Fréttablaðið - 23.04.2013, Page 12
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
BEIN ÚTSENDING, ÞRIÐJUDAGINN 23. APRÍL KL. 12.00
Bein útsending frá fundi VÍB og Kauphallarinnar þar sem forsvarsmenn stjórnmálaflokka svara fyrir
stefnu sína um atvinnulífið á komandi kjörtímabili. Leitast verður við að svara þessum og öðrum
áleitnum spurningum á fundinum:
» Hvernig má auka samkeppnishæfni Íslands?
» Hvernig á að leysa gjaldeyrishöftin?
» Er krónan framtíðargjaldmiðill fyrir atvinnulífið?
» Hvernig á að auka fjárfestingu í atvinnulífinu?
» Hvernig á skattkerfið að vera gagnvart fyrirtækjum
og fjárfestum?
Fundarstjóri er Þorbjörn Þórðarson.
Fulltrúar sex stærstu framboða, miðað við skoðana-
kannanir, sitja fyrir svörum. Páll Harðarson, forstjóri
Kauphallarinnar, opnar fundinn.
Á www.vib.is má fylgjast með fundinum í beinni
útsendingu eða horfa á upptöku af honum síðar.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
5
8
9
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is
facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
STEFNA FYRIR
ATVINNULÍFIÐ
RADDIR
ATVINNULÍFSINS
» Markmið funda VÍB er að stuðla að upplýstri og faglegri umræðu um mikilvæg mál á sviði eignastýringar, viðskipta
og efnahagsmála.
Katrín
Jakobsdóttir
Bjarni
Benediktsson
Árni Páll
Árnason
Heiða Kristín
Helgadóttir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Smári McCarthy
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í Al Thani-
máli sérstaks saksóknara gegn
Kaupþingsmönnum mun dragast í
tíu mánuði, fram í febrúar á næsta
ári. Þetta kom í ljós á fundi verj-
enda og saksóknara með dómara í
gærmorgun.
Fyrr í mánuðinum varð ljóst að
fresta þyrfti aðalmeðferð máls-
ins, eftir að verjendur tveggja
sakborninga, þeir Gestur
Jónsson og Ragnar H. Hall,
sögðu sig frá málinu þrátt
fyrir að dómsformaðurinn
Pétur Guðgeirsson hefði
hafnað beiðni þeirra þar
um.
Útlit var fyrir að
fresta þyrfti mál-
inu fram til
hausts til að
gefa nýjum
verjendum
Sigurðar Einarssonar og Ólafs
Ólafssonar færi á að setja sig inn
í málið, en í gær kom í ljós að það
þarf að fresta því enn lengur.
Ástæðan er veikindaleyfi sem
dómsformaðurinn þarf að taka
sér í haust, samkvæmt upplýsing-
um Fréttablaðsins.
Í málinu eru Sigurður og
Ólafur, auk Hreiðars Más
Sigurðarsonar og Magn-
úsar Guðmundssonar,
ákærðir fyrir tugmilljarða
umboðssvik og mark-
aðsmisnotkun
með lánveit-
ingu til sjeiks
Al Thani frá
Katar fyrir
kaupum á
bréfum
í Kaup -
þingi. - sh
Dómari í Héraðsdómi fer í veikindaleyfi í haust:
Al Thani-málinu
frestað í tíu mánuði
Í HÉRAÐSDÓMI Sakborningarnir í Al Thani-málinu mættu ásamt verjendum sínum
í Héraðsdóm fyrr í mánuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON