Fréttablaðið - 23.04.2013, Síða 18
ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 2013 | SKOÐUN | 18
Þann 5. apríl kynntu stjórnvöld
tillögur að aðgerðum til að
bregðast við neyðarástandi vegna
kynferðisbrota gegn börnum.
Kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum er svartur blettur á sam-
félagi okkar, eins og forsætis-
ráðherra komst svo vel að orði í
kynningu á nefndum tillögum.
Meðal þess sem lagt var til
að framkvæmt yrði í bráð var
fræðsla um kynferðisofbeldi og
að átakið Vitundarvakning gegn
kynferðislegu ofbeldi yrði eflt.
Af þessu tilefni vilja Barnaheill
– Save the Children á Íslandi
vekja athygli á rýru námsfram-
boði og skorti á stefnu mörkun
í kennslu um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum. Er þar
átt við nám sem ætlað er fólki
sem kemur til með að vinna með
börnum eða að málefnum barna,
í háskólum landsins og ekki
síður í Lögregluskóla ríkisins.
Könnun Barnaheilla
Á árinu 2007 létu Barnaheill
gera könnun sem gefin var út
í skýrslu sem nefndist „Kyn-
ferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Úttekt á kennsluháttum í
íslenskum háskólum“. Var þar
kannað hvernig staðið væri
að fræðslu um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum fyrir nem-
endur sem væru að mennta sig
til að vinna með börnum eða
að málefnum þeirra, s.s. í sál-
fræðinámi, félagsráðgjöf eða
kennaranámi. Rann sóknin
leiddi í ljós að stefnu skorti
og einungis 32 námskeið í allt
fjölluðu að einhverju leyti með
beinum hætti um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum. Jafnframt
kom í ljós að mjög var á reiki
hvernig staðið væri að kennslu
um kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum.
Einungis í fimm tilfellum af
32 innihélt kennsluskrá upp-
lýsingar um að viðkomandi
námskeið varðaði að einhverju
leyti kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum. Oft var um valnám-
skeið að ræða. Við val nemenda
á námskeiðum í kennsluskrá
er leitað upplýsinga um nám-
skeiðslýsingu.
Það er því mikilvægt að
í kennslu skrám komi fram
skýrar upplýsingar um að
fjallað sé um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum í nám-
skeiðum. Annars vegar svo að
áhugasamir nemendur viti hvar
fræðslu um efnið er að finna og
geti valið sér viðeigandi nám-
skeið og hins vegar til þess að
líklegra sé að staðið verði við
að halda fræðslu um efnið inni í
námskeiðinu, en það verði ekki
látið víkja fyrir öðru.
Skýrsla þessi var kynnt víða,
m.a. fyrir háskólunum og lög-
regluskólanum og lagðar voru
fram tillögur til úrbóta.
Staðan í dag?
Samkvæmt könnun sem nú
hefur verið gerð, fimm árum
síðar, hefur nánast engin
breyting orðið á upplýsing-
um í kennsluskrám um hvar
fræðslu um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum er að finna
í há skólunum og lögregluskóla
ríkisins. Að því er næst verður
komist innihalda einungis fjórar
kennsluskrár námskeiða orðin
„kynferðislegt ofbeldi“ gegn
börnum. Sjö kennsluskrár inni-
halda orðið „ofbeldi“.
Miðað við þessar niðurstöður
er líklegt að fagfólk sem útskrif-
ast úr háskólum landsins til
að starfa með börnum eða að
málefnum þeirra, sem og lög-
reglufólk sem útskrifast úr lög-
regluskóla ríkisins, fái enga eða
litla fræðslu um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum. Þessu þarf
að breyta.
Til að hægt sé að afmá hinn
svarta blett sem kynferðis-
legt ofbeldi gegn börnum er
á íslensku samfélagi, er nauð-
synlegt að móta stefnu og auka
fræðslu. Þannig hafi fagfólk
sem starfar með börnum þekk-
ingu á afleiðingum þess og
hvernig vinna megi með þær
fyrir öll þau börn sem hafa þurft
að þola kynferðislegt ofbeldi.
Barnaheill – Save the Children á
Íslandi hvetja alla þá sem vinna
með eða stefna á að vinna með
börnum að setja slíkt í forgang.
Það er börnum landsins til
heilla.
Menntun fagfólks um kynferðis-
legt ofbeldi gegn börnum
KYNFERÐISBROT
Margrét Júlía Rafnsdóttir og Þóra
Jónsdóttir
verkefnastjórar hjá Barnaheillum– Save
the Children á Íslandi
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík þriðjudaginn 23. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á
skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni,
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi
og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum
stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum
standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast
stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Reykjavík 2. apríl 2013,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 013
www.gildi.is
Fljótt og
gott fyri
r 4
Matur un
dir 2000
kr.!
279kr.stk.
Coca-Cola, 2 l
337kr.stk.
Patakś Korma sósa, 425 g
kjúklingu
rK
ORMA
HVE
R BAKKI ERca. 300 g
þannig að verðið er um 690 kr. pk.
2298kr.kg
Krónu kjúklingabringur, 2 stk. í pakka
359kr.pk.
Tilda suðuhrísgrjón, 5x100 g
P
AK
KIN
N ER 500g
Notum
200 g
– verð p
r. uppsk
rift
143 kr.
329kr.pk.
Patakś naanbrauð, 2 teg.
v
2
í pk.
➜ Til að hægt sé að afmá
hinn svarta blett sem
kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum er á íslensku
samfélagi, er nauðsynlegt
að móta stefnu og auka
fræðslu. Þannig hafi fagfólk
sem starfar með börnum
þekkingu á afl eiðingum þess
og hvernig vinna megi með
þær fyrir öll þau börn sem
hafa þurft að þola kynferðis-
legt ofbeldi.