Fréttablaðið - 23.04.2013, Síða 21

Fréttablaðið - 23.04.2013, Síða 21
BÍLAR Reynsluakstur Audi RS4 Mercedes Benz uppfærir Unimog Toyota Prius undir söluáætlun visir.is/bilar S lysið varð í Öræfasveit á leið heim af landsmóti Snigla sem haldið var að Hrífunesi. Heiðar, eða Heiddi eins og hann var ætíð kallaður, var af flestum bifhjólamönnum á Ís- landi talinn mesti hjólamaður á landinu, jafnvígur á hvaða hjól sem er. Heiðar hafði í mörg ár safnað mótorhjólum og hjólatengdum munum og hafði lengi átt sér þann draum að opna mótorhjólasafn. Heiðar lét eftir sig vel á þriðja tug hjóla og mikið magn bifhjólatengdra hluta. Stofnum Mótorhjóla- safns Íslands er til minningar um Heiðar og mun á safninu vera starf- rækt sérstök minningardeild þar sem hjól og munir hans verða sýnd- ir og varðveittir. Safnið Á hjóladögum á Akureyri sumarið 2008 var tekin fyrsta skóflustungan að glæsilegri 800 fermetra byggingu á Akureyri undir safnið. Notaðar voru tíu samanhlekkjaðar skóflur við gjörninginn en þær voru mann- aðar níu mönnum ásamt Heiðari sjálfum (í anda) á þeirri tíundu. Í dag á safnið tæplega fimmtíu mótorhjól og mikinn fjölda af hjólatengdum munum og ljósmyndum sem spanna alla sögu mótorhjólsins á Íslandi. Starfsemin Mótorhjólasafni Íslands er ætlað að sýna og varðveita sögu mótorhjóla á Íslandi í máli, munum og myndum ásamt því að varðveita minningu Heidda og þau áhrif sem hann hafði á hjólamenningu landsmanna. Auk hefðbundinnar safnastarfsemi er hugmyndin að skapa athvarf fyrir hjólafólk hvort heldur sem það eru Akureyringar eða annað hjólafólk á ferð um landið. Meðal þess sem starfrækt verður í tengslum við Mótor- hjólasafn Íslands er minjagripasala, ráðstefnu- og veislusalur, vetrar- geymsla á hjólum, sölusýningar og samstarf við umboð, þrifaðstaða fyrir hjól, kaffitería, umferðarfræðsla, námskeið og fundaraðstaða ásamt öðrum hugsanlegum jaðarrekstri. Hollvinafélag safnsins – Tían Í janúar árið 2007 var Bifhjólaklúbburinn Tían stofnuð og er hún holl- vinafélag safnsins. Tían hefur í dag um 260 meðlimi sem tilbúnir eru til að leggja fram vinnu, aðstoð og að stuðla að uppbyggingu og hagsmun- um safnsins. Margir félagsmenn Tíunnar og aðrir velunnarar safns- ins hafa boðist til að lána safninu hjól og aðra gripi til varðveislu eða á einstakar sýningar. Mótorhjólasafn Íslands er sjálfseignarstofnun sem ætlað er að standa undir rekstri safnsins og annarri starfsemi. MÓTORHJÓLASAFN ÍSLANDS Mótorhjólasafn Íslands, að Krókeyri á Akureyri, var stofnað 20. desember árið 2007 til minningar um Heiðar Þ. Jóhannsson sem lést sunnudaginn 2. júlí 2006 í hörmulegu bifhjólaslysi. Mótorhjólasafni Íslands er ætlað að sýna og varðveita sögu mótorhjóla á Íslandi í máli, munum og mynd- um ásamt því að varðveita minn ingu Heidda og þau áhrif sem hann hafði á hjólamenn ingu landsmanna. - MÓTORHJÓL Mótorhjólasafn Íslands Krókeyri 2, Akureyri sími 866 3500 Mótorhjólasafnið Stórskemmtilegt safn, fullt af draumahjólum og flóttatækjum Opnunartímar Til 31. maí: á laugardögum kl.15-19 Frá 1. júní: alla daga kl. 10-17 KYMCO 2013! Veglegur aukahlutapakki fylgir: Öflugt spil, dráttarkúla, prófíl- tengi, sæti og sætisbak fyrir farþega, álfelgur og 26” Maxxis Bighorn dekk. Götuskráð hjól tilvalið í leik eða starf. Borgartún 36 • 105 Reykjavík 588 9747 • www.vdo.is Enn betra og skemtilegra hjól hlaðið aukabúnaði

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.