Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2013, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.05.2013, Qupperneq 4
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ATVINNUMÁL Nýverið gekk Síldar- vinnslan í Neskaupstað frá ráðningu um 70 ungmenna til sumarstarfa. Ráðið er í tvo starfsmannahópa; annars vegar í fiskiðjuver og hins vegar í hóp sem sinnir umhverfis- verkefnum. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að til starfa í fiskiðjuverinu hafi verið ráðnir rúmlega 50 starfsmenn og eru flestir þeirra á aldrinum 18-20 ára. Munu þeir stunda vakta- vinnu á makríl- og síldar vertíðinni í júní. Í umhverfishópinn voru ráðnir 15 starfsmenn sem eru á aldrinum 17-18 ára. Næg verkefni bíða hóps- ins, sem er ætlað að sinna tiltekt og fegrun á athafnasvæði Síldar- vinnslunnar. Vænta menn þess að verk hópsins verði vel sýnileg þegar líður á sumarið, segir í frétt- inni. Á annað hundrað umsóknir bárust um störfin, en 60% þeirra sem ráðin voru í fiskiðjuverið eru stúlkur. Í umhverfishópnum eru kynjahlutföllin jöfn. - shá Síldarvinnslan í Neskaupstað ræður ungt fólk í fiskvinnu og önnur verk: Hefur ráðið 70 krakka í vinnu NORÐFJARÐARHÖFN Síldarvinnslan hefur þegar ráðið 70 ungmenni í sumar- vinnu. MYND/KRISTÍN HÁVARÐSDÓTTIR BELGÍA, AP Rúmlega þrjátíu hafa verið handteknir í þremur löndum í tengslum við einhvern stærsta demantaþjófnað sögunnar. Hópur fólks braust í gegnum girðingu á flugvellinum í Brussel í febrúar síðastliðnum og stal dem- öntum úr flutningavél sem var að leggja í hann til Sviss. Demant- arnir voru tæplega sex milljarða króna virði. Hópurinn flúði svo sömu leið burt af flugvellinum. Að sögn lögreglu tók verknaðurinn aðeins um fimm mínútur. - þeb Eitt stærsta mál sögunnar: 30 handteknir vegna demanta FERÐAÞJÓNUSTA 100 herbergi á Hverfisgötu Byggingarfulltrúanum í Reykjavík hefur borist fyrirspurn um hvort leyft verði að reisa byggingu fyrir 100 herbergja hótel á Hverfisgötu 103. 208,5036 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,62 117,18 180,82 181,70 153,08 153,94 20,536 20,656 19,975 20,093 17,899 18,003 1,1778 1,1846 175,98 177,02 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 08.05.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 100 80 60 40 20 0 M ill jó ni r kr ón a ÁRSFRAMLÖG ÚR RÍKISSJÓÐI TIL STJÓRNMÁLAFLOKKA* *Miðað við framlög á fj árlögum 2013 og að Sjálfstæðis- fl okkur og Framsóknarfl okkur myndi ríkisstjórn Fy ri r ko sn in ga r ■ Framlög til þingfl okks ■ Framlög til stjórnmálasamtaka NJÓTTU ÞESS AÐ TAKA NÆSTA SKREF Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Fremur hægur vindur. FREMUR MILDIR DAGAR eru fram undan en seinni partinn í dag þykknar upp vestanlands og fer að rigna þar í kvöld og nótt. Á morgun ganga skil með rigningu austur yfir landið. Á sunnudag styttir upp og léttir heldur til um landið vestanvert. 6° 3 m/s 6° 3 m/s 9° 2 m/s 7° 3 m/s Á morgun Fremur hægur vindur. Fer að rigna víða þegar á daginn líður. Gildistími korta er um hádegi 8° 8° 9° 7° 10° Alicante Aþena Basel 26° 20° 24° Berlín Billund Frankfurt 21° 17° 20° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 21° 17° 17° Las Palmas London Mallorca 25° 14° 25° New York Orlando Ósló 18° 30° 16° París San Francisco Stokkhólmur 17° 17° 20° 9° 2 m/s 11° 5 m/s 5° 3 m/s 3° 4 m/s 7° 3 m/s 6° 3 m/s 4° 2 m/s 11° 8° 9° 8° 11° STJÓRNMÁL Fráfarandi stjórnar- flokkar munu missa stóran spón úr aski sínum þegar kemur að skiptingu fjármuna úr ríkissjóði eftir kollsteypuna sem flokkarnir tók í nýafstöðnum þingkosningum. Samkvæmt útreikningum Frétta- blaðsins gætu ársframlög lækkað um tugi milljóna króna fyrir Sam- fylkingu og Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Framlög ríkisins hafa ann- ars vegar verið til stjórnmála- hreyfinga, í samræmi við útkomu í þingkosningum, og hins vegar til þingflokka eftir fjölda þingmanna, auk þess sem stjórnarandstöðu- flokkar fá aukinn hluta. Upphæðirnar sem um ræðir eru í fjárlögum hvers árs og þar ákveðnar af Alþingi. Því er ekki hægt að segja með algerri vissu hvaða fjárhæðir er um að ræða. Ef gengið er út frá sömu fjár- hæðum og á síðasta ári, 290 millj- ónum króna til stjórnmálasamtaka og 51,9 milljónum til þingflokka sem og að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndi nú stjórn, myndu ársframlög til Sam- fylkingar lækka um rúmar 54 milljónir og framlög til Vinstri grænna um rúmar 33 milljónir. Sjálfstæðisflokkur fengi 6,6 milljónum meira og Framsókn tæpum 33 milljónum meira. Tvö ný framboð náðu mönnum inn á þing og fá framlag eftir því, Björt framtíð fengi 31 milljón á ári og Píratar tæpar nítján milljónir. Þá fá framboð sem komu ekki mönnum inn á þing, en voru með 2,5% fylgi eða meira, framlag eftir því. Miðað við fyrrnefndar forsend- ur fengju Dögun og Flokkur heim- ilanna rúmar níu milljónir á ári, hvort framboð. Lýðræðis vaktina vantar hins vegar 67 atkvæði upp á að ná lágmarkinu. Hefðu þeir náð því ættu þeir rétt á rúmum sjö milljónum á ári. Loks má geta þess að þau fram- boð sem buðu fram á landsvísu eiga rétt á styrk vegna kosningaþátttöku, allt að þremur milljónum króna, sem kemur til frádráttar í þetta eina sinn, frá styrknum til stjórnmála- samtaka. Þar gætu Hægri græn- ir, Lýðræðisvaktin og Regnboginn fengið framlag. thorgils@frettabladid.is Miklar búsifjar fyrir Samfylkingu og VG Mikil breyting verður á skiptingu ríkisfjármuna til stjórnmálaflokkanna eftir úrslit síðustu kosninga. Framlög til Samfylkingar og Vinstri grænna munu lækka um tugi milljóna á ári. Framsóknarflokkurinn og minni framboð njóta góðs af. SKIPULAGSMÁL Tillögu um uppsetningu umhverfisverks í Reykjavíkur- tjörn var í gær hafnað í borgarráði. Listaverkið átti að felast í lágreist- um stiklum úr kuðungslaga boga út að útsýnispalli í Tjörninni. Safn- stjóri Listasafns Reykjavíkur sagði í umsögn sinni að verkið myndi verða of afgerandi inngrip, kynni að skaða lífríkið og skapaði hættu fyrir þá sem færu út á stiklurnar. Listamaðurinn Þorbergur Þórsson sagði hins vegar verkið mundu gefa fólki ný sjónarhorn. „Ef horft er á borgina sem heild virðist blasa við að hættan sem af verkinu stafar geti vart verið mælanleg,“ sagði Þorbergur í bréfi til borgarráðs. - gar Hafna tillögu um nýtt umhverfislistaverk í Reykjavíkurtjörn: Tjarnarstiklur varhugaverðar TJÖRNIN Í REYKJAVÍK Borgin hafnar útsýnisstiklum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN UMHVERFISMÁL Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur enn ekki orðið við ósk Fljótsdalshéraðs um fund vegna kvartana undan ljósagangi frá langbylgjumastrinu á Eiðum. „Við höfum engin viðbrögð fengið þaðan ennþá,“ segir Björn Ingimars son, bæjarstjóri Fljótsdals héraðs. „Við munum fylgja því eftir. Ég vænti þess að menn komi hingað og finni út úr þessum málum. Það er mikill pirr- ingur hjá þeim sem búa þarna í næsta nágrenni. Maður skilur það þegar maður sér þetta.“ - gar Óleystur vandi í risamastri: Bæjarstjórinn skilur pirring ÍTALÍA Sjö látnir eftir sjóslys Að minnsta kosti sjö manns létust og nokkrir eru illa slasaðir eftir að flutn- ingaskip sigldi á stjórnturn í höfninni í Genúa á Ítalíu í fyrrinótt. Þriggja er saknað. Flutningaskipið Jolly Nero var að sigla úr höfn á leið til Napólí þegar slysið varð. Tvær vélar munu hafa bilað með þeim afleiðingum að skipstjórinn missti stjórn á skipinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.