmyndafræði aukist. Þessir þættir ættu allir að vera til þess fallnir að bæta afkomu fyrir- tækjanna.“ Ketill segir auk þess að tæki- færi felist í nýsköpun sem tengist samfélagsábyrgð. „Við höfum séð að fleiri og fleiri fyrirtæki hafa áttað sig á því að sífellt stærri hópur neytenda vill kaupa vörur og þjónustu sem hann er sáttur við út frá ábyrgðarsjónarmið- um. Matvælaiðnaðurinn hefur í síauknum mæli verið að bjóða upp á matvörur sem eru framleiddar á umhverfisvænan og sjálfbær- an hátt. Í ferðaþjónustunni vilja fjölmargir koma hingað til lands til þess að njóta sjálfbærrar og ósnortinnar náttúru,“ segir Ketill og bendir á verslunina Frú Laugu sem dæmi um fyrirtæki sem hafi sprottið upp úr þessum jarðvegi. Áherslur á samfélagsábyrgð fyrirtækja hafa einnig verið gagnrýndar á þeim forsendum að oft sé lítið að marka digurbarka- legar yfirlýsingar um fyrirtæk- jaábyrgð heldur séu þær settar fram í markaðslegum tilgangi án þess að endilega sé mikið þar að baki. Ketill segir slíka markaðs- setningu ekki ganga til lengdar. „Það er alveg rétt að þetta er hætta. Fyrirtæki geta auðvitað misnotað hugmyndafræðina til að fegra eigið útlit en slíkt geng- ur sjaldnast lengi. Almenningur sér að lokum í gegnum innantóma markaðsstarfsemi þar sem efnd- ir fylgja ekki orðum. Þannig að slík nálgun er eins og að pissa í skóinn sinn.“ Tækifæri fólgin í samfélagsábyrgð Sex fyrirtæki stofnuðu síðla árs 2011 Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð. Hugtakið hefur orðið æ meira áberandi í viðskiptalífinu að undanförnu. Markaðurinn ræddi við nokkra sérfræðinga um samfélagsábyrgð fyrirtækja. KETILL B. MAGNÚSSON Ketill var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Festa var stofnuð í lok árs 2011 af sex íslenskum fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fanney Karlsdóttir er sérfræðingur Símans í samfélagsábyrgð, en fyrirtækið hefur gegnt formennsku í Festu frá stofnun. Fanney segir samfélagsábyrgð fyrirtækja fyrst og fremst snúast um að hafa jákvæð áhrif á samfélagið í gegnum bæði innra og ytra starf. „Við erum núna að móta heildræna stefnu um ábyrga starfshætti sem við viljum að endurspeglist í allri starfseminni. Við viljum sjá ábyrgan rekstur, ábyrga mannauðs- stefnu og ábyrgð gagnvart viðskiptavinum, birgjum, fjárfestum og lánardrottnum. Enn fremur viljum við hlúa vel að samfélaginu og umhverfinu og sú ríka áhersla birtist í því að samfélagið er ein af fjórum meginvíddum í stefnu Símans. Hugmyndin er sú að setja okkur síðan mælanleg markmið til að gera okkur kleift að fylgjast með því hver árangurinn verður,“ segir Fanney. Fanney bætir við að þessi vinna hafi þegar skilað sér í innleiðingu ákveðinna verkferla auk þess sem skerpt hafi verið á öðrum. „Þá höfum við sett okkur siðareglur sem öllum starfsmönnum ber að þekkja og fara eftir. Þá höfum við búið til samkeppnisréttaráætlun sem við erum að leggja mikla áherslu á núna. Við ætlum að vera með markvissa fræðslu og endurmenntun fyrir alla starfsmenn með tilliti til samkeppnismála. En þetta kemur líka inn á það að það er alls ekki svo að einhver einn starfsmaður sjái um samfélagsábyrgð heldur þarf þetta að vera sameiginlegt verkefni allra starfsmanna.“ SAMFÉLAGSÁBYRGÐ ER SAMEIGINLEGT VERKEFNI Landsbankinn var eitt þeirra fyrirtækja sem stóðu að stofnun Festu árið 2011. Skömmu áður hafði fyrirtækið ráðið Finn Sveinsson í stöðu sérfræðings í samfélagsábyrgð en hann hefur síðan leitt stefnumótun fyrirtækisins í málaflokknum. Finnur segir að fyrirtækið nálgist sam- félagsábyrgð á þrennan hátt. „Í fyrsta lagi má segja að Landsbankinn hafi ákveðið samfélagslegt hlutverk. Við erum fjármálastofnun og vinnum með inn- og útlán, auðveldum greiðsluflæði og greiðslu miðlun. Þetta er okkar hlutverk og okkur ber að rækta það vel. Í öðru lagi getur bankinn verið þátttakandi í samfélaginu. Það gerum við með því að starfsmenn okkar taki þátt í hinum ýmsu verkefnum, erum með samfélagssjóð sem styrkir góð málefni og svo framvegis. Í þriðja lagi er það hin eiginlega sam- félagsábyrgð sem er þarna mitt á milli og hún fjallar í raun um það hvernig við hegðum okkur í eigin starfsemi. Það er, hvernig við vinnum að mannauðsmálum og umhverfismálum og hvernig við tökum tillit til ýmissa samfélagslegra atriða í okkar útlánum og fjárfestingum svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Finnur. Spurður um hvernig Landsbankinn hafi breytt sinni starfsemi með það fyrir augum að gera bankann samfélagslega ábyrgari svarar Finnur: „Við byrjuðum á tiltölulega einföldum og skemmtilegum verkefnum til að vekja starfsfólkið til umhugsunar um þessi mál. Til dæmis fórum við í gang með svokallaðan samgöngusamning sem 350 manns hafa skrifað undir en í honum felst að viðkomandi starfsfólk skuldbindur sig til að ferðast í og úr vinnu með strætó eða á hjóli ef möguleiki er á. Þá skiptum við út bílunum okkar í umhverfisvæna bíla og gáfum í fyrra út svokallaða GRI-samfélagsskýrslu [Global Reporting Intiative] fyrst íslenskra fyrirtækja. Á sama tíma stofnuðum við sex starfshópa sem hafa verið að móta og innleiða stefnu bankans í samfélagsábyrgð á ólíkum sviðum. Við höfum litið á þetta sem svo að þetta sé nokkurra ára ferli því það snýst um að breyta menningunni innan bankans. Þannig að það er ýmislegt í gangi og við vonumst til þess að til lengri tíma muni þetta gagnast bankanum bæði samfélagslega og viðskipta- lega með aukinni starfsánægju og auknu trausti á bankanum.“ GAGNAST BÆÐI SAMFÉLAGSLEGA OG VIÐSKIPTALEGA Ketill Berg Magnússon, framkvæmda- stjóri Festu, segir að allur gangur sé á því hvort fólk í atvinnulífinu þekki til hugmyndafræðinnar um sam- félagsábyrgð. Því liggur beint við að biðja framkvæmdastjórann um að skilgreina hugtakið: „Í stuttu máli snýst samfélagsábyrgð fyrirtækja um að fyrirtæki axli ábyrgð á þeim áhrifum sem þau hafa á samfélagið. Það er, að þau bjóði upp á ábyrga þjónustu og vörur en taki einnig tillit til aukaáhrifa sem kunna að hljótast af starfseminni. Ég get í þessu sam- hengi nefnt mengun eða þætti eins og samgöngumál. Þá snýst þetta líka um ýmsa mannlega þætti; að fyrir- tæki bjóði starfsfólki góðan aðbúnað og tryggi öryggi viðskiptavina. Sú hug- myndafræði sem við erum að vinna að er því í raun eins konar aðferða- fræði fyrir fyrirtæki sem hjálpar þeim að vinna markvisst í þessum málum undir einum hatti.“ Ketill bætir þó við að samfélags- ábyrgð þýði ekki það sama fyrir öll fyrirtæki. „Þetta er ekki bara spurning um eitthvað box sem fyrirtæki getur hakað við til að teljast ábyrgt. Þetta þarf að laga að starfsemi hvers fyrirtækis. Rétt eins og þú ljósritar ekki bara viðskiptaáætlun frá öðru fyrirtæki í kannski allt öðrum geira þá gerirðu það ekki heldur við stefnu um samfélagsábyrgð.“ SAMFÉLAGSÁBYRGÐ? Landsvirkjun hefur á síðustu árum lagt mikla áherslu á að gera fyrirtækið samfélagslega meðvitaðra og tók þátt í stofnun Festu. Í nóvember í fyrra réði fyrirtækið svo Rögnu Söru Jónsdóttir í starf forstöðumanns samfélags- ábyrgðar. Ragna Sara hefur síðan leitt vinnu fyrirtækisins við að innleiða samfélagsábyrgðarstefnu þess. „Það var árið 2011 sem starfshópur skipaður starfsfólki innan Landsvirkjunar skilgreindi samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins. Hún felst í því að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins,“ segir Ragna Sara og heldur áfram: „Til þess að tryggja að þessari stefnumörkun sé framfylgt var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á sex þætti í starfsemi fyrir- tækisins og miða að umbótum á þeim sviðum. Það eru þættir sem snúa að ábyrgum stjórnarháttum, umhverfismálum, samfélagsmálum, heilsu-, öryggis- og starfsmannamálum, virðiskeðjunni og miðlun þekkingar. Fjöl- margt starfsfólk fyrirtækisins er nú og hefur á undanförnu ári komið að markmiðasetningu á þessum sviðum og það starf stendur yfir.“ Loks segir Ragna Sara að Landsvirkjun þurfi sem orku- og auðlinda- fyrirtæki að taka umhverfislega og samfélagslega þætti með í reikninginn við ákvarðanatöku. „Ef stefna á þessu sviði er vel útfærð og samofin fyrirtækinu þá á hún jafnframt að bæta möguleika fyrirtækisins á að skila auknum arði til eigenda sinna, sérstaklega til langs tíma.“ VEL ÚTFÆRÐ STEFNA GETUR AUKIÐ ARÐSEMI Fleiri og fleiri fyrirtæki hafa áttað sig á því að sífellt stærri hópur neytenda vill kaupa vörur og þjónustu sem hann er sáttur við út frá ábyrgðarsjónarmiðum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.