Fréttablaðið - 09.05.2013, Side 8

Fréttablaðið - 09.05.2013, Side 8
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 BANDARÍKIN, AP Tvær kvennanna þriggja sem var haldið föngnum í húsi í Cleveland í áratug sneru heim til sín í gær. Sú þriðja er sögð við góða líkamlega heilsu á spítala í borginni. Eigandi hússins sem konurnar fundust í, Ariel Castro, var í gær ákærður fyrir mannrán á fjór- um stúlkum og nauðgun á þrem- ur. Bræður hans tveir, Onil og Pedro, voru ekki ákærðir en þeir höfðu verið grunaðir og yfir- heyrðir af lögreglu áður. Á blaðamannafundi í gær kom fram að vitnisburður fórnar- lambanna og bræðranna allra hafi leitt í ljós að Onil og Pedro vissu ekkert um gjörðir bróður síns. Þeir voru handteknir vegna þess að þeir voru með Ariel þegar hann fannst. Þeir munu koma fyrir dómara í dag og verð- ur væntanlega sleppt. Amanda Berry og sex ára gömul dóttir hennar, sem fædd- ist í prísundinni, komu heim til systur Berry um miðjan dag í gær. Mikill fjöldi hafði safnast saman fyrir framan heimilið og til stóð að Berry ræddi stuttlega við fjölmiðla. Hún treysti sér þó ekki til þess og systir hennar las upp stutta yfirlýsingu þar sem hún þakkaði alla hjálp og bað um að fjölskyldan fengi næði. Lög- regla hefur ekki viljað segja neitt um dóttur Berry eða hvort hinar konurnar hafi orðið þungaðar í prísundinni. Gina DeJesus sneri einnig heim til fjölskyldu sinnar í gær og fjöldi fólks var þar fyrir utan til að bjóða hana velkomna heim. Michelle Knight, þriðja konan, er enn á spítala. Berry slapp úr húsinu með hjálp nágranna á mánudag. Þeim tókst svo að ná dóttur hennar og hinum konunum tveimur út. Að sögn lögreglu var þetta fyrsta flóttatilraun þeirra, en þær sögð- ust aðeins hafa farið út úr húsi tvisvar allan tímann sem þær voru í haldi. Þær fóru þó aðeins úr húsinu og í bílskúrinn, svo þær muni. Lögreglustjórinn Michael McGrath sagði við fjölmiðla í gær að hann væri fullviss um að lög- reglan hefði gert allt sem í henn- ar valdi stóð í leitinni að stúlk- unum á sínum tíma. Nágrannar segjast þó hafa látið lögreglu margsinnis vita af því að eitt- hvað vafasamt ætti sér stað í hús- inu. McGrath sagði engin gögn um slík símtöl hjá lögreglunni. Nágrannar hafa meðal annars sagst hafa séð lítið barn horfa út um glugga hússins og eina kon- una skríða nakta í garðinum við húsið. - þeb Mannræningi í Cleveland ákærður í gærkvöldi: Tvær kvennanna komnar til síns heima VELKOMIN HEIM Amanda Berry og Gina DeJesus sneru heim í gær en Michelle Knight er enn á spítala. Einn mannræningjanna tók þátt í leitinni að DeJesus á sínum tíma og mætti á minn- ingarathafnir um hana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Ungur maður sem situr nú í gæsluvarðhaldi vegna manndráps á Egils- stöðum er talinn hafa notað stóran eldhús- hníf til að bana tæplega sextugum nágranna sínum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hnífurinn fannst á vettvangi, í íbúð hins látna í fjölbýlishúsinu að Blómvangi 2. Það var annar nágranni sem gerði lögreglu viðvart á þriðjudagsmorgun þegar hann sá manninn, hinn 59 ára Karl Jónsson frá Galta- stöðum fremri á Héraði, liggja í blóði sínu á svölum íbúðarinnar. Hann hafði þá verið lát- inn frá því einhvern tíma fyrri hluta nætur. Ungi maðurinn var handtekinn skömmu síðar í íbúð sinni í húsinu, þar sem hann var ásamt 22 ára barnsmóður sinni og átta mán- aða gamalli dóttur þeirra. Maðurinn var yfirheyrður um kvöldið en játaði ekki sök. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er lögregla hins vegar ekki í nokkrum vafa um sekt hans og telur atburðarásina liggja nokkuð ljósa fyrir. Heima hjá mannin- um fundust föt sem hann er talinn hafa klæðst við verknaðinn og á þeim blóð sem talið er vera úr Karli. Maðurinn hafði fyrr um kvöldið verið til vandræða í húsinu, gengið ölvaður íbúð úr íbúð og heimtað tóbak og áfengi, svo að lög- regla þurfti að endingu að hafa afskipti af honum. Svo virðist hins vegar sem hann hafi eftir það bankað upp á hjá Karli, sem hafi hleypt honum inn. Þar hafi maðurinn gripið stóran hníf úr eldhúsinu og lagt til Karls. Aðkoman að íbúðinni um morguninn var ljót. Blóð var um allt, bæði inni og á svölun- um, og augljóst að árásin hafði verið ofsa- fengin. Hinn látni var með marga og mikla áverka og ekkert bendir til þess að hann hafi náð að koma vörnum við eða veita mótspyrnu af neinu tagi enda engin merki um átök inni í íbúðinni. Bráðabirgðakrufningu á líkinu er lokið en endanlegt banamein hafði þó ekki verið stað- fest í gær. Ungi maðurinn var leiddur fyrir dómara við Héraðsdóm Austurlands á þriðjudags- kvöld, þar sem lögregla fór fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir honum. Dómari úrskurðaði manninn í tveggja vikna varðhald á grundvelli rannsóknar- hagsmuna og í gærmorgun var hann fluttur suður til Reykjavíkur þar sem engir gæslu- varðhaldsklefar voru lausir fyrir austan. Samkvæmt heimildum blaðsins eru barns- móðir hans og dóttir komin til ættingja sinna á Suðurlandi. stigur@frettabladid.is Gat enga mótspyrnu veitt við ofsafenginni morðárás Stór eldhúshnífur sem ungur maður er talinn hafa notað til að bana nágranna sínum á Egilsstöðum fannst á vettvangi morðsins. Heima hjá honum fundust blóðug föt. Svo virðist sem nágranninn hafi hleypt honum inn. Á VETTVANGI MORÐS Lögregla strengdi á þriðjudag dúk fyrir svalirnar þar sem maðurinn fannst látinn. Ekki er talinn leika nokkur vafi á því að ungi maðurinn sem er í haldi sé banamaðurinn. AUSTURFRÉTT/GUNNAR BANGLADESS 804 hafa nú fundist látnir eftir að verksmiðjubygging hrundi í Bangladess fyrir tæpum hálfum mánuði. Um 2.500 manns slösuðust og ríflega 2.400 þeirra var bjargað úr rústunum. Enn er verið að leita að líkum í rústunum. Yfirvöld hafa lokað átján fata- verksmiðjum í öryggisskyni eftir að byggingin á Rana-torgi hrundi. Á mánudag tilkynntu stjórnvöld að rannsóknarnefnd myndi skoða byggingar fataverksmiðja sér- staklega. - þeb Enn verið að leita líka: Yfir 800 fundist látnir í Dhaka LÖGREGLUMÁL Tollgæslan kom nýverið upp um tilraun til smygls þar sem amfetamín var falið í fatasendingu. Poki með amfetamíni fannst „kyrfilega saumaður“, að því er segir í frétt á vef Tollgæslunnar, inn í streng á gallabuxum sem sendar voru sem gjöf til landsins. Frekari upplýsingar um upp- runa sendingarinnar eða magn efnanna kom ekki fram. - þj Dópsending fannst í pósti: Reyndu smygl í buxnastreng HUGKVÆMNI Á VILLIGÖTUM Þó að smyglarar séu oft útsjónar samir eru toll- verðir vel á verði. MYND/TOLLUR.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.