Fréttablaðið - 23.04.2013, Síða 4
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
FJÖLSMIÐJAN Styður ungmenni inn á
vinnumarkaðinn.
REYKJAVÍK Fjölsmiðjan, vinnu-
setur fólks á aldrinum 16 til 24
ára, óskar eftir auknu fjárfram-
lagi frá sveitarfélögum.
Þorbjörn Jensson, forstöðumað-
ur Fjölsmiðjunnar, kynnti beiðn-
ina og starfsemi Fjölsmiðjunnar
á síðasta fundi stjórnar Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu (SSH). Þar voru einnig lögð
fram drög að nýjum samningi,
sem stjórnin hafnaði að sam-
þykkja að svo stöddu.
„Stjórn SSH telur að fyrir þurfi
að liggja greining á rekstri Fjöl-
smiðjunnar, afkomu og fjárþörf
áður en tekin verður afstaða til
erindis Fjölsmiðjunnar um hækk-
un á almennu rekstrarframlagi
aðildarsveitarfélaganna,“ sam-
þykkti stjórn SSH. - gar
Styrkbeiðni til sveitarfélaga:
Greina rekstur
Fjölsmiðjunnar
207,5159
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,8 117,36
177,98 178,84
152,27 153,13
20,424 20,544
19,999 20,117
17,876 17,98
1,1703 1,1771
175,35 176,39
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
22.04.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
MANNRÉTTINDI „Ég mun aldrei
gefast upp. Mótlætið styrkir mig
og hvetur mig til dáða. Ef ég held
ekki áfram að ýta hætta þjáning-
arnar ekki,“ segir baráttukonan
Kasha Jaqueline Nabagesera.
Hún er í heimsókn hér á landi til
að vekja athygli á bágbornum rétti
samkynhneigðra og transfólks
(LBGT) í heimalandi sínu Úganda
þar sem samkynhneigð er bönnuð
með lögum.
Kasha hefur þurft að sæta mikl-
um ofsóknum fyrir kynhneigð
sína, hefur margsinnis verið fang-
elsuð og beitt ofbeldi. Þrátt fyrir
það virðist hún hafa óþrjótandi
drifkraft.
„Ég er mjög heppin að eiga fjöl-
skyldu sem styður mig, svo ég hef
aldrei þurft að fara í felur,“ segir
Kasha sem segir fjölskyldu sína
hafa þurft að láta ýmislegt yfir
sig ganga. „Ég var rekin úr þrem-
ur skólum meðal annars fyrir að
skrifa ástarbréf til stúlku. Fólk
sagði mig andsetna og mér var
útskúfað þegar ég var unglingur.
En ég gat verið ég sjálf af því að
ég á góða að. Ég vil berjast fyrir
þau sem ekki eiga neitt bakland.“
Árið 2010 birti úgandska frétta-
blaðið Rolling Stone myndir og
nöfn fólks sem blaðið staðhæfði að
væri hommar eða lesbíur. Fyrir-
sögnin með umfjölluninni var
„Hengjum þau“. Nafn Köshu og
vinar hennar, Davids Kato, voru
þar á meðal. Þau kærðu blaðið
fyrir að hvetja til ofbeldis og brutu
þar með blað í réttindasögu sam-
kynhneigðra í landinu. David Kato
var myrtur í kjölfarið.
„Ég hef þurft að sjá á eftir svo
mörgu góðu fólki,“ segir Kasha og
gerir hlé á máli sínu. Þrátt fyrir
þykkan skrápinn er augljóst að
ofsóknirnar hafa haft djúpstæð
áhrif á hana. Sumir hafi séð sér
þann kost vænstan að flýja frá
Úganda en í hennar huga kemur
það ekki til greina. „Þá hafa þeir
unnið. Þeir mega ekki vinna. Bar-
áttan verður að eiga andlit og það
er köllun mín að vera það andlit.“
Kasha verður á Íslandi í tíu
daga. Hún hyggst hitta fyrir ráð-
herra og hefur nú þegar hitt Jón
Gnarr borgarstjóra og eiginkonu
hans.
„Ég ætla líka að ferðast um
landið og fara í Bláa lónið. Svo
langar mig að kynnast sem flest-
um Íslendingum til að koma á
tengslum milli þjóðanna.“
maria@frettabladid.is
Beitt ofbeldi og fangelsuð
vegna kynhneigðar sinnar
Kasha Nabagesera er stödd hér á landi til að vekja athygli á réttindum samkynhneigðra í Úganda. Hún hefur
oft hætt lífi sínu fyrir málstaðinn en þrátt fyrir ofsóknir og morðhótanir lætur hún ekki deigan síga.
VILL EFLA TENGSLIN Kasha vill brúa bilið á milli Íslendinga og Úgandabúa. Hún
segir það nauðsynlegt baráttu samkynhneigðra í Afríku að geta horft til Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kasha er stofnandi og framkvæmdastjóri samtakanna Freedom and Roam
Uganda. Samtökin eru stærstu baráttusamtök hinsegin kvenna í Úganda
og stóðu, ásamt öðrum, fyrir fyrstu Gay pride-göngu landsins í fyrra. Í
göngunni tóku þátt um 150 manns. Þau voru flest fangelsuð að göngu
lokinni en göngufólkið vakti heimsathygli fyrir hugrekkið.
„Það verður önnur ganga farin í ár, og ég reikna með að hún verði
örlítið stærri þó ég búist ekki við neinum rosalegum fjölda. Fólk er enn
svo hrætt,“ segir Kasha.
Meðlimur samtakanna kom hingað til lands í fyrra til þess að fylgjast
með framkvæmd íslensku göngunnar. „Það gefur okkur svo mikinn styrk
að sjá hvernig málum er háttað hér, að það sé hægt að lifa frjáls í eigin
skinni, fordómalaust. Mig langar að eignast hér vini og stuðningsfólk. Hóp
sem við getum leitað ráða hjá, hóp sem skilur okkur og gefur okkur von.“
FANGELSUÐ EFTIR GAY PRIDE-GÖNGU
Kasha Nabagesera verður viðstödd sýningu bíómyndarinnar Kallið mig
Kuchu í bíói Paradís í kvöld. Myndin fjallar um baráttu samkynhneigðra í
Afríku. Áhorfendum myndarinnar gefst svo kostur á að spjalla við Köshu,
sem situr fyrir svörum að mynd lokinni.
Einnig verður Kasha með hádegisfyrirlestur í Háskóla Íslands á morgun,
miðvikudag um málefni hinsegin fólks. Fyrirlesturinn verður í Öskju, stofu
132.
Kasha situr fyrir svörum
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur - sumardagurinn fyrsti
NA-átt, 5-10 m/s.
LITLAR BREYTINGAR Í dag má búast við strekkingi norðvestantil en vindur verður
hægari annars staðar. NA-áttin verður ríkjandi í dag og næstu daga og búast má við
skúrum eða slydduéljum sunnantil en snjóéljum norðanlands.
-1°
13
m/s
1°
12
m/s
4°
5
m/s
6°
5
m/s
Á morgun
Strekkingur vestast, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
3°
-3°
2°
-2°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
19°
22°
19°
Berlín
Billund
Frankfurt
16°
11°
19°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
18°
10°
10°
Las Palmas
London
Mallorca
23°
20°
22°
New York
Orlando
Ósló
11°
26°
13°
París
San Francisco
Stokkhólmur
17°
21°
12°
3°
7
m/s
5°
10
m/s
1°
6
m/s
1°
5
m/s
1°
4
m/s
2°
11
m/s
-1°
4
m/s
3°
-3°
2°
-1°
-2°
EFNAHAGSMÁL Gengi krónunnar
hefur styrkst umtalsvert á síðustu
vikum og hefur ekki verið sterkara
síðan á haustmánuðum árið 2010.
Gengisstyrkingin hefur haft áhrif
á þróun verðlags en útlit er fyrir að
verðbólgan verði sú lægsta í tvö ár.
Gengisvísitala krónunnar var
206,5 stig í gær en til samanburðar
var hún 231,0 stig um áramótin og
234,8 þegar hún fór hæst í janúar.
Síðan hefur krónan styrkst um ríf-
lega 12% en því hærri sem gengis-
vísitalan er því veikari er krónan.
Einn áhrifaþáttur í styrkingu
krónunnar er sá að Seðlabankinn
hefur frá því í janúar reglulega
selt evrur á gjaldeyrismarkaði til
að styðja við gengi krónunnar.
Styrking krónunnar hefur áhrif
á verðbólgu í gegnum verð inn-
fluttra vara. Í mars var verðbólga
3,9% sem var lægsta mæling henn-
ar frá maí 2011. Þá spá greiningar-
deildir bankanna því að verðbólg-
an í apríl hafi verið 2,9% til 3,2%
en Hagstofan birtir mælingu sína
ekki fyrr en í næstu viku. - mþl
Styrking krónunnar hefur lækkað verð innfluttra vara og þar með verðbólgu:
Krónan ekki sterkari síðan 2010
GENGISVÍSITALA
KRÓNUNNAR
235
230
225
220
215
210
205
200
1.1.2010 1.1.2011 1.1.2012 1.1.2013
LÖGREGLUMÁL
Stal fatnaði í Haukadal
Tilkynnt var um þjófnað úr verslun við
Geysi í Haukadal á sunnudag. Ekki var
tiltækur mannskapur frá lögreglunni
á Selfossi til að mæta í útkallið og
því fóru lögreglumenn frá sérsveit
ríkislögreglustjóra á staðinn. Handtók
sérsveitin þar mann sem hafði stolið
fatnaði að verðmæti um 400 þúsund
króna. Kom í ljós að maðurinn var á
reynslulausn vegna fyrri þjófnaðar-
brota. Var hann færður fyrir dómara í
gærmorgun og skal hann afplána eftir-
stöðvar fangelsisvistar sinnar, 180 daga.
DÓMSMÁL Málflutningur um refsi-
kröfu í máli Jóhanns Ragnars
Pálssonar, fyrrverandi umdæmis-
stjóra Þróunarsamvinnustofnunar
(ÞSSÍ) í Mósambík, fór fram í gær-
morgun. Fer ákæruvaldið fram á
ársfangelsi yfir Jóhanni sem er
ákærður fyrir að draga sér fimm-
tán milljónir króna sem starfsmað-
ur ÞSSÍ á fjögurra ára tímabili.
Jóhann hefur játað á sig brotin
og fallist á bótakröfu. Búist er
við því að dómsuppsaga fari fram
innan þriggja vikna. - mþl
Dró að sér fé frá ÞSSÍ:
Jóhann fari í
fangelsi í eitt ár