Fréttablaðið - 23.04.2013, Qupperneq 36
BÍLAR4 Þriðjudagur 26. mars 2013
FRÉTTABLAÐIÐ
AUDI RS4
Finnur Thorlacius reynsluekur
Nokkuð einkennileg tilfinning
er að aka bíla á 280 km hraða og
sjá eiginlega ekki veröldina þjóta
fram hjá því að slíkur hraði býr
til einhvers konar göng þar sem
það eitt er skýrt sem fram undan
er. Enda er svo sem enginn tími
til að njóta útsýnis til hliðanna
og að auki myrkur meðan á
þessu stóð. Það þarf mikinn bíl
til að ná slíkum hraða og þeir
finnast í vopnabúri Audi. Einn
þeirra er ekki svo stórvaxinn,
en hann er í stórum skóm með
hratt sláandi hjarta og ber heitið
Audi RS4. Þessi bíll er úlfur í
sauðargæru því við fyrstu sýn
er hann eins og hver annar
skutbíll af minni gerðinni, örlítið
lengdur fólksbíll. Ef betur er
að gáð ber hann þó margt með
sér sem bendir til þess að hann
standi nær villidýraflokki bíla.
Stórvaxin púströrin, úttekin
brettin, vindskeiðar í stærra lagi
að framan, risastórar álfelgur
og hversu lágur bíllinn er á vegi
bendir til þess að hann gæti verið
á sterum. Líkt og Rauðhetta
spurði úlfinn af hverju hann
væri með svona stór eyru,
munn og augu mætti spyrja
RS4 af hverju hann er svona
nálægt veginum, með svona
stóra vél og svona risastóra
bremsudiska. Má þá búast við
dimmrödduðu svari sem kemur
undan húddinu sem svarar
öllum þessum heimskulegu
spurningum rétt áður en hann
hverfur manni sjónum með allt
sitt hestaflastóð hinum megin
sjóndeildarhringsins.
Hver sem prófar spillist
Svo heppinn að sitja undir stýri
Audi RS4 verður maður helst
við að þiggja boð um að prófa
bílinn af umboðsaðila Audi
hérlendis og framleiðandanum
sjálfum, eða þá að eiga yfir 20
milljónir sem setja má í kaup á
gripnum. Greinarskrifari naut
fyrri kostsins um daginn og
leikvöllurinn var hraðbrautir
sem og venjulegir sveita-, fjalla-
og borgarvegir Þýskalands og
Austurríkis. Raunar stóðu fjórir
Audi bílar til boða og fylgdu
því þrír aðrir forystusauðnum
RS4, þ.e. Audi A7, Audi A4
og Audi Q5 jepplingur. Eins
nálægt því að breytast í óþekkt
smábarn verður maður varla
en að vera undir stýri RS4. Svo
viljugur er hann til verksins, svo
skemmtilegur er hann í akstri,
og svo límdur er hann við veginn
að ökumaður fær á sér ofsatrú
sem engum er hollt eftir að úr
bílnum er stigið.
Ofurafl og ekki til fallegra hljóð
Í vélarsal RS4 býr 4,2 lítra og
átta strokka bensínvél sem
skilar 450 hestöflum til allra
hjóla bílsins. Allir S og RS bílar
Audi eru með fjórhjóladrifi
svo auðveldara sé að hemja
öll þau hestöfl sem bílunum
fylgja og ekki veitir reyndar
af. Vélin í RS4 er afskaplega
viljug að snúast og hægt er að
ná í öll 450 hestöflin við 8.250
snúninga. Vélin slær út við 8.500
snúninga og var það skrítin
tilfinning er hún sló snögglega
af öllu afli sínu, sér sjálfri til
verndar. Við vélina var tengd 7
gíra sjálfskipting með tvöfaldri
kúplingu og því eru skiptingar
RS4 ógnarhraðar. Algert konfekt
fyrir eyrun var þegar slegið
var úr á miklum snúningi og
léttar sprengingar berast frá
vélinni þegar bíllinn skipti sér
í kjölfarið. Í raun var það alger
dásemd að heyra frá vélinni á
hvaða snúningi sem er og þetta
er einn af þeim bílum sem synd
er að dempa í hljóðið, en þess
er að sjálfsögðu best notið með
mikilli átroðslu hægri fótarins.
Þrátt fyrir að RS4 sé heil 1.800
kíló er hann ekki nema 4,7
sekúndur í hundraðið og má
efast verulega um að þar gefi
framleiðandinn upp hárrétta
tölu því hann er sneggri en það.
Eyðsla bílsins er hófleg miðað
við allt afl hans, eða 10,7 lítrar í
blönduðum akstri.
Fjölskyldubíll með ógnarakst-
ursgetu
Audi RS4 er aðeins í boði sem
langbakur og segja má að RS5
fylli það tómarúm sem skortur
á sedan-gerð af RS4 skilur
eftir. Hann er því afsprengi
A4 langbaksins, en tekinn alla
leið. Bíllinn er fimm sæta og
með ágætu farangursrými upp
á 490 lítra. Fyrir vikið er hann
praktískur fjölskyldubíll ofan
á ógnarlega akstursgetu. Sætin
í bílnum eru eins og annað,
gullfalleg sportsæti sem lima
ökumann inn í bílinn og það er
heldur ekkert slorlegt að sitja
aftur í bílnum. Innréttingin í
honum er eins og búast mætti
við af Audi, alveg frábær, og
DRAUMUR HVERS
LIFANDI MANNS
Ótrúlegt afl og frábærir aksturseiginleikar.
Audi RS4
reynsluakst-
ur FRÉTTABLAÐIÐ/
XXXXX
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atli.bergmann@365.is
Sími 5125457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
RÚMGOTT
Praktískur
fjölskyldubíll
með 490
lítra skotti.
FLOTTUR
Innréttingin
í honum er
eins og
búast mætti
við af Audi,
alveg frábær.
FJR1300A
FARÐU LENGRA!
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
Þú ferð lengra á Yamaha!
Sérpöntum mótorhjól - afhendingartími 2 vikur