Fréttablaðið - 23.04.2013, Qupperneq 38
BÍLAR2 Þriðjudagur 23. apríl 2013
„Við bjóðum upp á mjög gott
úrval af aukahlutum fyrir
hjólafólk svo sem hjálma, skó og
fatnað,“ segir Pálmi Blængsson,
verslunarstjóri Suzuki í
Skeifunni 17. „Þá erum við einnig
með allt fyrir hjólin en þú þarft
ekki endilega að eiga Suzuki-hjól
til að versla hér. Hér er eitthvað
fyrir alla hvort sem það eru
sleðamenn, hjólamenn eða aðrir.
Við erum til dæmis með mikið af
tækifærisgjöfum fyrir hjólafólk;
sólgleraugu, armbandsúr, belti og
jafnvel barnasmekki og snuð með
Suzuki-merkingum.“
Tilboð á yfirhalningu og hag-
stætt vöruverð
„Á verkstæðinu okkar þjónustum
við öll Suzuki-mótorhjól og
utanborðsmótora. Nú er fólk að
gera hjólin klár fyrir sumarið
og þessa dagana erum við með
tilboð í gangi á
vorskoðunum
og
yfirhalningu
á hjólum og
mótorum,“
segir Pálmi og bætir við að
verslunin leitist við að bjóða gott
verð.
„Við höfum leitað leiða til að
halda verði hagkvæmu eftir
hrunið og okkur hefur tekist
það með því að leita beint til
framleiðenda. Við erum jafnvel
að bjóða verð sem sást ekki
fyrir hrun. Við höfum
þannig einnig náð að
auka úrvalið hjá okkur frekar
en hitt. Til dæmis bjóðum við
gott úrval af hjálmum, allt frá
20 þúsund krónum og upp í 120
þúsund krónur, og heilgalla frá
50 þúsund krónum og upp úr.
Við erum með nokkrar tegundir
af leðurgöllum og einnig galla
úr goretex-efni en það fer mikið
eftir því á hvernig hjóli fólk er
hvaða tegund af fatnaði og búnaði
það velur. Við seljum einnig
fatnað og búnað fyrir motocross,
fjórhjól og vélsleða,“ segir Pálmi.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni: www.suzuki.is
ALLT FYRIR
HJÓLAFÓLKIÐ
Hjá Suzuki í Skeifunni 17, er lögð áhersla á gott úrval og
hagstætt verð. Í versluninni fæst allt sem hjólafólk þarfnast.
Í verslun-
inni má fi nna úrval
tækifærisgjafa fyrir
Gott úrval er af
hjálmum allt frá
20 þúsund upp
í 120 þúsund
krónur.
Pálmi Blængsson býður mikið vöruúrval í Suzuki-versluninni í Skeifunni 17. MYND/GVA
Nákvæmlega 49 árum eftir að Mustang var fyrst kynntur rúllaði millj-
ónasti Mustang-kagginn úr verksmiðju Ford í Flat Rock í Michigan.
Það var þessi gull fallegi rústrauði blæjubíll. Þar er hins vegar bara lít-
ill hluti allra þeirra Mustang-bíla sem Ford hefur framleitt þessi 49 ár,
en alls eru þeir 8,5 milljón talsins. Þessi tímamót marka einnig 50 ára
afmæli verksmiðjunnar, en Ford hefur fjárfest í henni fyrir 555 millj-
ón Bandaríkjadala nýlega, eða fyrir 65 milljarða króna. Mustang var
einnig framleiddur í New Jersey og Kaliforníu á þeim árum sem hann
var hvað vinsælastur. Svo vinsæll varð Mustang strax eftir að hann
var kynntur að fyrsta heila söluár hans seldi Ford 400.000 bíla. Því
má auðveldlega segja að Mustang sé ein allra best heppnaða fram-
leiðsla Ford frá upphafi og Ford hefur passað upp á að bjóða hann
í mjög mörgum útfærslum, sem henta þörfum og veski sem flestra
kaupenda hans.
Milljón
Mustang-bílar
í Flat Rock
Toyota Prius Plug In.
Toyota Prius undir
söluáætlun í Bandaríkjunum
Eftir metsöluár Toyota Prius á síðasta ári eru blikur á lofti hjá
Toyota hvað varðar söluna í ár. Áætlunin fyrir þetta ár segir
til um sölu 250.000 Prius-bíla og aukningu um 5,6% frá því í
fyrra. Salan á Prius á fyrsta ársfjórðungi var ekki nema 55.724
bílar, minnkaði um 8,4% milli ára og því stefnir ekki í nema ríf-
lega 220.000 bíla sölu í ár. Það sem talið er að hamli sölunni nú
er lækkandi bensínverð en það er kunnara en frá þarf að segja
að hátt verð eldsneytis hefur ýtt undir sölu tvinnbíla og annarra
eyðslugrannra bíla.
Selja meira af öðrum tvinnbílum
Bensínverð hefur hins vegar lækkað um 10% frá því á sama
tíma fyrir ári. Þó að sala á Prius hafi minnkað hefur sala á öllum
tvinnbílum Toyota og Lexus hins vegar aukist um 3,8% það sem
af er ári. Því virðist sem sumir Prius-eigendur eða þeir sem hugs-
að geta sér að kaupa tvinnbíl hafi skipt yfir í aðrar gerðir, gjarn-
an stærri gerðir þeirra. Toyota hefur ekki enn þá hafið fram-
leiðslu hybrid-bíla í Bandaríkjunum heldur flytur þá alla inn
frá Japan og forstjóri fyrirtækisins með viðeigandi nafnið, Akio
Toyoda, vildi ekkert láta hafa eftir sér um tilvonandi framleiðslu
þar.