Fréttablaðið - 03.04.2013, Side 23

Fréttablaðið - 03.04.2013, Side 23
5MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013 September 2011 Íbúðalánasjóður fær heimild til að bjóða óverðtryggð lán. Útfærsla og fjármögn- un liggur ekki fyrir. Starfshópur á vegum velferðar- ráðuneytisins um framtíðar horfur og framtíðarhlutverk Íbúða- lánasjóðs skilar áfangaskýrslu 12. þessa mánaðar. „Við ákváðum að setja bara dagsetningu á þetta,“ segir Gunnar Tryggvason, for- maður starfshópsins, en til stóð að skila skýrslunni fyrir lok mars- mánaðar. Með áfangaskýrslunni ætti að skýrast hvaða breytingar verða gerðar á rekstri Íbúðalánasjóðs til þess að renna stoðum undir rekstur hans. L e n g i h e f u r verið vitað að í óefni stefndi í rekstri sjóðs- ins sem situr uppi með fjölda eigna á sama tíma og lántak- endur leita á önnur mið eftir íbúðalánum. Þannig eru það bæði greiðslu- erfiðleikar fólks og samkeppni við aðrar lánastofnanir sem valda slæmri stöðu Íbúðalánasjóðs. Vandi sjóðsins er að vera sjálfur bundinn af verðtryggðum lána- skilmálum skuldabréfa á sama tíma og fólk greiðir í stórum stíl upp lán hjá sjóðnum. Sjóðurinn þarf því bæði að „koma í vinnu“ peningum vegna uppgreiðslna og fá arð af íbúðum sem færst hafa í hans eigu. Til marks um stöðuna er að ríkið hefur í tvígang þurft að hlaupa undir bagga með sjóðnum síðustu ár, síðast fyrir áramót með því að samþykkt var að ríkis sjóður styrkti sjóðinn um allt að 13 millj- arða. Þar áður hafði sjóðurinn fengið 33 milljarða króna styrk árið 2010. Engu að síður færði alþjóðlega m a t s f y r i r t æ k i ð M o o d y ‘ s lánshæfis einkunn Íbúðalána- sjóðs í ruslflokk fyrr á þessu ári. Moody‘s sagði eignasafn sjóðsins veikara en úttekt sem gerð var í fyrrahaust hefði gefið til kynna. Segja má að grunnurinn að óhamingju sjóðsins hafi verið lagður með breytingum árið 2004 sem opnuðu fyrir uppgreiðslur fólks á fasteignalánum þótt sjóður- inn væri sjálfur bundinn af lána- samningum til áratuga. Þá hófst líka innreið banka og sparisjóða á markað fasteignalána. Þegar fólk færði lán sín í stórum stíl urðu uppgreiðslur lána hjá sjóðn- um margfalt meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þegar bankarnir tóku síðla árs 2011 að bjóða óverðtryggð lán, sem í það minnsta tímabundið voru með hagstæða vexti miðað við verðbólguna í landinu, jók það enn á vanda Íbúðalánasjóðs. Íbúðakaupendur virðast í stórum stíl, að minnsta kosti í bili, hafa hafnað verðtryggðum lánum. Sjóður inn hefur lagaheimild til að bjóða óverðtryggð lán en hefur til þessa ekki nýtt sér hana. Á fundi með efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis 25. febrúar sagði Már Guðmundsson seðla- bankastjóri viðskiptalíkan Íbúða- lánasjóðs ekki ganga upp í nú- verandi umhverfi. Undir þetta hafa stjórn og stjórnendur Íbúða- lánasjóðs tekið. Svartnættið er þó ekki algjört hjá sjóðnum. Síðustu tölur sýna að vanskil einstaklinga minnkuðu í febrúar, áttunda mánuðinn í röð. (Og þá voru „ekki nema“ tæpir 4,7 milljarðar króna í vanskilum vegna þeirra, eða 13,2 prósent út- lána sjóðsins.) Þá hefur sjóðurinn sett leigumál í farveg með því að stofna sérstakt félag um útleigu eigna. Leigufélagið Klettur fékk undir sinn hatt 524 eignir af þeim rúmlega 2.200 sem komnar voru í eigu sjóðsins. Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir ástæður þess að sjóðurinn setti ekki allar eignir sem voru í útleigu í leigu- félagið vera nokkrar. „Í fyrsta lagi hefur sú stefna verið mörkuð í leigustarfsemi Íbúða lánasjóðs að fara ekki í mikl- ar viðhaldsfjárfestingar á íbúðar- húsnæði í eigu hans og því fóru að- eins eignir sem ekki þurftu mikið viðhald í Leigufélagið Klett ehf. Í annan stað var horft til þess að eignir leigufélagsins hentuðu vel í leigustarfsemi til dæmis er varð- ar staðsetningu, staðbundna eftir- spurn og stærð,“ segir Sigurður. Í þriðja lagi segir hann val á fasteignum hafa snúið að því að ná ákveðinni hagkvæmni í rekstri, svo sem með því að eiga ekki stak- ar eignir á mjög strjálbýlum svæð- um heldur eiga alltaf ákveðinn lágmarksfjölda á tilteknum stað. „Síðast en ekki síst er leigu- félaginu ætlað að vera fjárhags- lega sjálfbært og leigutekjur ein- stakra eigna félagsins verða að standa undir rekstri og hóflegri skuldsetningu,“ segir hann. Ekki er því loku fyrir það skot- ið að sjóðurinn nái vopnum sínum en árangurinn ræðst af þeim til- lögum að framtíðarskipulagi sem í megindráttum liggja fyrir hjá sjóðnum. Stjórnendur hans bíða þó með að kynna tillögurnar þar til helstu eftirlits- og umsagnaraðilar hafa fjallað um þær, þar á meðal starfshópurinn sem skilar áfanga- skýrslu í mánuðinum. Ætla má að tillögurnar feli líka í sér drög að breyttu útlánafyrirkomulagi hjá sjóðnum, svo sem varðandi óverð- tryggð lán. Rót vandræðanna rakin til 2004 Íbúðalánasjóður er fastur í gildru verðtryggðrar skuldabréfaútgáfu á meðan þeim sem tekið hafa lán hjá sjóðnum er frjálst að greiða þau upp og færa sig annað. Tölur sýna að vanskil minnka enn hjá sjóðnum. Reynt er að leigja út eða selja húsnæði sem sjóðurinn hefur eignast. MIÐBÆR REYKJAVÍKUR Í þessum mánuði á starfshópur að skila áfangaskýrslu um „framtíðarhorfur og hlutverk Íbúðalánasjóðs“ og í maí er þess að vænta að rannsóknarnefnd þingsins um málefni Íbúðalánasjóðs skili skýrslu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SIGURÐUR ERLINGSSON Landshluti Í leigu Alls Höfuðborgarsvæðið 284 500 Suðurnes 263 748 Vesturland 84 267 Vestfirðir 14 69 Norðurland vestra 7 16 Norðurland eystra 77 130 Austurland 75 229 Suðurland 119 302 Samtals 923* 2.261 *524 hafa verið færðar í Leigufélagið Klett. Heimild: Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs 15. febrúar 2013 ÍBÚÐIR ÍBÚÐALÁNASJÓÐS Í JANÚARLOK 2013 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 Línan lýsir meðalfermetraverði íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu* Janúar 1990 Húsbréf útgefin og afhent í skiptum fyrir veðskulda- bréf útgefið af íbúða- kaupanda, -byggjanda eða -eiganda. Ársbyrjun 1996 Íbúðalánasjóður býður húsbréfa- lán til lengri tíma en áður, lengstu lán fara úr 25 árum í 40. Maí 2003 Ríkisstjórn Íslands samþykkir breytingar á stefnumótun Íbúðalánasjóðs þannig að íbúðalán verði í áföngum hækkuð í allt að 90 prósent af brunabótamati. Ágúst 2004 Bankar og sparisjóðir hefja sókn á markaði íbúðalána. KB banki ríður á vaðið með 4,4 prósenta lánsvexti. Vextir fara svo hríðlækkandi næstu vikurnar. Lánað fyrir 80 til 100 prósentum af markaðsvirði eigna. Nóvember 2004 Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða allir lán til allt að 40 ára sem numið geta allt að 100 prósentum af markaðsvirði húsnæðis. Íbúða- vextir bankanna ná lágmarki í 4,15 prósentum. Vextir haldast svo lágir fram í mars 2006. Maí 2004 Gildi taka breytingar sem Árni Magnús son félagsmálaráðherra mælti fyrir á lögum um húsnæðismál. Í stað húsbréfa komu íbúðabréf. Lán- takendur geta við breytinguna greitt upp lán en Íbúðalánasjóði er óheimilt að greiða upp íbúðabréf sín. Kerfi íbúðabréfa tók alveg yfir í júlímánuði. Desember 2004 Íbúðalánasjóður fær heimild til að veita almenn lán til allt að 90 prósenta af verðmæti íbúða, en þó ekki hærra en sem nemur brunabótamati þeirra. Ársbyrjun 2005 Íbúðalánasjóður á í vanda vegna mikilla uppgreiðslna lána sem hófust á haustdögum 2004 og stóðu fram á mitt ár 2005. Fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar að uppgreiðslur frá september 2004 til júlíloka 2005 hafi numið tæpum 157,6 milljörðum króna. Mars 2007 Gildi tekur breyting félagsmálaráðuneytis á reglugerð þannig að lánshlutfall húsnæðislána Íbúðalánasjóðs hækkar aftur í 90 prósent og hámarksfjárhæð almennra lána hækkar úr 17 milljónum króna í 18 milljónir. Nóvember 2012 Ríkisstjórnin ákveður að afla heim- ilda í fjárlögum næsta árs til að auka stofnfé Íbúðalánasjóðs um allt að 13 milljarða króna. Janúar 2013 524 fasteignir Íbúðalánasjóðs sem eru í leigu eru færðar yfir í Leigu- félagið Klett ehf. Af þeim 1.700 eignum sem eftir eru í eigu sjóðsins eru 400 í útleigu. Mars 2013 Starfshópur sem greina á „framtíðar- horfur og framtíðarhlutverk Íbúða- lánasjóðs“ á að skila áfangaskýrslu fyrir lok mánaðarins. Apríllok 2013 Kosningar til Alþingis. Maí 2013 Birta á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem komið var á fót í árslok 2010 um málefni Íbúðalánasjóðs. Áætlun um skil sumarið 2012 stóðst ekki. Ársbyrjun 2006 Bankar draga úr framboði lána og lækka lánshlutföll. Mitt ár 2006 Íbúðalánasjóður lækkar lánshlutfall í 80 prósent. Júní 2008 Jóhanna Sigurðar- dóttir félags- málaráðherra setur reglugerðir þar sem hámark húsnæðislána Íbúðalánasjóðs var hækkað úr 18 milljónum í 20, brunabótamat var afnumið sem viðmið fyrir lánveitingum og þess í stað miðað við allt að 80 prósent af kaup- verði eigna. Apríl 2009 Bankarnir kynna til sögunnar óverðtryggð íbúðalán með vaxta- greiðsluþaki. Óverð- tryggðir vextir standa í 17 prósentum en áttu eftir að lækka hratt. Boðið er upp á 7,0 prósenta vaxta- greiðslu, en mismuninum (10 prósentunum) bætt við höfuðstól lánsins. Haust 2010 Alþingi samþykkir 33 milljarða króna fjárveitingu til Íbúðalánasjóðs. Desember 2010 Með ályktun Alþingis er komið á fót rannsóknar- nefnd til að rannsaka málefni Íbúðalánasjóðs. Október 2011 Stóru viðskipta- bankarnir taka að bjóða óverðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára. Vaxtakjörin eru hagstæð miðað við verðbólgu. 150.000 kr 200.000 kr 250.000 kr 300.000 kr 350.000 kr AFDRIFARÍKAR ÁKVARÐANIR OG VIÐBURÐIR *Uppreiknað miðað við vísitölu ársins 2012. Heimild: Þjóðskrá Íslands ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.