Fréttablaðið - 23.04.2013, Side 42
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22
BAKÞANKAR
Álfrúnar
Pálsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. tryggur, 6. tveir eins, 8. utanhúss, 9.
ari, 11. tveir eins, 12. ræða, 14. vinna,
16. tveir eins, 17. vefnaðarvara, 18. for,
20. í röð, 21. könnun.
LÓÐRÉTT
1. sparsöm, 3. ullarflóki, 4. greftrunar,
5. bein, 7. klerkur, 10. lúsaegg, 13. flík,
15. svei, 16. skaði, 19. holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. trúr, 6. pp, 8. úti, 9. örn,
11. ff, 12. reifa, 14. starf, 16. tt, 17. tau,
18. aur, 20. rs, 21. próf.
LÓÐRÉTT: 1. spör, 3. rú, 4. útfarar, 5.
rif, 7. prestur, 10. nit, 13. fat, 15. fuss,
16. tap, 19. ró.
Ég veit ekki, á
ég að þora? Hún
lítur ekki út
fyrir að svo
hress!
Ívar! Hún er
örugglega
bara stressuð
framakona
sem er að
leita eftir
smá ást og
umhyggju!
Ok ok! Ég veð í
þetta núna!
You go
dude!
Og við
vorum
nokkur sem
vissum
það,
Pondus!
Ekki að hún
væri orðin
varaformaður
en enginn
segir mér
neitt!
Ha?
Pff! Sé þig!
Auli! Hvað myndi maður
gera án vina,
ekki satt?
Sund-
fataverslun
Kötu
Áfalla-
hjálp
eftir
mátun
Við verðum
að fá okkur
rakavara.
Ef þú bara vissir hvað þú
lítur skringilega út með
þennan hatt!
Vara..formaður
lesbísku..
stríðs..
sveitarinnar
í Tromsö...!
Ég man mjög vel eftir deginum sem ég kaus í fyrsta sinn. Sem er í raun stór-
furðulegt því undanfarið hefur minnið
verið að bregðast mér þegar kemur að mis-
mikilvægum atburðum sem áttu sér stað
á þessum miklu mótunarárum. Ég man
hvernig veður var og að ég var prúðbúin
þegar ég gekk þessi fyrstu mikilvægu
skref inn í kjörklefann ríghaldandi í pass-
ann. Ekki vissi ég að mér myndi þykja þessi
dagur svona stórmerkilegur í undirmeð-
vitundinni, merkilegri en fyrsti skóladagur-
inn í menntaskóla, sem er mér nákvæmlega
ekkert minnisstæður, sem og menntaskóla-
böllin sem falla öll saman í eitt hjá mér.
Ég man samt eftir Sódómu og Sálinni en
það var líklega vegna þess að sú sveit
spilaði á öllum menntaskólaböllum á
árunum 1999-2003.
ÞAÐ var búið að búa mig ansi vel
undir þennan dag enda er ég frum-
burðurinn og ætli foreldrum mínum
hafi ekki þótt mikið til þess koma
að eiga barn á kosningaaldri. Nú
myndi skýrast hvort uppeldið
hefði skilað sér. Ef minnið og
Google-kunnátta mín eru ekki
að bregðast mér voru þetta
sveitarstjórnarkosningar árið
2002. Búið var að hamra á
mikil vægi þess að nýta lýðræð-
islegan rétt sinn og að sjálf-
sögðu reyna að sjá til þess
að ég myndi setja krossinn á
réttan stað að þeirra mati. Ég fékk líka að
heyra það að það væri nánast dauðasynd að
skila auðu, þá væri ég að gefa sigurvegara
kosninganna atkvæði mitt.
Á þessum árum var uppreisnarþráin, sem
sumir myndu kalla síðbúna gelgjustæla,
enn þá til staðar. Ég gerði mér grein fyrir
mikilvægi þess að kjósa og sá að þetta
skipti foreldra mína miklu máli. Þess vegna
gerði ég í því að rökræða um hin ýmsu mál-
efni, vera á móti og snúa upp á mig þegar
ég var spurð hvert krossinn minn færi. Ég
sá mér leik á borði að stuða og fann til mín
að geta tekið þessa ákvörðun ein með sjálfri
mér í kjörklefanum í Kópavogsskóla.
NÚ gott fólk, bráðum þrjátíu ára gömul,
með þó nokkra reynslu af því að ganga inn í
kjörklefann og aðeins fimm daga til stefnu,
verð ég að viðurkenna að ég er bullandi
óákveðin. Þetta eru hvorki gelgjustælar né
uppreisnargirni. Það bætir ekki úr skák að
aldrei fyrr hafa fleiri stimplar verið í kjör-
klefanum, fimmtán talsins.
NÆSTU dagar verða því teknir með
trompi. Mig grunar að það séu fleiri en ég
sem standa í þessum sporum enda ruglar
fjöldinn mann í ríminu. Ég mæli með úti-
lokunaraðferðinni, ákveða fyrst hvað ekki
skal kjósa og svo er hægt að leggjast yfir
það sem eftir stendur. Það mikilvægasta er
að mæta á kjörstað, það er greinilega mun
minnisstæðari reynsla en við höldum.
Minnisstæður dagur
Save the Children á Íslandi
Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is