Fréttablaðið - 09.05.2013, Side 1

Fréttablaðið - 09.05.2013, Side 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 18 SELFRIDGES OPNAR BÍLALÚGUSelfridges opnar bílalúgu í janúar næstkomandi. Þá geta við- skiptavinir pantað draumavarninginn á netinu og fengið afhentan í gegnum bílalúgu með háklassaþjónustu á móttöku- svæði aftan við verslunina á Oxford-stræti. Selfridges vonast til að allar vörur verslunarinnar, nema viðkvæmar matvörur, verði fáanlegar á netinu í lok árs. ANGUR REYKJAVIK Óskar Hallgrímsson, nemi í Listaháskóla Íslands fór að þrykkjaá É g á hjólabretti en kann engin trix, get í mesta lagi rennt mér áfram og aftur á bak. Pælingin er samt að þetta verði að skatewear-línu,“ segir Óskar Hallgrímsson, sem silki þrykkir á boli og peysur undir merkinu AngurReykjavík. Óskar stunda áhö fátækur námsmaður að ég borða allan pening sem ég á,“ segir hann sposkur. „Ég hef verið að nýta mér aðstöðuna í skólanum en ætla að fara með dótið mitt inn á Karolinafund comþanni KANN ENGIN TRIXÍSLENSK HÖNNUN Óskar Hallgrímsson hannar undir merkinu Angur Reykja- vík. Á teikniborðinu er skatewear-lína en sjálfur kann hann ekkert á bretti. Hann segist hafa mikinn áhuga fyrir tísku og hönnun. Teg 81103 - létt fylltur í 70-85B, 75-90C á kr. 5.800,- buxur við á kr. 1.995,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Laugardaga frá kl. 10-14 KLASSÍSKUR ! SÉRBLAÐ Fólk Sími: 512 5000 9. maí 2013 108. tölublað 13. árgangur Olía lak á vatns- verndarsvæði Til stóð að flytja 1.600 lítra af olíu á Þríhnúkagíg. Í olíuflutningum gærdagsins láku 600 lítrar af dísilolíu á bílaplan í Bláfjöllum. 2 Búsifjar fyrir S og V Vegna minna fylgis dragast framlög ríkisins til fráfarandi stjórnarflokka saman tugi milljóna á ári. 4 Krefst fangelsis Farið er fram á 18 mánaða fangelsi yfir Lýði Guðmunds- syni í Exista-málinu svokallaða. 6 Þriðjungshækkun Bréf Trygginga- miðstöðvarinnar (TM) hækkuðu um þriðjung frá útboði á fyrsta degi við- skipta í Kauphöllinni í gær. 6 SPORT Sir Alex Ferguson hættir sem stjóri Manchester United eftir 27 far- sæl tímabil á Old Trafford. 38 SKOÐUN Heimilisofbeldi er þjóð- félagsmein sem við getum aldrei sætt okkur við, skrifar Eygló Harðardóttir. 18 MENNING Leikarahjónin Ingibjörg Huld Haraldsdóttir og Hilmir Jensson eru á leið til Akureyrar. 42 LEIÐIN TIL HOLLUSTU www.skyr.is Skyr.is drykkirnir standast þær ströngu kröfur sem gerðar eru til matvæla sem merktar eru Skráargatinu. Þú getur treyst á hollustu Skyr.is. í dag Opið 13-18 SPJALDTÖLVUR FYRIR SUMARIÐ FONEPAD3G 59.990 LANDBÚNAÐUR Ljóst þykir að fjölmargir bændur á Norður- og Austur landi muni verða fyrir verulegu tjóni af völdum óblíðrar veðráttu síðustu mánuðina. Sigurður Eyþórsson, formaður Landssambands sauðfjárbænda (LS), segir snjóalög gera mönnum erfitt fyrir en svellbunkar valdi jafnvel frekar áhyggjum vegna fyrirsjáanlegs kaltjóns. Uppskeru- brestur og tekjutap er raunveruleg- ur möguleiki en margvíslegar hug- myndir um úrlausnir eru ræddar. Snjór er áberandi mestur í Fljót- um, Bárðardal og Svarfaðar dal. Víða annars staðar er þó fannfergi mikið. Sigurður segir að á öðrum svæðum sem heimsótt hafi verið sé minni snjór en mikil svellalög á túnum. „Sé mikið kalið undir svell- inu hefur það mikil áhrif fyrir sumarið og spurning hvað menn fá mikinn tíma til að endurrækta og ná einhverri uppskeru,“ segir Sigurður. Til tals hefur komið að undirstinga jarðvinnsluverktaka á Suðurlandi um að fara norður með stuttum fyrirvara ef fer sem horfir. Ástæðan er sú að bændur hafa lítinn tíma og fyrirséð að vaxtatíminn skerðist. Jarðvinnslu- tæki bænda á svæðinu ráða ekki við svo gríðarlega jarðvinnslu á skömmum tíma. Þá hafa menn verulegar áhyggj- ur af því að tjón á girðingum sé gríðarlegt á stóru svæði. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segir bændur og alla sem að málinu koma bíða eftir því að snjó og klaka taki upp svo hægt sé að meta tjónið. Spurð- ur um aðkomu stjórnvalda segir hann að ráðamenn þurfi strax að huga að málum. „Ég tel að stjórn- völd þurfi að leggja Bjargráðasjóði til fjármagn vegna þessa verk- efnis. Hvað varðar kal í túnum er ekki spurning um tjón, heldur hversu alvarlegt það verður. Sama á við um girðingar sem vitað er að hafa farið illa.“ - shá / sjá síðu 12 Ótíð skemmir tún og eyðileggur girðingar Bændur á Norður- og Austurlandi hafa þungar áhyggjur af kali í túnum. Girðingar í kílómetravís taldar ónýtar. Korn verður ekki ræktað. Horft til aðstoðar ríkisins. Bolungarvík 6° NA 3 Akureyri 7° ASA 3 Egilsstaðir 5° NA 3 Kirkjubæjarkl. 9° NA 2 Reykjavík 9° NA 2 Bjart vestan- og norðvestanlands fram eftir degi en að mestu leyti skýjað austan og sunnan til. Dálítil úrkoma allra syðst. 4 Ég tel að stjórnvöld þurfi að leggja Bjargráða- sjóði til fjármagn. Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna TÆKIÐ VÍGT María Dís Gunnarsdóttir, fjögurra ára, var hvergi bangin þegar hún tók þátt í að vígja nýtt hjartaómskoðunartæki, Hjört, á Barnaspítala Hringsins í gær. Fyrir tækinu safnaðist í átakinu Á allra vörum árið 2011. Á myndinni eru einnig Gróa Ásgeirsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir frá Neistanum og Hróðmar Helgason barnahjartalæknir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MENNTAMÁL Fjöldi nemenda sem útskrifast úr grunnskóla í vor þarf að endurskoða val sitt á framhaldsskóla vegna þess hve margir hafa sótt um í sömu skól- um á höfuðborgar- svæðinu. Nemendur sem valið hafa einn af fjórum vinsælustu skólunum bæði í fyrsta og annað val komast í hvorugan komist þeir ekki inn í skólann sem er þeirra fyrsti kostur. Þar ræður einkunn úr grunnskóla. Skólarnir sem um er að ræða eru Verzlunarskólinn, MH, MR og Kvennaskólinn. Langflestir setja Verzlunarskólann sem fyrsta val- kost. Í erindi Námsmatsstofnunar til grunnskóla landsins eru þeir beðnir að kynna nemendum og foreldrum þessa stöðu og aðstoða þá sem þurfa að endurskoða val sitt. - óká, hó / sjá síðu 2 Sumir þurfa að velja aftur: Verzló í fyrsta sæti hjá flestum LÖGREGLUMÁL Stór eldhúshnífur sem ungur maður er talinn hafa notað til að bana nágranna sínum á Egilsstöðum aðfaranótt þriðjudags fannst á vett- vangi morðsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins. Nágranninn, hinn 59 ára Karl Jónsson frá Galta- stöðum fremri, fannst látinn á svölum íbúðar sinnar að Blómvangi 2 á þriðjudagsmorgun. Ungi maðurinn, 24 ára, var handtekinn í íbúð sinni í húsinu skömmu síðar þar sem hann var ásamt 22 ára barnsmóður sinni og átta mánaða gamalli dóttur. Maðurinn neitaði sök við yfirheyrslur en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins telur lögregla hafið yfir allan vafa að hann sé sekur um að hafa banað nágranna sínum. Heima hjá honum fundust föt með blóði á sem talið er vera úr Karli. Aðkoman á vettvangi var mjög ljót, samkvæmt heimildum blaðsins. Blóð var um allt, bæði inni og úti, hinn látni var með marga og mikla áverka og ljóst var að árásin hafði verið ofsafengin. Svo virð- ist sem Karl hafi hleypt banamanninum inn til sín. - sh / sjá síðu 8 Lögregla telur hafið yfir vafa að maður sem er í haldi hafi myrt nágranna sinn: Fundu blóðug föt og eldhúshníf NEITAR SÖK Maður- inn var leiddur fyrir dómara á þriðjudags- kvöld. AUSTUR- FRÉTT/GUNNAR HEILBRIGÐISMÁL María Dís Gunnars dóttir, fjögurra ára stúlka, var fyrsta barnið sem var skoðað með Hirti, nýja hjarta- ómskoðunartækinu sem var tekið í formlega notkun á Barnaspítala Hringsins í gær. Hjörtur er hjartaómskoðunar- tæki af nýjustu gerð. Þjóðar- átakið Á allra vörum árið 2011 safnaði fyrir tækinu. Í tilkynn- ingu Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, kemur fram að tækið geri læknum kleift að greina betur og fyrr hjartagalla í fæddum og ófæddum börnum. Í tækinu er hægt að skoða hjartað í þrívídd og eru mynd- gæði meiri en áður hefur þekkst. Þá mun hagræði við gagnavinnslu meira og hægt að skoða gögn úr tækinu hvar sem er, innan sem utan spítalans. - hó Nýtt tæki tekið í notkun: Greinir hjarta- galla í börnum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.