Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.04.2013, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 03.04.2013, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 3. apríl 2013 | TÍMAMÓT | 15 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR BJÖRNSSON fyrrverandi bóndi á Litla-Ósi, Nestúni 4, Hvammstanga, sem lést þann 19. mars síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju föstudaginn 5. mars kl. 15.00. Már Þorvaldsson Álfheiður Sigurðardóttir Jóhanna Þorvaldsdóttir Hermann Ólafsson Björn Þorvaldsson Birna Torfadóttir Gunnar Þorvaldsson Gréta Jósefsdóttir Ágúst Þorvaldsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN E. ÓLAFSSON Foldarsmára 7, Kópavogi, lést þann 26. mars. Guðrún Þ. Einarsdóttir Einar Þór Jóhannsson Bryndís Einarsdóttir Þorbjörg Jóhannsdóttir Ólafur Andri Stefánsson Gunnhildur Hekla Jóhannsdóttir Arnar Leifsson og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÁRNASON dvalarheimilinu Garðvangi í Garði, lést þann 26. mars síðastliðinn. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði fimmtudaginn 4. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Jón Árni Sigurðsson Steinunn Rasmus Haukur Sigurðarson Gunnhildur Þórisdóttir Heiðrún Sigurðardóttir Sverrir Kristjánsson Auður Sigurðardóttir Rúnar Georgsson Bragi Sigurðsson Anna Birna Jamison Erla Sigurðardóttir Guðjón Svavarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR ÁSDÍS HAFSTEINSDÓTTIR PEDERSEN sem lést á Akranesi 27. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 5. apríl klukkan 13.00. Ásgeir Kristinsson Ágústa Lilja Ásgeirsdóttir Brynjólfur Jónsson Kristín Ásgeirsdóttir Sigurdór Halldórsson Auður Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Útför móður okkar, GUÐFINNU GUÐNADÓTTUR áður Hæðargarði 24, sem lést 20. mars, verður gerð frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 4. apríl kl. 13.00. Jón B. Guðmundsson Valgerður Gunnarsdóttir Þórdís Guðmundsdóttir Vilhjálmur Hafsteinsson Halldóra Guðmundsdóttir Sævar Sigurðsson Margrét Guðmundsdóttir Ármann Sigurðsson Einar Kr. Guðmundsson Bergljót Ingvadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG EYVINDSDÓTTIR Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 29. mars. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 10. apríl klukkan 13. Laufey Ármannsdóttir Steinþór Ómar Guðmundsson Jóhanna Jónsdóttir Einar Ármannsson Ásdís Garðarsdóttir Freydís Ármannsdóttir Helgi Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HAFSTEINN KONRÁÐSSON skriftvélameistari / rafeindavirkjameistari, Sólheimum 32, Reykjavík, sem andaðist á Landakoti 24. mars, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. apríl klukkan 13.00. Stella Þórdís Guðjónsdóttir Ómar Sigurðsson Sigurbjörg Karlsdóttir Bára Sigurðardóttir Kristján O. Þorgeirsson Erla Sigurðardóttir Jón Arnar Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR BERGMANN STEFÁNSSON flugumsjónarmaður, Kirkjubraut 7, Seltjarnarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 21. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Vilhelmína Norðfjörð Baldvinsdóttir Stefán Norðfjörð Ólafsson Guðrún Elín Ólafsdóttir Sigurður Rúnar Sigurjónsson Ólafur Norðfjörð Ólafsson Sverrir Stormsker barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, HANNES GUÐMUNDSSON fv. sendifulltrúi, Hæðargarði 33 (áður Laugarásvegi 64), sem lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 27. mars sl., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. apríl kl. 15.00. Edda Hannesdóttir Gerður Hannesdóttir Guðrún Hannesdóttir Ragnhildur Hannesdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR frá Álftagróf, lést þann 31. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. apríl klukkan 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á MND félagið. Valdimar Gíslason og fjölskylda Útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og bróður, SIGURÐAR KONRÁÐS HAUKSSONAR sem lést á líknardeild LSH sunnudaginn 24. mars, fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 5. apríl, kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Björk Helgadóttir Arna Björk Sigurðardóttir Aron Morthens Magnús Haukur Sigurðarson og systkini hins látna. „Þetta er auðvitað alveg stór- skemmtilegt,“ segir Andri Snær Magnson rithöfundur, sem staddur er vestan hafs, enda fékk hann um helgina sérstök heiðursverðlaun Philip K. Dick-verðlaunanna fyrir bók sína LoveStar sem framúr- skarandi vísindaskáldsögu í kilju- útgáfu. Þau verðlaun hafa sérstaka stöðu í bókmenntaheiminum. „Fyrir fram hafði ég smá áhyggjur af því að LoveStar yrði munaðarlaus í Amer- íku. Hér eru líka þvílík ókjör af vís- indaskáldsögum að ég var ekki viss hvort ég hefði eitthvað nýtt fram að færa, hvað þá tíu árum eftir að bókin kom út á Íslandi. En dómar hafa verið fínir og menn nefna góða höf- unda til samanburðar. Vicky Cribb þýddi bókina líka afar vel.“ Andri Snær segir verðlaunaveit- inguna hafa farið fram á SciFi-ráð- stefnu í Seattle og þar hafi öllu ægt saman. „Fjölskyldur komu í Star Trek-búningum, Svarthöfði var með son sinn og ég fór í lyftu með vamp- íru.“ Sagan af bláa hnettinum hlýtur sérstök heiðursverðlaun Green Earth Book Award á morgun, en þau eru veitt framúrskarandi bókum sem vekja börn til vitundar um umhverfis mál. Andri Snær tekur við þeim í Salisbury í Maryland og fagnar útgáfunni. „Blái hnötturinn var kominn út á 25 tungumálum áður en hann loksins drattaðist til að koma út á ensku,“ segir hann. „Það eru ansi mörg hlutverk í þess- ari ferð, frá harðasta vísindaskáld- sagnakjarna Seattle til umhverfis- vænna barnabóka í Maryland og svo flýg ég beint til Barcelona þar sem Draumalandið er að koma út. Þar með missi ég af frumsýningu Bláa hnattarins í Toronto þann átt- unda. Allt gerist þetta nánast sam- tímis,“ segir hann og bætir við: „Það er líka gaman að sjá að verkin lifa og LoveStar á kannski enn betur við í dag en áður. Ég frétti af hópi Google- starfsmanna sem var að lesa hana. Kannski nota þeir hana sem leiðbein- ingarrit en ekki viðvörun.“ gun@frettabladid.is Fór í lyft u með vampíru Andri Snær Magnason fær tvenn heiðursverðlaun í Bandaríkjunum, Blái hnötturinn er frumsýndur í Toronto og Draumalandið er að koma út á Spáni– allt nánast á sama tíma. ANDRI SNÆR MEÐ VIÐURKENNINGAR- SKJALIÐ Philip K. Dick-verðlaunin eru einhver þau virtustu sem veitt eru fyrir vísindaskáldskap í heiminum. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN J. JÓNSSON Dvalarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogsbraut 1A, lést á heimili sínu 31. mars. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 8. apríl kl. 13.00. Guðmundur Þorsteinsson Benedikte Thorsteinsson Geir Þorsteinsson Linda Kr. Kristmannsdóttir Kristjana Bullman Þorsteinn Haukur Þorsteinsson Lilja Kjartansdóttir Guðjón Már Þorsteinsson Bryndís Jónsdóttir Jón Emil Þorsteinsson Valgerður Auðunsdóttir Ívar Þorsteinsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.