Fréttablaðið - 03.04.2013, Page 20
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
EINFALT
Ferðamenn skrá
sig inn á vefinn
www.safetravel.is.
Skráningin er ein-
föld og er í nokkr-
um fljótlegum
skrefum.
LEITARTÍMI
STYTTIST
„Ef ferðamenn nota
bæði Ferðaáætlunina
og smáforritið minnkar
leitarsvæðið margfalt,
sem er sérstaklega
mikilvægt,“ segir Jónas
Guðmundsson, verk-
efnastjóri slysavarna
ferðamanna hjá Lands-
björg.
MYND/VILHELM
Nýlega tóku Slysavarnarfélagið Lands-björg og Neyðarlínan í notkun nýtt kerfi sem gerir ferðamönnum kleift að skrá
ferðatilhögun sína á vefnum og vaktar ferðir
þeirra. Með notkun þess mun öryggi ferða-
manna aukast til muna og leitartími björgunar-
sveitarmanna styttast mjög mikið. Kerfið er að
sögn Jónasar Guðmundssonar, verkefnastjóra
slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörg, bæði
ætlað innlendum og erlendum ferðamönnum.
„Við væntum þess að sem flestir nýti þetta og
ekki síður í styttri ferðir en lengri. Kvöldferð á
Esjuna á líka heima þarna inni svo dæmi séu
tekin.“
Kerfið er mjög einfalt að sögn Jónasar. Not-
endur skrá sig inn á www.safetravel.is í nokkr-
um einföldum skrefum. „Flipinn Ferðaáætlunin
er valinn þar sem finna má skráningarformið.
Þar eru skráðar inn persónuupplýsingar, ferða-
tilhögun og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
Í lok skráningar gefst ferðamanni kostur á að
velja svokallaða Ferðavöktun og tímasetningu
á heimkomu. Hann fær sent SMS og tölvupóst
og í lok ferðar notar hann annað hvort til að
láta vita að ferðinni sé lokið. Ef ekkert svar
berst fær stjórnborð Neyðar línunnar þær upp-
lýsingar og starfsmenn hennar hringja í við-
komandi. Ef ekki næst í ferðamann er brugðist
við á viðeigandi hátt, til dæmis með því að
hafa samband við björgunarsveit eða lögregl-
una.“
Til viðbótar er þjónustan tengd við smá-
forritið (appið) 112 Iceland þannig að ef við-
komandi hefur notað það má auðveldlega sjá
síðustu staðsetningu ferðamannsins að sögn
Jónasar. „Í raun virkar þetta svipað og ef ferða-
maður væri að skilja eftir brauðmola handa
leitarmönnum. Hann getur ýtt á grænan takka
í forritinu sem skynjar staðsetningar hverju
sinni og þannig sjáum við fimm síðustu stað-
setningar hans.“
Nýja kerfið mun spara mikla fjármuni að
sögn Jónasar en það er þó ekki aðalatriðið.
„Það sem skiptir mestu máli er að öll leit að
fólki verður svo miklu skilvirkari og vonandi
árangursríkari líka. Ef ferðamenn nota bæði
Ferðaáætlunina og smáforritið minnkar leitar-
svæðið margfalt, sem er sérstaklega mikilvægt
því stundum höfum við engar upplýsingar um
ferðir fólks. Með nýja kerfinu getum við því
staðsett fólk betur en áður og þrengt leitar-
svæðið mikið. Í raun er þetta risaskref fram á
við fyrir okkur og ég held ég fari með rétt mál
þegar ég segi að við séum fyrsta þjóðin til að
taka svona kerfi í notkun.“
■ starri@365.is
SKILVIRKARA
LEITARKERFI
ÖRYGGI Leitartími styttist og öryggi ferðamanna
eykst með nýju kerfi Landsbjargar og Neyðar-
línunnar sem nýlega var tekið í notkun.
Niðurstöður könnunar sem
ferðavefurinn Expedia.se stóð
fyrir á flugvenjum Skandinava
gefa til kynna að Svíar drekki
á flugferðum, Norðmenn borði
nesti og að Danir séu sparir á
aurinn. Samkvæmt könnuninni
eru Svíar einnig flughrædd-
astir en fjórði hver Svíi sagðist
flughræddur. Danir eru í öðru
sæti hvað varðar flughræðslu
en Norðmenn eru harðastir
af sér. Það sem fer mest í
taugarnar á öllum burtséð frá
þjóðerninu var lítið fótarými í
en barnsgrátur var í öðru sæti.
Þegar kemur að matarvenjum
sögðust 30 prósent Norð-
manna taka með sér nesti,
sautján prósent Svía og sextán
prósent Dana. Annar hver Svíi
sagðist fá sér drykk í loftinu,
41 prósent Dana og 45 prósent
Norðmanna. Norðmenn eru
duglegastir að versla en þrír af
hverjum tíu sögðust versla fyrir
500 til 1.000 sænskar krónur í
flugi. Danirnir voru hins vegar
nískastir en aðeins einn af
hverjum tíu sagðist versla fyrir
meira en 1.000 krónur.
FLUGVENJUR
Ergo býður 100% afslátt
af lántökugjöldum í apríl
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Það er gaman að fá sér grænan bíl sem eyðir litlu.
Í tilefni af grænum apríl býður Ergo 100% afslátt á lántökugjöldum af
umhverfishæfum bílum. Gott fyrir þig, fyrir umhverfið og okkur öll.
Við aðstoðum þig með ánægju!
GRÆNIR BÍLAR
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 26. október 5. apríl
Save the Children á Íslandi