Fréttablaðið - 23.04.2013, Page 44
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
20% AFSLÁTTUR
Við bjóðum viðskiptavinum okkar
20% afslátt af miðaverði á Engla
alheimsins.
Verkið er sýnt í Þjóðleikhúsinu og
er miðasala þar eða í síma 551
1200. Greiða þarf fyrir miðana
með korti frá Arion banka.
Góða skemmtun.
Bættu LGG + við daglegan morgunverð
fjölskyldunnar og styrktu ónæmiskerfið.
Nú fylgja 2 frítt með
Þú getur lesið meira um LGG+ á
ms.is/lgg
+ stuðlar að vellíðan
+ styrkir varnir líkamans
+ bætir meltinguna og
kemur jafnvægi á hana
+ eykur mótstöðuafl
+ hentar fólki á öllum aldri
+ er bragðgóð næring
Fyrir fulla virkni
Ein á dag
Eiginleikar LGG+
MENNING
„Það er úr mörgu að velja en tón-
listin er einkennandi fyrir daginn
í dag, opnunardag hátíðarinnar,“
segir Karen María Jónsdóttir,
starfsmaður Höfuðborgarstofu
og einn þriggja verkefnisstjóra
barnamenningarhátíðarinnar.
Hún nefnir fyrst tónleikana Snert
hörpu mína í Eldborgarsal Hörpu,
þar sem 400 börn úr 20 leikskól-
um auk nemenda Tónskóla Sig-
ursveins og Hamrahlíðakórs-
ins, syngja ný og gömul lög eftir
Atla Heimi. Upptaktur er annar
viðburður, Karen María útskýr-
ir hann nánar. „Öllum börnum
gafst kostur á að senda inn tón-
verk til sérstakrar dómnefndar
sem skipuð var fagfólki. Þrettán
fengu að fullskapa tónverkin sín
með aðstoð tónskálda og þau verk
verða flutt í dag í Norðurljósasal
Hörpu. Meðal flytjenda eru Ragga
Gísla, Jónas Sig og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir.“
Enn eitt tónlistaratriðið í Hörpu
er Drullumall, tónleikaröð sem
unglingar standa fyrir og hefst í
dag. Svo verða lúðrar þeyttir milli
18 og 19 og í kvöld koma kennar-
ar og nemendur Listdansskóla
Íslands í Hörpu og kynna dans-
inn sem listform.
„Við leggjum líka áherslu á leik-
list í ár,“ upplýsir Karen María og
segir alþjóðlegu leiklistarhátíðina
ASSITEJ tengjast barnamenning-
arhátíðinni í fyrsta skipti. Fjórar
íslenskar barnasýningar og ein
norræn gestasýning verða á dag-
skrá, auk leiksmiðja í samstarfi
við listkennsludeild LHÍ.
Myndlistin er líka víða til sýnis
á hátíðinni. „Eitt af verkefnunum
er „Sæborgin okkar“ sem leik-
skólinn Sæborg stendur fyrir í
samvinnu við Kjarvalsstaði, Daði
Guðbjörnsson listmálari hefur
unnið með börnunum í því,“ lýsir
Karen María og nefnir líka atrið-
ið Dans-æði sem verður á laugar-
daginn. „Þá opnar dansverkstæð-
ið á Skúlagötu 20 sali sína fyrir
börnum og býður þeim að dansa í
hádeginu sér til heilsubótar. Björk
Viggósdóttir myndlistarmaður
mun hengja skúlptúra í loftið sem
börn geta hangið í og líka leikið
sér og búið til dansverk.“ Í lokin
nefnir hún verkefni sem snýst um
lýðræði barna. „Í frístundaheim-
ilum var börnum boðið að lýsa
sýn sinni á skipulag borgarinnar
og að breyta því. Sú vinna verður
til sýnis í Borgartúni 12.“
Dagskráin er á www.barna-
menningarhatid.is og þess ber
að geta að allir viðburðirnir eru
ókeypis. gun@frettabladid.is
Barnalist um alla borg
Barnamenningarhátíð hefst í dag í Reykjavík og stendur fram á sunnudag. Iðnó
breytist í ævintýrahöll og börnin leggja undir sig Hörpu og Kjarvalsstaði. Auk
þess verða leik- og danssýningar og aðrir viðburðir víðs vegar um borgina.
VERKEFNISSTJÓRI „Það er úr mörgu
að velja,“ segir Karen María um
viðburði barnamenningarhátíðarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKÝJABORG Snædís Ingadóttir og Inga Maren Rúnarsdóttir í danssýningu fyrir 0-3 ára sem verður í Tjarnarbíói á sunnudag.
Eitt af verkefnun-
um er „Sæborgin okkar“
sem leikskólinn Sæborg
stendur fyrir í samvinnu
við Kjarvalsstaði, Daði
Guðbjörnsson listmálari
hefur unnið með börn-
unum í því.
Save the Children á Íslandi