Fréttablaðið - 23.04.2013, Side 47
ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 2013 | MENNING | 27
BÍÓ ★★★ ★★
Falskur fugl
Leikstjórn: Þór Ómar Jónsson Leik-
arar: Styr Júlíusson, Davíð Guðbrands-
son, Alexía Björg Jóhannesdóttir, Rakel
Björk Björnsdóttir
Arnaldur hefur það ansi skítt eftir
að hann kemur að bróður sínum
eftir subbulegt sjálfsmorð. Hann
er kominn með annan fótinn í
fíkniefnaneyslu aðeins sextán ára
gamall, og tengir ekki við neitt eða
neinn.
Myndin er byggð á skáldsögu
Mikaels Torfasonar frá árinu
1997 og líklega var það lán í óláni
að ekki tókst að kvikmynda hana
fyrr en nú. Íslendingar eru orðn-
ir miklu betri í að búa til myndir
um síbölvandi dópista með töffara-
stæla og áhorfendur orðnir mót-
tækilegri fyrir þeim.
Falskur fugl er að mörgu leyti
áhugaverð og vel gerð. Hún hlíf-
ir okkur að mestu við sjónrænum
óhugnaði en tekst samt að vera
óþægileg frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu. Þar spilar aðal-
leikarinn, Styr Júlíusson, stóran
þátt, og eina stundina langar mann
að gefa honum vinalegt faðmlag og
þá næstu vill maður helst senda
hann í sveit. En þarna er hæfi-
leikaríkur piltur á ferðinni sem
spennandi verður að fylgjast með.
Myndataka og klipping eru til
fyrir myndar og tónlistin hjálpar
til við að undirstrika óþægindin,
en hljóðinu er á köflum ábótavant.
Aukaleikarar standa sig flestir
með prýði en persónur þeirra eru
ekki allar jafn áhugaverðar. Þegar
allt er tekið saman er Falskur fugl
samt nokkuð lunkið drama og aug-
ljóslega gert af heilindum.
Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Áhugavert en óþægi-
legt unglingadrama.
Fínasti fugl
FALSKUR FUGL Styr Júlíusson á stórleik.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist verður spiluð hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4.
Sýningar
11.00 Flökkusýningin Kjarval og Gull-
mávurinn/Ferðalag listmálara verður sett
upp á Bókasafni Seltjarnarness - Eiðis-
torgi.
13.00 Listaverkasýning barna í 6. og
7. bekk Ingunnarskóla opnuð í anddyri
Þjóðminjasafns Íslands.
15.30 Sýning á gömlum myndum úr
leikskólalífi Drafnarborgar opnuð í
Aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15.
Kvikmyndir
15.00 Kvikmyndahátíð heldur áfram
á Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15,
þar sem sýndar verða stuttar sjón-
varpsmyndir byggðar á hinum klass-
ísku Grimms-ævintýrum. Fyrsta mynd
dagsins er Garðabrúða (Rapunzel),
klukkan 16 verður Skraddarinn hugprúði
(Das tapfere Schneiderlein) sýndur og
klukkan 17 er það myndin Kynjaborðið,
gullasninn og kylfan í skjóðunni (Tisc-
hlein deck dich).
Uppákomur
10.00 Boðið verður upp á afmælistertu
og kaffi í Kringlusafni í tilefni af afmæli
þess.
12.00 Hjólaratleikur fjölskyldunnar við
styttur bæjarins verður haldinn í til-
efni Barnamenningarhátíðar. Leikurinn
hefst við Hörpu og lýkur í högg-
myndagarði Ásmundar Sveinssonar við
Sigtún. Þátttökuspjöld fást í afgreiðslu
Hörpu.
16.05 Útvarpsþátturinn Víðsjá á Rás 1
verður sendur út í beinni útsendingu
frá Kexi Hosteli.
17.00 Veittar verða viðurkenningar
fyrir bestu ljóðin í ljóðasamkeppninni
Ljóð unga fólksins í Kringlusafni í
Kringlunni. Jafnframt verður kynntur
nýr bæklingur um mikilvægi lesturs.
Tónlist
12.15 Helga Rós Indriðadóttir sópran
syngur Verdi og Wagner á hádegistón-
leikum Íslensku óperunnar í Norður-
ljósasal Hörpu. Aðgangur er ókeypis.
17.00 Lúðrasveitin Svanur heldur tón-
leika í Hörpuhorninu í samstarfi við kan-
adísku hljómsveitina Fort Saskatchewan
Community Band. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Strengjasveitin Spiccato flytur
síðari sex konsertana í L’Estro Arm-
onico eftir Antonio Vivaldi á tónleikum
í Neskirkju.
20.30 Kvintett söngvarans Þórs Breið-
fjörð spilar á Kexi Hosteli, Skúlagötu 28.
Þeir flytja dagskrá sem þeir nefna Inni-
leika og byggir á þekktum djasslögum.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Jón Gunnar og Dagdraumarnir
halda útgáfutónleika á Café Rosenberg.
Fyrirlestrar
12.00 Xosé A. Neira Cruz, prófessor við
Háskólann í Santiago de Compostela
á Spáni heldur fyrirlestur um stöðu
galisísku í spænsku tungumálaumhverfi.
Fyrirlesturinn verður fluttur á spænsku
og fer fram í stofu 132 í Öskju. Aðgang-
ur er ókeypis.
20.00 Kynning á samtökunum U3A
Reykjavík verður haldin á Heilsuhælinu
í Hveragerði. Um er að ræða samtök
fólks sem er farið að huga að starfs-
lokum eða hætt á vinnumarkaði.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Lokadagur Holi er 1. maí
og því er enn tími til að njóta Holi-herlegheitanna
sem slegið hafa rækilega í gegn undanfarið.
Í apríl færir Austur-Indíafjelagið þér angan af gleði og litadýrð Holi-
hátíðarinnar á Indlandi með ríkulegum hátíðarmatseðli á hreint
frábæru verði aðeins 4.990 kr. virka daga og 5.990 kr föstudaga og
laugardaga. Maturinn verður bæði suðrænn og seiðandi.
Borðapantanir í síma 552 1630.
Hverfisgata 56
Sími: 552 1630
www.austurindia.is
Opið:
sun.-fim. 18:00 - 22:00
fös. og lau. 18:00 - 23:00
föstudagar og laugardagar 5.990 kr.
FORRÉTTUR
Masala tígrisrækjur
Konkan pönnusteiktar tígrisrækjur í engiferi,
chillíi, kúmmíni og hvítlauk
AÐALRÉTTIR
Koli Nallumallu
Framandi kjúklingaréttur í sterkri sósu
úr tamarind, fersku kóríander og okkar
eina sanna svarta pipar. Kunnur réttur
kaffiræktenda í Coorg-héraði
og
Aadu Piralan
Marínerað lamb beint af grillinu.
Kryddað með engiferi, hvítlauk, kókos og
chillíi. Dæmigerður og dásamaður réttur
úr eldhúsi Keralabúa
og
Mysore Sambhar
Ljúffeng blanda af grænmeti og linsubaunum
sem glatt hefur Mysore-aðalinn um aldir
og
Thoran
Grænmetisréttur kr dy daður m ðe
sinnepsfræjum, karrílaufum og kókos
MEÐLÆTI
Raitha jógúrtsósa
Basmati-hrísgrjón
Naan-brauð
EFTIRRÉTTUR
Savige payasum
Vermicelli-núðlur í d únmjúku rjómablandi
við rúsínur, möndlur og saffran
hátíðarmatseðill
4.990kr. sun.-fim.
Nú eru síðustu
forvöð að panta borð.
HOLI-hátíðinni
lýkur miðvikudaginn
1. maí.
Við þökkum
frábærar viðtökur!