Fréttablaðið - 23.04.2013, Page 45
ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 2013 | MENNING | 25
ÞVOTTAEFNI FYRIR HVERT TILEFNI
STÓRÞVOTTUR
FRAMUNDAN?
HAFÐU ÞAÐ FÍNT
NÚ ER ÞAÐ SVART
Ekkert jafnast á við
Neutral Storvask til
að komast til botns
í þvottakörfunni.
Hentar fyrir þvott
af öllu tagi.
Silkihönskum, ullarteppum
og dúnúlpum hæfir 30 til
40 gráðu þvottur í höndum
eða vél með Neutral Uld-
og finvask.
Neutral Sort vask varðveitir
svartan glæsileikann svo hann
tapi ekki lit sínum. Upplitað er
bara ekki í tísku þessa dagana.
Fyrir alla muni, ekki láta
þennan lenda í hvíta
þvottinum.
Létt er að flokka
litríka sokka.
NÚ ER ÞAÐ HVÍTT HALTU LÍFI Í LITUNUM
Ensímin í Neutral Hvid vask
losa þig við erfiða bletti og
óhreinindi. Það skilar sér í
björtum og hvítum þvotti.
Fljótandi Neutral leysist vel
upp og hentar því líka vel í
handþvottinn.
Settu svolítið af Neutral Color
í hólfið og njóttu þess að fá
þvott inn jafn litríkan úr vélinni
aftur. Þetta er kröftugt, þú
notar bara lítið af dufti í
hverja vél. Fljótandi Neutral
Color endist líka og endist.
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi
mælir með vörum frá Neutral
Dönsku astma- og
ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
6
27
19
0
1.
20
13
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á NEUTRAL.IS
TÓNLEIKAR ★★★★ ★
Vierne, Walton og Hafliði
Hallgrímsson
Mótettukór Hallgrímskirkju, stjórnandi:
Hörður Áskelsson
HALLGRÍMSKIRKJA 21. APRÍL
Orgelið í Hallgrímskirkju er trylli-
tæki. Það er stærsta hljóðfæri
landsins. Hávaðinn úr því, þegar
allt er á fullu, er gífurlegur. Orgel-
ið var vígt fyrir um tuttugu árum.
Það þarf auðvitað viðhald eins og
annað, enda í mikilli notkun. Fyrir
skemmstu var það tekið í gegn, auk
þess sem tölvubúnaður þess
var endurnýjaður. Afrakstr-
inum var fagnað með hátíð-
artónleikum á sunnudaginn
var.
Björn Steinar Sólbergs-
son spilaði á orgelið, þ. á
m. tvö einleiksverk eftir
Louis Vierne. Verkin, úr
lagaflokknum Pieces de
fantaisie, voru flott í með-
förum orgelleikarans. Sérstaklega
það síðara, Carillon de Westminster.
Það var samið í kringum stefið sem
hljómar úr Big Ben í London. Upp-
bygging tónlistarinnar er gríðarlega
tilkomumikil og spennuþrungin;
Björn Steinar spilaði hana
af óviðjafnanlegri glæsi-
mennsku.
Mótettukór Hallgríms-
kirkju undir stjórn Harð-
ar Áskelssonar kom einnig
fram á tónleikunum. Fyrst
var flutt tónsmíð eftir Haf-
liða Hallgrímsson, Lofið
Guð í hans helgidóm. Auk
kórsins komu þar við sögu
Frank Aarnink slagverksleikari,
Elísabet Waage á hörpu og Ásgeir
H. Steingrímssyni á trompet, ásamt
Birni Steinari. Hafliði samdi verk-
ið upphaflega árið 1996, en endur-
skoðaði það nýlega og bætti ýmsu
við. Tónlistin byrjaði fallega, laglín-
an sem kórinn söng var einföld og
grípandi. Hún hefði ekki þurft neitt
meira. En því miður varð hún fljótt
óttalega tilgerðarleg. Trompetleik-
urinn var væminn og slagverkið
eins og klisja úr hryllingsmynd. Af
hverju þennan rembing?
Hin kórverkin voru hins vegar
frábær. Coronation Te Deum eftir
William Walton var einstaklega
ferskt og skemmtilegt, og kórinn
söng það af mikilli tilfinningu.
Tæknilega séð var kórsöngurinn
vandaður, heildarhljómurinn var
sérlega skær og þéttur. Messe sol-
ennelle eftir Vierne var líka mögn-
uð í flutningi kórsins, og það var
gaman að heyra þar leikið á bæði
orgel kirkjunnar. Lenka Matéova
spilaði á litla orgelið, Björn Steinar
á það stóra. Messan var stórbrotin
og kraftmikil, túlkunin full af trúar-
hita. Hápunktarnir, þar sem allt
var sett í botn, voru með því flott-
asta sem maður hefur lengi heyrt.
Greinilegt er að stóra orgelið í kirkj-
unni er í toppstandi. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Skemmtilegir
tónleikar; mögnuð tónlist, líflegur
flutningur. En nýleg endurgerð á
verki eftir Hafliða Hallgrímsson olli
vonbrigðum.
Tryllitækið sett í botn
HÖRÐUR
ÁSKELSSON
Helga Rós Indriðadóttir sópran-
söngkona syngur óperuaríur í
Norðurljósasal Hörpu í hádeginu
í dag. Verkin sem hún flytur eru
öll eftir Wagner og Verdi í til-
efni þess að 200 ár eru liðin frá
fæðingu þeirra
beggja á þessu
ári. Nokkuð er
um liðið frá því
að Helga Rós
söng á tónleik-
um í Reykjavík.
Hún starfaði um
árabil við óperu-
hús í Þýska-
landi og var
meðal annars fastráðin við ríkis-
óperuna í Stuttgart í átta ár. Nú
býr hún og starfar í Skagafirði og
stjórnar meðal annars Skagfirska
kammerkórnum.
Tónleikarnir hefjast klukkan
12.15. Allir eru velkomnir og
aðgangur er ókeypis. - gun
Óperutónar
í hádeginu
HELGA RÓS
INDRIÐADÓTTIR
Anna Heiða Pálsdóttir fékk í gær
barnabókaverðlaun skóla- og frí-
stundaráðs fyrir bókina Mitt
eigið Harmagedón sem Salka
gaf út. Guðni Kolbeinsson fékk
verðlaunin fyrir þýðingu sína á
bókinni Stiklað á stóru um býsna
margt eftir Bill Bryson sem JPV
útgáfa gaf út.
Í umsögn valnefndar, sem skip-
uð var Margréti Kristínu Blöndal
formanni, Mörtu Guðjónsdóttur
og Guðrúnu Höllu Sveinsdóttur,
um verðlaunabókina Mitt eigið
Harmagedón segir meðal annars:
„Höfundur fangar af þekkingu
og með virðingu heim sextán ára
stúlku í Breiðholtinu, Dagbjartar
Elísabetar, sem alist hefur upp
innan sértrúarsöfnuðar. Þetta
er þroskasaga sem vekur upp
grundvallarspurningar um lífið
og tilveruna, gildi þess að hafa
sjálfstæðan vilja og geta tekið
sjálfstæðar ákvarðanir um líf
sitt.“
Anna Heiða
fékk barna-
bókaverðlaun
ANNA HEIÐA PÁLSDÓTTIR Fangar
heim 16 ára stúlku í sértrúarsöfnuði í
bókinni Mitt eigið Harmagedón.