Fréttablaðið - 23.04.2013, Page 54

Fréttablaðið - 23.04.2013, Page 54
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 34 „Ég er með umboðsskrifsstofu í Los Angeles sem kom þessu til leiðar. Það er mikil samkeppni um svona spennandi verkefni og valið stóð á milli mín og nokkurra helstu tónskálda í Hollywood. En leikstjórinn var ákveðinn í að fá mig til samstarfs,“ segir tón- listarmaðurinn Jóhann Jóhanns- son. Hann semur tónlistina fyrir kvikmyndina Prisoners eftir kan- adíska leikstjórann Denis Ville- neuve. Prisoners er spennumynd og fara stórleikarar á borð við Hugh Jackman, Jake Gyllenhaal, Terr ence Howard og Paul Dano með helstu hlutverk í myndinni. Jóhann segist vera mikill aðdá- andi Denis Villeneuve og er sér- staklega hrifinn af kvikmyndinni Incendies, en sú var tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2011. „Við Denis náðum saman yfir sameig- inlegri aðdáun okkar á franska leikstjóranum Philippe Grandr- ieux,“ segir hann. Jóhann hefur unnið í tónlistinni fyrir Prisoners frá því í desemb- er og átt nokkra fundi með leik- stjóranum. Hann fylgdist einnig með tökum í mars og keyrði þá um tökusvæðið í Atlanta og fékk þannig tilfinningu fyrir andrúms- loftinu sem á að ríkja í myndinni og hitti um leið leikara myndar- innar. „Ég er með nokkuð mót- aða hugmynd um hvaða stefnu tónlistin mun taka, sem ég byggi á lestri handritsins og samtölum við leikstjórann, en ég byrja ekki að semja fyrir alvöru fyrr en ég fæ fyrsta klipp sem ætti að gerast á næstu dögum. Ég hitti bæði Jackman og Dano í Atlanta, en ég þekki Dano frá því ég samdi tónlist fyrir mynd- ina For Ellen, sem hann lék í. Þeir eru báðir voða fínir og Jackman spurði mikið um Ísland.“ Aðspu rðu r seg i s t Jóhann ætlar að vera viðstaddur frumsýningu myndarinnar, en áætlaður frumsýningardagur er 20. september. „Ég missi aldrei af frumsýningu og mæti því að sjálfsögðu.“ sara@frettabladid.is Semur tónlist fyrir myndina Prisoners Jóhann Jóhannsson semur tónlist fyrir nýja kvikmynd leikstjórans Denis Ville- neuve. Myndin skartar Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum. ÆTLAR Á RAUÐA DREGILINN Jóhann Jóhannsson semur tónlistina fyrir kvikmyndina Prisoners í leikstjórn Denis Villeneuve. Myndin skartar meða annars Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum. Jóhann fór til Suðurskautslandsins í febrúar ásamt kvikmyndagerðarmann- inum Gregory Colbert. Tilgangur ferðarinnar var að taka upp mynd sem hefur verið í vinnslu í ein ellefu ár, en Jóhann semur tónlistina fyrir myndina. „Ég tók sjálfur upp mikið efni á Suðurskautslandinu, bæði myndbrot og hljóð, og mun búa til verk úr því efni þegar tími gefst. Suðurskautslandið er alveg ótrú- legt, einn fegursti staður sem ég hef komið á. Birtan og dýralífið er alveg magnað og það er einhver melankólía og harðneskja yfir þessu landi sem höfðar til mín,“ segir Jóhann um ferðalagið. Tók upp hljóð á Suðurskautslandinu „Það er lakkríshúðað súkkulaði sem Kólus selur. Maður verður að sjúga þetta og þegar maður kemst í gegnum lakkrísinn fyllist munnur- inn af gómsætu bráðnu súkkulaði. Það gerist ekki betra.“ Árni Ólafur Jónsson matreiðslumaður. NAMMIÐ Dansk-íslenska hljómsveitin My bubba, sem áður hét My bubba & Mi, er nú stödd í Los Angeles að taka upp nýja plötu með hinum virta, bandaríska upptökustjóra Noah Georgeson. Hann hefur áður unnið með Joanna Newsom, Dev- endra Banhart og The Strokes. Platan verður gefin út hjá danska útgáfufyrirtækinu Fake Diamond Records í haust. Af öðrum hljómsveitum sem gefið hafa út á vegum Fake Diamond eru Oh Land, Eagger Stunn og Darkness Falls. Platan verður með framandi áhrifum og er eins konar ferðalag í gegnum ímynduð höf og heimsálfur sem stúlkurnar hafa látið sig dreyma um í skandínav- íska skammdeginu. Eftir vestur- förina halda þær í lítið tónleika- ferðalag um Danmörku og koma fram á Gloria-sviðinu á Hróars- kelduhátíðinni. My bubba, sem skipuð er Guð- björgu Tómasdóttur (Bubbu) og My Larsdotter frá Svíþjóð, hefur lagt í ótal tónleikaferðalög um Evrópu og Bandaríkin og spilað m.a. á CMJ, Culture Collide, Ice- land Airwaves og SPOT-Festival. Fyrsta plata sveitarinnar, How It‘s Done in Italy, kom út 2009. EP-platan Wild & You kom svo út í fyrra hjá Kimi Records. - fb Taka upp plötu í Los Angeles Hljómsveitin My bubba starfar með virtum upptökustjóra í Los Angeles. MY BUBBA Hljómsveitin My bubba er að taka upp nýja plötu í Los Angeles. ➜ My bubba var stofnuð yfir uppvaski í Kaupmannahöfn fyrir fimm árum. „Þetta eru mjög glaðir og fyndnir menn. Ég hef unnið með þeim áður og er mjög spennt að fá tækifæri til þess aftur,“ segir leik- og söng- konan Ágústa Eva Erlendsdóttir um listahóp- inn Gelitin. Gelitin samanstendur af fjórum Austurrík- ismönnum sem eru á meðal upphafsmanna í gjörningalistum. „Þeir eru í alls konar skrítn- um pælingum sem eru fullar af húmor. Þeir stálust til dæmis einu sinni til að byggja svalir utan á World Trade Center. Ég veit ekki hvernig þeir fóru að því en það komst ekki upp fyrr en þær voru tilbúnar,“ segir Ágústa. Hópurinn setur svo á svið alls kyns sýningar og er Ágústa á leið til Vínar í sumar til að taka þátt í einni slíkri. Um er að ræða tíu daga sýn- ingu sem ber heitið The Cube. „Þeir ætla að búa til ýmis konar verk úr kubbi sem er staðsettur í safninu og á meðan er tónlist í gangi og bún- ingar og alls konar skemmtilegt. Þetta er allt voða opið og skemmtilegt og allar gerðir tón- listarmanna alls staðar að úr heiminum sem koma og taka þátt í þessu,“ segir hún. - trs Syngur á sýningu sem gerist inní kubbi Leik - og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir veitir gjörningslistahópnum Gelitin liðstyrk í Vín í sumar. SYNGUR Í VÍN Ágústa Eva er í hópi listamanna alls staðar að úr heiminum sem tekur þátt í sýningunni með listahópnum Gelitin í sumar. ➜ Ágústa Eva verður með í sýningunni í tvo daga en þá þarf hún að koma aftur heim og í Þjóðleikhúsið þar sem hún fer með hlutverk í Englum alheimsins. Aðalfundur Aðalfundur Sjálfsbjargar félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, verður haldinn í kvöld þriðjudaginn 23. apríl 2013, kl 19:30 í félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf • Önnur mál Þeir félagsmenn einir hafa kosningarétt sem hafa greitt félags- gjaldið fyrir árið 2012. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Stjórnin Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.