Fréttablaðið - 03.04.2013, Qupperneq 28
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 16
BAKÞANKAR
Svavars
Hávarðssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. berjast, 6. pot, 8. vefnaðarvara, 9.
húðsepi milli táa, 11. tveir eins, 12.
erfiði, 14. dans, 16. skóli, 17. skjön, 18.
tímabils, 20. tónlistarmaður, 21. færni.
LÓÐRÉTT
1. hróss, 3. tveir eins, 4. asfalt, 5. for, 7.
víbrator, 10. traust, 13. bókstafur, 15.
sót, 16. tal, 19. vörumerki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. etja, 6. ot, 8. tau, 9. fit, 11.
rr, 12. streð, 14. rúmba, 16. ma, 17.
mis, 18. árs, 20. kk, 21. list.
LÓÐRÉTT: 1. lofs, 3. tt, 4. jarðbik, 5.
aur, 7. titrari, 10. trú, 13. emm, 15.
aska, 16. mál, 19. ss.
Já, Halvorsen! Við verðum
að taka nokkrar prufur!
Það er bara partur af
rútínunni!
Og við þurfum að bíða í nokkra
daga eftir niðurstöðunum!
En, svona almennt séð get ég
sagt að...
... það er eitthvað
mikið að hérna!
Góður strákur,
hráki.
„Hráki“??
Hvers vegna myndi nokkur
vilja eiga naggrís sem heitir
„hráki“?
Hvers vegna myndi nokkur vilja
spyrja spurninga sem hann vill í
rauninni ekki fá svar við?
Nei, hann á ekki
von á mér.
FORSTJÓRI
MÓTTAKA
Ég held að Lóa
sé eitthvað
slöpp.
Er það? Það er rétt, hún
er með hita.
Ég vissi
það!
Hvernig
vissirðu? Reynsla.
Alltaf þegar börnin okkar
haga sér vel eru allar líkur á
því að þau séu lasin.
Frá yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis.
Alþingiskosningar 27. apríl 2013
Framboðsfrestur til alþingiskosninga sem fram eiga að fara 27. apríl
2013, rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 12. apríl nk.
Framboð í Norðvesturkjördæmi skal til kynna skriflega til yfirkjör-
stjórnar Norðvesturkjördæmis, sem veitir þeim viðtöku á Hótel
Borgarnesi, Borgarnesi, föstudaginn 12. apríl 2013, kl. 09.00-12.00.
Á framboðslistum skulu vera nöfn16 frambjóðenda eða tvöfalt fleiri
frambjóðenda en nemur þingsætum í kjördæminu, hvorki fleiri né
færri. Tilgreina skal greinilega nafn frambjóðanda, kennitölu hans,
stöðu eða starfsheiti og heimili.
Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á list-
anum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðs-
lista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Norðvesturkjör-
dæmi um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök listinn
er boðinn fram. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans
og heimili. Fjöldi meðmælendaskal vera 240 hið fæsta og eigi fleiri
en 320. Sami kjósandi má ekki mæla með fleiri en einum framboðs-
lista. Komi það fyrir verður kjósandinn ekki talinn meðmælandi neins
þeirra.Loks skal fylgja skrifleg til kynning frá frambjóðendum listans
um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.
Yfirkjörstjórn fer þess á leit að framboðslistar og meðmælendalistar
verði, auk hinna skriflegu eintaka, afhentir í tölvutæku formi (excel-
skjali á minnislykli).
Fundur yfirkjörstjórna til að úrskurða um framboð, þar sem umboðs-
mönnum framboðslista gefst kostur á að vera viðstaddir, verður
haldinn á Hótel Borgarnesi, Borgarnesi, laugardaginn 13. apríl 2013
kl. 15.00. Meðan kosning fer fram, laugardaginn 27. apríl 2013, verður
aðsetur yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á Hótel Borgarnesi,
Borgarnesi, þar sem talning atkvæða fer fram að loknum kjörfundi
kl. 22.00.
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis
29. apríl 2013
Ríkarður Másson
Stefán Ólafsson
Ingibjörg Hafstað
Guðný Ársælsdóttir
Karl Gunnarsson
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Ég stóð varla út úr hnefa þegar þetta var. Hjartað hamaðist í brjóstinu
þar sem ég stóð með eyrað fast við berg-
hamarinn og hlustaði á niðinn frá þýskum
sprengjuflugvélum sem komu fljúgandi
inn fjörðinn. Svo heyrðist ýlfrið í sprengj-
unum þegar þær féllu – í átt að risavöxnu
skipinu sem lá á firðinum. Hver á eftir
annarri skullu sprengjurnar í sjóinn og
köstuðu stáldrekanum til og frá
þegar þær sprungu með ærandi
hávaða. Geltið í byssunum
heyrðist greinilega, og hróp og
köll mannanna um borð þegar
þeir reyndu í örvæntingu að
verja sig. Skipið tók að sökkva
og það söng í sundursnúnu stál-
inu. Hljóðið í vígvélunum dó
rólega út – og svo hurfu þær
loks sjónum yfir fjallatopp-
unum.
ÞEGAR ég var gutti var
hefðbundið sumarfrí fjöl-
skyldunnar skottúr á
Seyðisfjörð. Þar er pabbi
fæddur og upp alinn.
Fastur liður var fjall-
ganga með kallinum þar
sem hann sagði okkur
sögur frá gamalli tíð,
og stóð þar ein upp
úr. Það var sagan af
því þegar olíuskipinu
El Grillo var sökkt
inni á firðinum í febrúar 1944. Það var
nefnilega svo að pabbi hafði trúað okkur
bræðrunum fyrir því að fjallið fyrir ofan
bæinn væri gætt þeirri náttúru að safna
sögum; það geymdi niðinn frá liðinni tíð.
Ekki átti þetta síst við um orrustugný frá
dögum heimsstyrjaldarinnar; ekki þurfti
annað en að leggja eyrað á steininn og þá
mátti hlusta á fortíðina. Svo sagði hann
söguna af upplifun sinni á meðan við
fengum hana staðfesta með bergmálinu
úr fjallinu.
ÉG veit ekki hvenær ég áttaði mig á því
að hljóðin úr hamrinum komu frá frysti-
húsinu á staðnum; sennilega manni á
lyftara að henda til fiskikörum á plani.
Að hróp mannanna snerust ekki um líf
eða dauða í brennandi olíueldi heldur
frekar að það vantaði meiri fisk á eitt-
hvert færibandið. Já, eða hvenær ég
áttaði mig á mikilvægi þess að sá sem
sagði mér söguna fæddist 1946 – tæplega
tveimur árum eftir að téðir atburðir áttu
sér stað.
EN af hverju segi ég þessa sögu? Kannski
vegna þess að ég fæ hlýtt í hjartað við að
rifja þetta upp. Einnig vegna þess að við
lifum á ólíkindatímum og eitt og annað er
fullyrt um atburðarás liðinna ára – hvern-
ig þetta var og hvernig best er að halda
áfram. Ég vil líka hnykkja á mikilvægi
þess að oft er lærdómsríkt að horfa í aðra
átt en þangað sem sögumaður bendir.
Þegar fj all segir sögu