Fréttablaðið - 23.04.2013, Side 50

Fréttablaðið - 23.04.2013, Side 50
Ólsarar bíða spenntir eftir sumrinu enda eiga þeir í fyrsta skipti lið í efstu deild karla. Víkingur hafnaði í öðru sæti 1. deildar síðastliðið sumar og ríkir mikil eftirvænting hjá Ólsurum sem hafa verið duglegir að mæta á leiki liðsins á undirbún- ingstímabilinu. Víkingum hefur gengið illa að styrkja leik- mannahóp sinn fyrir átökin á meðal þeirra bestu. Þokkalegir leikmenn eru mættir í Víkina en enginn þeirra hefur almennilega reynslu af efstu deild hér á landi. Liðið missti auk þess sinn besta mann í fyrra, Edin Besilja, til Þórs sem einnig er nýliði í deildinni. Byrjunin ræður ævinlega miklu um möguleika nýliða og heimavöllurinn þarf að vera vígi ætli Víkingar að blása á spána. Víkingur Ó. hafnar í 12. sætiSPÁ FRÉTTA- BLAÐSINS 2013 ➜ STJARNAN Guðmundur Steinn Hafsteinsson ➜ ÞJÁLFARINN ➜ NÝJU ANDLITIN ➜ HVAÐ ER LANGT SÍÐAN... … liðið spilað í C-deild– 3 ár … komst í undanúrslit bikarsins– 3 ár … spilaði í neðstu deild– 10 ár … Vesturland átti tvö lið í efstu deild– 16 ár … fyrsta tímabil Ejub Purisevic í Ólafsvík– 10 ár Ejub Purisevic er 45 ára gamall sem er á sínu fjórða tímabili með Víkinga. Hann þjálfaði liðið einnig frá 2003 til 2008. Á að baki eitt tímabil í efstu deild en hann þjálfaði Val sumarið 2001 (18 leikir, 5 sigrar, 35 prósent). Eyþór Helgi Birgisson (ÍBV) Farid Zato (HK) Jernej Leskovar (Slóveníu) Kaspars Ikstens (Lettland) Fylgstu með þessum: Steinar Már Ragnarsson– tvíburabróðir Þorsteins Más sem leikur nú með KR. FÓTBOLTI Undanúrslit Meistara- deildar Evrópu hefjast í kvöld þegar Bayern München tekur á móti Barcelona. Óhætt er að segja að mikil spenna ríki fyrir viður- eigninni. Talsvert hefur verið gert úr því að þarna mætast liðið sem Pep Guardiola bjó til, Barcelona, og liðið sem hann er að fara að taka við, Bayern. Jupp Heynckes, þjálfari Bayern, segist ekki ætla að nýta sér Guard- iola og fá hann til þess að kort- leggja Barcelona-liðið. „Ég ber mikla virðingu fyrir Guardiola og við erum í fínu sam- bandi. Ég þarf þó engar upplýsing- ar frá honum því ég þekki Barce- lona-liðið mjög vel sjálfur,“ sagði Heynckes. Heynckes er enginn nýgræðing- ur þegar kemur að spænskum fót- bolta en hann gerði Real Madrid að Evrópumeisturum árið 1998. Hann segir að Bayern þurfi að hafa áhyggjur af meiru en Lionel Messi í leiknum. „Liðið er alltaf mikilvægara en einstaklingurinn. Auðvitað hafa bestu liðin síðan menn sem gera útslagið og Barcelona á Messi. Samvinna alls liðsins er þó það sem gerir það svona gott,“ sagði Heynckes en hver er lykillinn að góðu gengi hans liðs? „Ef ég ætti að taka það saman í eitt orð þá myndi ég segja liðs- heild. Við spilum gríðarlega vel saman og ég er á því að okkar fót- bolti sé sá nútímalegasti frá upp- hafi.“ Mario Mandzukic getur ekki leikið með Bayern í kvöld þar sem hann er í leikbanni. Heynckes vildi ekki gefa upp hvort Mario Gomez eða Claudio Pizarro tæki hans sæti í byrjunarliðinu í kvöld. Barcelona hefur að sjálfsögðu smá áhyggjur af Lionel Messi sem meiddist í rimmunni gegn PSG í átta liða úrslitum. Hann hefur aftur á móti fengið góða hvíld og ætti að verða klár í slaginn. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að hafa Leo með okkur. Okkur hefur tekist að vinna leiki án hans en við leggjum áherslu á að hafa hann kláran í slaginn,“ sagði Jordi Roura, aðstoðarþjálfari Barcelona, en þeir passa upp á að gefa andstæðingnum ekki upplýs- ingar um heilsufar Messi. „Ég get ekki sagt með vissu hvernig Messi kemur til með að vera og hvort hann spili. Við sjáum hvernig hann bregst við æfingu fyrir leikinn og eftir það munum við ráðfæra okkur við læknana um framhaldið.“ Roura segir að Barcelona muni spila sinn leik þó svo liðið sé á útivelli. Þeir breyti ekki leikstíl sínum sama hvar liðið sé að spila og gegn hverjum. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. henry@frettabladid.is Ég þarf enga hjálp Bayern München tekur á móti Barcelona í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúr- slitum Meistaradeildar Evrópu. Jupp Heynckes, þjálfari Bayern, ætlar ekki að fá neinar upplýsingar um Barcelona frá manninum sem bjó til Barcelona-liðið. STJÖRNURNAR Lionel Messi, leikmaður Barcelona, og Franck Ribery hjá Bayern verða í lykilhlutverkum í kvöld. NORDICPHOTOS/AFP Mitsubishi Pajero Intense Árgerð 2009, 170 hestafla dísilvél, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn, 7 manna, ekinn 52 þús. km. Loftkæling, dráttarbeisli, fjarlægðarskynjarar, rafdrifin sæti, þjófavörn, fjarstýrðar samlæsingar, hiti í sætum, hraðastillir, kastarar, rafdrifnar rúður og speglar o.fl. Gæða- bíll ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is Opið virka daga kl. 10-18og laugardaga kl. 12-16 Verð 6.190.000 kr. ➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ íSLANDSMEISTARI: Aldrei BIKARMEISTARI: Aldrei Reiknað er með því að Guðmundur Haf- steinsson beri uppi sóknarleik liðsins. Markahæsti leik- maður 1. deildar í fyrra hefur verið iðinn við kolann á undir- búningstímabilinu og mikil pressa er á herðum framherjans. hefst eftir 13 daga HANDBOLTI Danska úrvalsdeildar- félagið Viborg tilkynnti í gær að kvennalið félagsins hefði fengið nýjan þjálfara. Óskar Bjarni Óskarsson tók við liðinu á miðju tímabili eftir að hafa hafið tíma- bilið sem þjálfari karlaliðsins. Viborg er í miðri úrslitakeppni í Danmörku og í öðru sæti síns riðils eftir fjóra leiki. Liðið hefur unnið tvo leiki en tapað tveimur. „Þetta er nokkuð sérstakt,“ sagði Óskar Bjarni. „Ég var á leið með liðið í undanúrslit um helgina þegar ég var kallaður á fund og mér tilkynnt þetta. Ég vissi svo sem þegar ég tók við kvennaliðinu að þetta yrði erfitt starf en svona hefur þetta verið alla tíð.“ Óskar Bjarni segir að úrslitin hafi ekki verið góð að undanförnu og að tap liðsins gegn Team Tvis um helgina hafi gert útslagið. „Við höfum tapað of mörgum leikjum og alveg eðlilegt að kíkja á það. En ég var einbeittur í því að fara í undanúrslitin, vinna þann leik, fara svo í úrslitin og vinna þar. Það var það sem ég ætlaði að gera og er ég drullufúll að fá ekki tækifæri til þess.“ Viborg er öruggt með sæti í undanúrslitum en stjórn félags- ins hefur áhyggjur af því að liðið muni ekki komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. „Það skiptir félagið gríðarlegu máli, vegna kostunarsamninga og annars slíks. Svona er bara bolt- inn.“ - esá Óskar rekinn frá Viborg HVAÐ NÚ? Óskar Bjarni er í leit að nýju starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Keppni í efstu deild karla í knattspyrnu hefst sunnu- daginn 5. maí. Fram að móti mun íþróttadeild Fréttablaðsins birta spá sína um lokastöðuna þegar upp verður staðið í lok september. Spáin er byggð á mati íþrótta- fréttamanna blaðsins á fjórum lykilþáttum hjá hverju liði fyrir sig, þ.e. varnarleik, sóknarleik, þjálfara og breidd. Auk þess kynnir Fréttablað- ið skærustu stjörnu hvers liðs, stærsta nafnið sem gengið er í raðir félagsins auk leikmanns sem talið er vert að fylgjast með í sumar. Nýliðum Víkings frá Ólafs- vík er spáð 12. sæti í deildinni. Á morgun kemur í ljós hvaða lið er talið munu hafna í 11. sæti deild- arinnar. Spáð í spilin HANDBOLTI Ólafur Stefánsson bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn í gær er hann varð kat- arskur meistari með Lekhwiya. Lið hans gerði jafntefli í leik sínum í kvöld og það stig nægði til þess að Lekhwiya vann sinn fyrsta meistaratitil. Handboltaferli Ólafs er líklega lokið núna. Hann tekur við starfi þjálfara hjá karlaliði Vals í sumar og hann hefur gefið það út að hann ætli sér ekki að spila með lið- inu. Hann gæti þó leikið kveðjuleik með íslenska landsliðinu áður en skórnir fara formlega í hill- una. - hbg Ólafur meistari í Katar SPORT 23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.