Fréttablaðið - 23.04.2013, Qupperneq 6
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Það var ýmislegt sam-
þykkt á þessum lands-
fundi. Vandamálið er að
þetta verður aldrei í raun.“
Brynjar Níelsson,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks
í Reykjavík norður.
2013
1. Hvað eru björgunarskip Lands-
bjargar mörg?
2. Hver er forstjóri Þjóðskrár Íslands?
3. Við hvaða ríki undirritaði Ísland
fríverslunarsamning nýlega?
SVÖR
1. 14. 2. Haukur Ingibergsson. 3. Kína.
Miðvikudaginn 24. apríl kl. 12.00-13.30 í Lögbergi (101)
LAGASTOFNUN
www.lagastofnun.hi.is
Elvira mun kynna rannsókn sína á
íslenskum neytenda lánum þ.m.t.
fasteignaveðlánum í ljósi löggjafar
Evrópu sambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins. Farið verður
yfir löggjöf Evrópusambandsins um
neytendalán, fyrirhugaða löggjöf
um fasteignaveðlán og bestu
framkvæmd samkvæmt þjóðarétti.
Niðurstöður benda til að löggjöf ESB tryggi rétt neytenda með
kröfum um upplýsingagjöf og gagnsæi þ.e. lögmætismat auk sann-
girnismats en í því felst eftirlit með óréttmætum og ósanngjörnum
samningsákvæðum og samningsskilmálum. Þessar reglur eiga að
öllu leyti við hér á landi vegna upptöku þeirra í EES-samninginn.
Fundarstjóri: María Thejll, forstöðumaður
Lagastofnunar Háskóla Íslands
LAGASTOFNUN
Fyrirlesturinn verður á ensku - Allir velkomnir.
Ph.D. M. Elvira Méndez-Pinedo
prófessor í Evrópurétti við lagadeild Háskóla Íslands
Lögmæti og sanngirni
verðtryggðra lána í ljósi
evrópsks neytendaréttar
Brynjar Níelsson, sem skipar annað
sæti á lista Sjálfstæðisflokks í
Reykjavík norður, segir samstarf
við Framsóknarflokk valda honum
verulegum áhyggjum ef af stjórn-
armyndun verður.
„Það þarf mikla samningatækni
til að koma þessu saman. Það verð-
ur hugsanlega sett eitthvað mjög
loðið í stjórnarsáttmálann um
þetta, notað eitthvað af einhverju
einhvern tímann, ef þar að kemur.
Það verður bara marklaust plagg,“
sagði Brynjar við fundargest sem
gaf sér að sjálfstæðismenn færu í
ríkisstjórnarviðræður við Fram-
sóknarflokkinn á sunnudag.
Maðurinn hafði áhyggjur af því
hvernig flokkurinn ætlaði að fara
í samningagerð við Framsókn með
„öllum þeim loforðum“ sem þeir
síðarnefndu hafa haldið fram.
Sjálfstæðisflokkurinn er þriðja
stjórnmálahreyfingin sem mætir
til Reykjavíkurborgar til að kynna
stefnumál sín. Samkvæmt fundar-
gestum var um að ræða langfjöl-
mennasta fundinn.
„Við ætlum að vera hérna með
áróður,“ sagði Teitur Björn Einars-
son, sem skipar 6. sæti í Reykjavík
suður, í léttum tón á meðan hann
útbýtti bæklingum til fundargesta,
ásamt Áslaugu Önnu Sigurbjörns-
dóttur, sem skipar 11. sætið. Spurt
var hvort ályktun landsfundar
flokksins um lokun Evrópustofu
stæði til.
„Nei, nei, hvað er þetta. Það er
algjörlega andstætt flokknum að
vera að loka frjálsum samtökum,“
svaraði Brynjar. „Það var ýmislegt
samþykkt á þessum landsfundi.
Vandamálið er að þetta verður
aldrei í raun.“ Spurður hvort það
sé þá ekki allt satt sem komi fram
á landsfundi svaraði hann: „Nei,
það er ekki alltaf sannleikurinn.
Þetta er klúður og menn eru alveg
sammála um það.“
Meðal fleiri viðfangsefna fund-
arins með starfsmönnum Reykja-
víkur var lækkun skatta, bág staða
ríkissjóðs, verðmætasköpun, gjald-
eyrishöft, snjóhengjan, kröfuhafar,
verðbólga, lán, hagvöxtur, gengis-
fall og gjaldmiðlar.
Heitar umræður sköpuðust að
lokinni kynningunni, en Brynjar og
Teitur rökræddu lengi um skulda-
mál og neysluskatta við konu sem
talaði lengi og lá mikið á hjarta.
Hún og Brynjar hækkuðu bæði
róminn, en á meðan fór fólk að
ókyrrast og tínast aftur til vinnu,
enda klukkan orðin eitt.
sunna@frettabladid.is
Sáttmáli D- og B-lista
yrði marklaust plagg
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokks lá ekki á skoðunum sínum varðandi mögulegt
stjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn á fundi starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Gestir spurðu frambjóðendur spjörunum úr og Fréttablaðið hlýddi á svörin.
SKIPST Á SKOÐ-
UNUM EFTIR
FUND
Brynjar Níelsson
hefur miklar
áhyggjur af
mögulegu stjórn-
arsamstarfi Sjálf-
stæðisflokks og
Framsóknar, en
var með svör á
reiðum höndum
hvernig bæri að
tækla það.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Mér fannst athyglisvert að það sé ekki alltaf að
marka það sem kemur fram á landsfundi,“ segir Björn
Ingvarsson, starfsmaður Reykjavíkurborgar, um fund
frambjóðendanna. „En það er bara eins og það er, öll
kosningaloforð eru ekki marktæk. En ég fékk svör við
mínum spurningum.“
Samstarfsmaður hans, Hans Heiðar Tryggvason,
segir fundi sem þessa afar gagnlega, þótt hann sé
búinn að ákveða hvað hann ætli að kjósa á laugardag.
„Þetta er mjög gagnlegt samt sem áður, sér-
staklega með ný framboð,“ segir hann. „Þá sér maður
þingmenn sem koma fram í mínu kjördæmi og hvaða
áherslur þeir eru að boða, því stefnuskrá flokkanna
segir mjög lítið. Maður sér líka hvernig þeir bregðast
við spurningum og öðru slíku og það skiptir máli.“
Kollegarnir eru sammála um að frambjóðendurnir
hafi staðið sig vel í spurningaregninu og komið svör-
unum vel frá sér.
Gústaf Ólafsson, starfsmaður Reykjavíkurborgar,
er einnig ánægður með fundinn. Spurður hvernig
honum fannst frambjóðendurnir svara spurningunum
segir hann: „Bara svona eins og þeir gera, stjórn-
málamennirnir.“
Finnst athyglisvert að ekki sé alltaf að marka landsfund
HANS HEIÐAR
TRYGGVASON
Einstaklingar Krónur Hlutfall
Vegna skuldaaðlögunar 21,5 milljarðar 20,8%
Vegna gjaldþrota 81,7 milljarðar 79,2%
Alls 103,2 milljarðar króna 100%
Fyrirtæki Krónur Hlutfall
Vegna skuldaaðlögunar 158,5 milljarðar 42,6%
Vegna gjaldþrota 213,5 milljarðar 57,4%
Alls 372,0 milljarðar króna 100%
*Uppsafnaðar afskriftir fyrirtækja og einstaklinga hjá Íslandsbanka frá stofnun
bankans 2008 til ársloka 2012. Heimild: Áhættuskýrsla Íslandsbanka 2012.
Leiðréttingar og eftirgjafir frá 2008*
VIÐSKIPTI Heildarafskriftir, eftir-
gjafir og leiðréttingar á lánum til
viðskiptavina Íslandsbanka nema
475,2 milljörðum króna frá stofnun
bankans til ársloka 2012.
Í áhættuskýrslu sem fylgir árs-
reikningi bankans kemur fram að
eftirgjöf vegna einstaklinga nemi
á tímabilinu 103,2 milljörðum og
372,0 milljörðum vegna fyrirtækja.
Eitt af meginverkefnum bank-
ans frá stofnun er sagt hafa verið
fjárhagsleg endurskipulagning á
skuldum viðskiptavina með ýmsum
úrræðum. „Þessi úrræði eru ýmist
hluti af almennum úrræðum að
kröfu stjórnvalda, vegna dóma í
tengslum við lögmæti erlendra
lána, eða sérstök úrræði fyrir við-
skiptavini Íslandsbanka,“ segir í
skýrslunni. Þá kemur fram í ágripi
Sverris Arnar Þorvaldssonar, fram-
kvæmdastjóra áhættustýringar, að
gæði útlánasafns bankans hafi auk-
ist eftir því sem fleiri hafi farið í
gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu og endurútreikningi lána
undið fram. - óká
Rúmur fimmtungur afskrifta einstaklinga er vegna gjaldþrota en tæp 60 prósent hjá fyrirtækjum:
Íslandsbanki afskrifað 475 milljarða frá hruni
BJÖRN
INGVARSSON
VEISTU SVARIÐ?