Fréttablaðið - 03.04.2013, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 3. apríl 2013 | MENNING | 19
Vantar unglinginn á heimilinu
smá bíópening?
Við einföldum millifærslur í snjallsímanum
margfalt. Með nýja Íslandsbanka Appinu
má nálgast stöðuna á reikningum og færa
smærri fjárhæðir á vini og vandamenn með
fáeinum smellum.
Þjónusta í gegnum Appið:
Hraðfærslur á þekkta viðtakendur
Staða reikninga með einum smelli
Myntbreyta og gengi gjaldmiðla
Upplýsingar um útibú og hraðbanka
Aðgengi að Netbanka o.fl. sem opnar
á fleiri möguleika
Kynntu þér nýja Appið betur
á www.islandsbanki.is/farsiminn
Veldu eða skráðu
inn upphæð
Millifærsla
framkvæmd!
Þjónustan er í boði fyrir fjárráða einstaklinga með aðgang að Netbanka Íslandsbanka.
tveir þrír!og.
29. MARS - 1. APRÍL
BÆKUR ★★★★ ★
Í trúnaði
Héléne Grémillon, þýðing: Kristín
Jónsdóttir
BJARTUR 2013
Neon-klúbbur Bjarts er stór-
merkilegt fyrirbæri. Þar koma út
á tveggja mánaða fresti nýlegar
bækur frá ýmsum löndum, bækur
sem annars myndu tæplega rata
í hendur íslenskra lesenda, en
eiga það sameiginlegt að breikka
sjóndeildarhring þeirra svo um
munar. Nýjasta bókin í klúbbnum,
Í trúnaði eftir Héléne Grémillon,
er engin undantekning frá þeirri
reglu. Frönsk verðlaunabók frá því
í fyrra sem farið hefur sigurför
um heiminn og það verðskuldað.
Bygging bókarinnar er æði sér-
stök. Ramminn er saga Camille,
ungrar konu sem nýverið missti
móður sína, en meginsagan er
sögð í bréfum frá ókunnum manni,
bréfum sem rekja harmræna sögu
frá stríðsárunum og setja tilveru
Camille smátt og smátt á annan
endann.
Sögunni er mjatlað í hana og les-
andann í hæfilegum skömmtum
með hliðarsporum, misskilningi,
lygum og hálfkveðnum vísum sem
halda lesanda á tánum fram á síð-
ustu síðu. Lengi framan af er erfitt
að átta sig á hvað þessi gamla saga
hefur með líf Camille að gera en
eins og vera ber smellur allt á sinn
stað á endanum.
Eins og títt er um franskar
sögur sem segja frá stríðsárunum
er undirliggjandi ógn í textanum,
þótt stríðið sjálft sé aðeins í bak-
grunni sögunnar. Stríðið sem hún
lýsir er stríðið á milli manneskj-
anna, lygar, svik og prettir, ást í
meinum og óhugnanleg grimmd-
in sem gegnsýrir mannleg sam-
skipti. Hér eru þó engar svart-
hvítar mannlýsingar, vonda fólkið
ekki alvont og góða fólkið engir
saklausir englar. Hver persóna
er vel og sannferðuglega dregin
og lesandinn hefur þrátt fyrir allt
samúð með þeim öllum og skiln-
ing á því sem knýr þær áfram.
Fórnarlambið Annie er sannfær-
andi í trúnaðartrausti sínu og sak-
leysi, sem þó er málum blandið
þegar í ljós kemur að einnig hún
getur svikið þá sem standa henni
næst ef aðstæðurnar bjóða upp á
það. Best skrifaða persónan er þó
frú M, þorparinn í sögunni, sem
þrátt fyrir mannvonsku sína er
svo brjóstumkennanleg og mann-
leg að lesandinn dauðvorkennir
henni. Aðrar persónur eru í minni
hlutverkum í sögunni, en þó allar
vel dregnar með skýr persónuein-
kenni sem gera þær lifandi í huga
lesandans. Sannarlega vel að verki
staðið.
Sagan er feikivel skrifuð og þýð-
ing Kristínar Jónsdóttur rennur
vel og áreynslulaust, þótt á stöku
stað megi finna stirðan þýðingar-
keim, einkum í fyrri hlutanum.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sterk saga með vel
dregnum persónum og sögu sem lifir
lengi í huga lesandans.
Syndir mæðranna