Fréttablaðið - 03.04.2013, Page 29

Fréttablaðið - 03.04.2013, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 3. apríl 2013 W | MENNING | 17 Angelina Jolie hefur komið á fót stúlknaskóla í grennd við Kabúl, höfuðborg Afganistan. Hún mun ekki láta þar staðar numið heldur hyggst opna fleiri stúlknaskóla í landinu í nánustu framtíð. Jolie hefur verið sérstakur sendiherra Sameinuðu þjóðanna um árabil og lengi sinnt hvers kyns mannúðarmálum. Hún fjár- magnaði byggingu skólans með sölu á skartgripalínunni Style of Jolie sem hún hannar í samstarfi við gullsmiðinn Robert Procop. „Ég fann innblástur minn í vitn- eskjunni um að vinnan mundi skila sér til þeirra er helst þurfa á því að halda,“ sagði Jolie um samstarfið við Procop. Byggir skóla Grísalappalísa hefur gefið út lagið Lóan er komin. Það er tekið af fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Ali, sem er væntanleg á vegum 12 Tóna á næstunni. Hljómsveitin er skipuð Gunn- ari Ragnarssyni og Sigurði Möll- er Sívertsen, fyrrverandi meðlim- um Jakobínarínu, Bergi Thomas Anderson, bassaleikara Oyama og Sudden Weather Change, og þeim Alberti Finnbogasyni og Tuma Árnasyni úr The Heavy Experi- ence. Næstu tónleikar sveitarinnar verða á Kexi hosteli á fimmtudags- kvöld klukkan 21 og verður leikið efni af plötunni. Gefa út lagið Lóan er komin HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013 Pub Quiz 20.00 Siddi stjórnar Pub Quizi á Faktorý. Þemu eru tígrisdýr, 10, trommarar og turnar. Handverkskaffi 20.00 Bjargey Ingólfsdóttir kennir fólki að búa til kóngulær úr vír og perlum á handverkskaffi Gerðubergs. Hún deilir jafnframt með gestum þeirri leið sem hún notaði til að yfirstíga kóngulóa- fóbíu sína. Tónlist 20.00 Söngfjelagið Góðir grannar heldur tónleika í Langholtskirkju undir yfirskriftinni Raulað úr ræmum. Á efnisskránni eru lög úr kvikmyndum, t.d. Vesalingunum, Galdrakarlinum í Oz og Breakfast at Tiffany’s. Sérlegur vinakór Góðra granna, Raddbanda- félag Reykjavíkur, kemur einnig fram. Miðaverð er kr. 1.500. 21.00 Saxófónleikarinn Angelika Nieschier heldur tónleika á Múlanum í Hörpu, ásamt þeim Scott McLemore trommuleikara og Hilmari Jenssyni gítarleikara. Síðasti diskur Angeliku var valinn diskur ársins 2011 af helsta jazz- riti Þýskalands, Jazzthing. Fyrirlestrar 12.00 Mr. Vivien Pertusot, forstöðu- maður Ifri hugveitunnar (think tank) í Brussel talar á fundaröð Alþjóðamála- stofnunar Háskóla Íslands í fundarsal Norræna hússins. Umræðuefni fundarins er Evrópusambandið: Breyti- legur samruni eða ein leið fyrir alla? Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir. 20.00 Dr. Hans Kr. Guðmundsson eðlis- verkfræðingur heldur fyrirlestur um doktorsmenntun og íslenska doktora í félagsheimilinu að Hæðargarði 31. Fyrir- lesturinn er á vegum U3A Reykjavík. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is BYGGIR SKÓLA Angelina Jolie hefur fjármagnað stúlknaskóla í Kabúl. Hún hyggst byggja fleiri skóla í landinu. NORDICPHOTOS/GETTY NÝTT LAG Hljómsveitin Grísalappalísa hefur gefið út sitt fyrsta lag. Verkið Sjóræningjaprinsessan, sem frumsýnt verður í Gaflara- leikhúsinu næsta laugardag, fjallar á ærslafenginn hátt um ævintýri barnanna Soffíu og Matta sem alist hafa upp á friðsælli eyju í Suðurhöfum. Ólíkt Matta, upp- eldisbróður sínum, þráir Soffía að lenda í ævintýrum og heldur því statt og stöðugt fram að hún sé sjóræningjaprinsessa, fóstur- foreldrum sínum til armæðu. En svo gerist það eitt óveðurskvöld að tveir grunsamlegir náungar skjóta upp kollinum og áður en Soffía veit af er hún komin út á rúmsjó með hættulegum og ótrúlega heimsk- um sjóræningjum á leið til Millj- ónmaðkaeyju þar sem mannætur ráða ríkjum. Leikritið er eftir Ármann Guð- mundsson og hann semur einn- ig tónlistina, ásamt Guðmundi Svavarssyni. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Sýnt er í Gaflara- leikhúsinu við Víkingastræti og hægt að panta miða á midi.is. Á leið til Milljónmaðkaeyju Leikfélag Hafnarfj arðar frumsýnir fj ölskylduleikritið Sjóræningjaprinsessuna. LEIKENDUR Það verður stuð þegar sjóræningjaprinsessan heimsækir Hafnar fjörð um næstu helgi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.