Fréttablaðið - 23.04.2013, Page 40
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTJANA SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
Breiðamörk 15, Hveragerði,
sem lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands föstudaginn 19. apríl
verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 27. apríl kl.14.00.
Arnheiður Ingibjörg Svavarsdóttir Einar Sigurðsson
Anna María Svavarsdóttir Wolfgang Roling
Hannes Arnar Svavarsson Guðbjörg Þóra Davíðsdóttir
Árni Svavarsson Svandís Birkisdóttir
Guðrún Hrönn Svavarsdóttir
Svava Sigríður Svavarsdóttir Erlendur Arnar Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir,
afi, langafi, bróðir og frændi,
JÓN ÓLAFSSON
frá Reynisvatni,
lést laugardaginn 20. apríl á Hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni 2. Hann verður
jarðsunginn frá Lágafellskirkju,
þriðjudaginn 30. apríl kl. 15.00.
Margrét Edda Halvard
Anders Jón Berit
Steinunn Hrefna Axel
Stefán Ingun
Hedvig, Idun, Alexander og Sebastian
Jóhanna Þorgeir
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI GEIR KOLBEINSSON
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 16. apríl. Útförin fer fram
frá Garðakirkju fimmtudaginn 2. maí
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á minningarsjóð líknardeildar.
Unnur I. Gísladóttir Sveinn Aðalgeirsson
Hildur Gísladóttir Christopher K. Melley
Atli Már Geirsson
Óðinn Gísli Melley
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGA LOVÍSA GUÐMUNDSDÓTTIR
Lækjasmára 8, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 19. apríl sl. Hún verður
jarðsungin frá Digraneskirkju í Kópavogi
þriðjudaginn 30. apríl kl. 15.00. Innilegar
þakkir til starfsfólks á B2 í Fossvogi fyrir góða aðhlynningu og
hlýhug. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Guðlaug Anna Ámundadóttir Snorri Böðvarsson
Gunnar Þorsteinsson
Ásdís Ámundadóttir Kjartan H. Bjarnason
Guðmundur Ámundason Elísabet Siemsen
Ámundi Ingi Ámundason Hanna G. Daníelsdóttir
Reynir Ámundason Guðrún H. Sigurðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, faðir, bróðir,
mágur og barnabarn,
ÁRNI GUNNARSSON
Núpasíðu 2c, Akureyri,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi sunnudaginn 14. apríl. Útför hans
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
26. apríl kl. 13.30.
Gunnar Jóhannes Jóhannsson Gunnlaug St. Árnadóttir
Katrín Faith Árnadóttir
Jóna Björk Gunnarsdóttir Reynir Hilmarsson
Jóhann Gunnarsson
Björg Ragnheiður Sigurjónsdóttir
Þökkum samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU ÓSKARSDÓTTUR
Þórðarsveig 1, Reykjavík.
Guðbjörg Sigríður Pétursdóttir Guðjón Gunnlaugsson
Berglind Rós Pétursdóttir Eyjólfur Björgmundsson
Margrét Lára Pétursdóttir
Þorsteinn Pétursson Sveinfríður Ólafsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
„Hellisgerðisgarður er níutíu ára í
ár og okkur fannst tilvalið að nota
tækifærið og setja upp sýningu um
garðinn í Hafnarborg,“ segir Magnea
Guðmundsdóttir, arkitekt og annar
tveggja sýningarstjóra sýningarinn-
ar Hellisgerði, blóma- og skemmti-
garður sem verður opnuð í Sverrissal
í Hafnarborg á fimmtudaginn. „Við
höfum hér í Hafnarborg haft áhuga
á því að tengja safnið út fyrir veggi
safnsins og fannst kærkomið tæki-
færi að fjalla um Hellisgerðisgarð-
inn sem fyrsta skref í þá átt.“
Magnea, sem stýrir sýningunni í
félagi við Berglindi Guðmunds dóttur
landslagsarkitekt, segir Hellisgerðis-
garð hafa verið stofnaðan af fram-
sýnu fólki og að garðurinn sé í raun
mjög nútímalegur á margan hátt.
„Tískan í skrúðgarðagerð á þeim
tíma sem garðurinn var skipulagð-
ur hneigðist frekar í þá átt að hafa
slétta fleti og beina stíga. En í Hellis-
gerðisgarði fær landslagið að njóta
sín.“
Það voru félagar í málfundafélaginu
Magna sem lögðu drög að garðinum á
sínum tíma. „Þeir voru ansi framtaks-
samir, félagarnir í málfundafélaginu, og
framsýnir. Tilgangur með garðinum átti
að vera þríþættur. Í fyrsta lagi að bæj-
arbúar mættu njóta ánægju og hvíldar,
í öðru lagi að vekja áhuga fyrir rækt-
un trjáa og blóma, og í þriðja lagi að
geyma óraskaðar minjar um bæjarstæð-
ið,“ segir Magnea og bætir við að einn
forkólfa málfundafélagsins hafi fyrst
kynnt hugmyndina um Hellisgerði í
framsögu sem bar heitið „Hvernig getur
Magni haft áhrif á útlit Hafnarfjarðar?“
Magnea ólst upp í Hafnarfirði og
þekkir garðinn því vel af eigin reynslu.
„Garðurinn hefur yfir sér ævintýrablæ
sem nýtur sín meðal annars vel á mynd-
um, oft eru til dæmis teknar myndir af
brúðhjónum í Hellisgerði. En samt er
garðurinn ekki öllum kunnur og það má
segja að hann sé vel falið leyndarmál.“
sigridur@frettabladid.is
Sýning helguð
Hellisgerði í Hafnarfi rði
Baráttufólk fyrir stofnun Hellisgerðisgarðsins í Hafnarfi rði var framsýnt segir Magnea
Guðmundsdóttir, arkitekt og annar sýningarstjóra sýningar um garðinn sem opnuð
verður í Hafnarborg á fi mmtudag. Garðurinn verður níræður á árinu.
Í HELLISGERÐI
Þær Berglind
Guðmundsdóttir
landslagsarkitekt
og Magnea Guð-
mundsdóttir arki-
tekt eru sýningar-
stjórar sýningar
í Hafnarborg um
skrúðgarðinn
sem er níutíu ára
á þessu ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hellisgerði í Hafnarfirði er einn elsti opinberi skrúðgarður á Íslandi. Hann var fyrst
opnaður árið 1923 og var þá ætlað að vera blóma- og skemmtigarður í ört vaxandi
bæ. Á sýningunni í Hafnarborg verður mannlífið í garðinum skoðað í spegli tímans,
sjónum beint að gróðri og stemningu á ólíkum tímum. Sýndar verða teikningar og
uppdrættir, ljósmyndir, kvikmyndir og gripir sem tengjast garðinum.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í tengslum við sýninguna í samstarfi við
ýmsa aðila. Sjá nánar á www.hafnarborg.is.
Blóma- og skemmtigarður í vaxandi bæ
Börn á aldrinum tveggja til tíu ára eru
boðin velkomin á fyrsta viðburð nýstofn-
aðs Tyrknesk-íslensks menningarfélags
sem haldinn verður á Korputorgi í dag
klukkan fimm. Þá verður börnunum
boðið í Krakkahöllina í hoppukastala.
Félagið var stofnað á síðasta ári en þessi
viðburður er sá fyrsti sem skipulagður
er á vegum þess. Meginmarkmið félags-
ins er að koma á og halda uppi menning-
arlegu samstarfi milli Íslands og Tyrk-
lands og stuðla að kynningu íslenskrar
menningar og aðstoða fólk við að til-
einka sér íslenska þjóðfélagshætti.
Að sögn Cetil Caglan hjá Tyrknesk-
íslenska menningarfélaginu eru um sex-
tíu Tyrkir á Íslandi en margir þeirra eru
giftir eða kvæntir Íslendingum og því
markmiðið að á annað hundrað manns
verði virkir í félaginu hið minnsta.
Tyrkneska þingið var stofnað þann 23.
apríl árið 1920. Frá árinu 1927 hefur
dagurinn verið opinber frídagur í
landinu, en þá er fullveldi þess minnst
og einnig haldið upp á Dag barna en
Mustafa Kemal Atatürk, stofnandi tyrk-
neska lýðveldisins, færði börnum í Tyrk-
landi þennan dag. Frá árinu 1979 hefur
Dagur barna verið haldinn hátíðlegur
víða um heim.
Barnastund hjá nýstofnuðu félagi
Tyrknesk-íslenska menningarfélagið heldur upp á Dag barna í Krakkahöllinni.
HÁTÍÐISDAGUR 23. apríl er hátíðisdagur
í Tyrklandi. Þá er fullveldi landsins fagnað
og sömuleiðis haldið upp á Dag barna, sem
hefur verið hátíðisdagur þar í landi frá árinu
1927.
MERKISATBURÐIR
1661 Karl II krýndur konungur Englands, Skotlands og Írlands.
1903 Sigfús Blöndal hefur söfnun í orðabók sína sem kom út á
árunum 1920-1924.
1920 Tyrkneska þingið sett á laggirnar í Ankara.
1927 Tyrkland verður fyrsta landið til að halda upp á Dag barna.
1951 Útvarpsþátturinn Óskalög sjúklinga hljómar á öldum ljós-
vakans í fyrsta sinn.
1968 Nemendur í Columbia-háskólanum í New York efna til
mótmæla vegna Víetnamsstríðsins, ná yfirráðum yfir skrifstofu-
byggingu skólans og loka honum.
1985 Coca Cola breytir uppskriftinni að gosdrykknum og setur
nýtt kók á markaðinn. Neytendur ganga ekki á bragðið, aðeins
þremur mánuðum síðar er gamla kókið komið aftur.
1990 Namibía verður 160. meðlimur Sameinuðu þjóðanna.
2001 Fréttablaðið hefur göngu sína.