Fréttablaðið - 09.05.2013, Síða 10
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
EFNAHAGSMÁL Samráðs vettvangur
um aukna hagsæld á Íslandi hitt-
ist í þriðja sinn í gær. Á fundi þess
voru víðtækar hagvaxtar tillögur
verkefnisstjórnar samráðs-
vettvangsins kynntar og þær
ræddar af meðlimum vettvangs-
ins.
Tillögunum sem kynntar voru
í gær er ætlað að stuðla að því að
markmið sem samráðs vettvangur-
inn hefur sett sér, og sjá má hér
neðar, verði að veruleika. Tillögurnar eru
þó einungis upphafið að vinnu samráðs-
vettvangsins sem stefnir að því að loka-
niðurstöðurnar liggi fyrir í haust.
Tillögur verkefnisstjórnarinnar snúa
að öllum geirum hagkerfisins: opinbera
geiranum, innlendri þjónustu, auðlinda-
geiranum og alþjóðageiranum.
Innan opinbera geirans er meðal annars
lagt til að ýmsar stofnanir verði samein-
aðar og efldar og að fjölþættar umbætur
verði gerðar á fyrirkomulagi heilbrigðis-
og menntakerfisins. Í innlenda þjónustu-
geiranum er til dæmis lagt til að umhverfi
tolla og neysluskatta verði einfaldað og að
hvatt verði til aukinnar samkeppni. Í auð-
lindageiranum eru lagðar til breytingar
sem stuðla eiga að aukinni arðsemi í orku-
framleiðslu og sjálfbærri nýtingu
ferðamannastaða. Loks eru sett-
ar fram tillögur í alþjóðageiranum
sem eiga að sporna gegn skorti á
hæfu vinnuafli og tryggja aðgengi
fyrirtækja að fjármagni.
Friðik Már Baldursson, sem
stýrt hefur vinnu verkefnisstjórn-
arinnar, segist vonast til þess að
tillögurnar nái fram að ganga,
í það minnsta að hluta. „Ég von-
ast eftir því að við berum gæfu
til þess að nýta þann skriðþunga sem
fylgir þessari vinnu. Ef að við gerum það
þá eigum við eftir að nýta einhver þeirra
tækifæra sem þessar tillögur lýsa.“
Þá segir Friðrik að umræður samráðs-
vettvangsins um tillögurnar hafi verið
góðar. „Auðvitað var bent á eitthvað sem
fólki finnst vanta og á veikleika en um-
ræðurnar voru málefnalegar og góðar og
fram kom stuðningur við þetta ferli.“
Loks segir Friðrik að þótt markmið
samráðsvettvangsins séu metnaðarfull sé
mögulegt að ná þeim. „Þessar tillögur eiga
að geta stuðlað að því að við brúum það bil
sem er á milli okkar og hinna Norðurlanda-
ríkjanna þegar kemur að framleiðni. Ef við
virkilega viljum getum við breytt því.“
magnusl@frettabladid.is
Efnahagslífið verði tekið í gegn
Verkefnisstjórn Samráðsvettvangs um aukna hagsæld á Íslandi kynnti í gær mjög víðtækar tillögur sem stuðla eiga að hagvexti á Íslandi.
Ragna
Árnadóttir,
formaður
Þátttakendur í samráðsvettvangnum
STJÓRNMÁLAFLOKKAR
HÁSKÓLASAMFÉLAGIÐ
ATVINNULÍFIÐ
Katrín Olga
Jóhannesdóttir,
varaformaður
OPINBER STJÓRNSÝSLA
Bjarni
Benediktsson,
Sjálfstæðis-
flokki
Árni Páll
Árnason,
Samfylkingunni
Katrín
Jakobsdóttir,
Vinstri
grænum
Sigmundur
Davíð
Gunnlaugsson,
Framsóknarflokki
Guðmundur
Steingrímsson,
Bjartri framtíð
Jón Þór
Ólafsson,
Pírötum
VINNUMARKAÐURINN
Elín Björg
Jónsdóttir,
BSRB
Guðlaug
Kristjánsdóttir,
BHM
Gylfi
Arnbjörnsson,
ASÍ
Þorsteinn
Víglundsson,
SA
Hreggviður
Jónsson,
VÍ
Margrét
Guðmundsdóttir,
FA
Jón Atli
Benediktsson,
HÍ
Ari Kristinn
Jónsson, HR
Björgólfur
Jóhannsson,
Icelandair Group
Eggert B.
Guðmundsson,
N1
Helga
Margrét
Reykdal,
True North
Vilborg
Einarsdóttir,
Mentor
Jón
Sigurðsson,
Össur
Janne
Sigurðsson,
Alcoa
Magnús
Geir Þórðarson,
Borgarleikhúsinu
Pétur
H. Pálsson,
Vísir-Grindavík
Birna
Einarsdóttir,
Íslandsbanki
Halldór
Halldórsson,
Samband íslenskra
sveitarfélaga
Ragnhildur
Arnljótsdóttir,
forsætis-
ráðuneyti
Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi var settur á fót í janúar að frumkvæði
stjórnmála manna og forsætisráðuneytisins. Stofnunina má rekja til þess að ráðgjafarfyrirtækið
McKinsey kynnti skýrslu um leiðir Íslands til aukins hagvaxtar í lok október í fyrra. Vettvangurinn
er þverpólitískur og þverfaglegur eins og sjá má hér til hliðar. Honum er ætlað að móta heild-
stætt og óháð yfirlit yfir aðgerðir sem stuðlað geta að langtímahagvexti og efnahagslegum
stöðugleika og eiga lokatillögur að liggja fyrir í september. Sjálfstæð verkefnastjórn hefur unnið
að mótun tillagna sem eiga að geta stuðlað að þessum markmiðum. Hagvaxtartillögur verkefnis-
stjórnarinnar voru kynntar í gær á þriðja fundi samráðsvettvangsins en á öðrum fundi hans voru
kynntar og ræddar níu tillögur um breytingar á ramma hagkerfisins sem ætlað er að styðja við
aukinn efnahagslegan stöðugleika og trúverðugleika hagkerfisins.
Hvað er samráðsvettvangurinn?
1 Meðalhagvöxtur nemi 3,5% á ári
fram til ársins 2030
sem samsvarar 2,6%
vexti á hvern íbúa
2 Skuldahlutfall hins opinbera verði
komið niður fyrir
60% af vergri lands-
framleiðslu fyrir 2030
3 Stöðugleiki náist í verðlagi og meðal-
verðbólga verði 2,5%
til 2030
MARKMIÐ SAMRÁÐSVETTVANGSINS
FRIÐRIK MÁR
BALDURSSON
MENTOR
NÁMS- OG
KENNSLUKERFI
Í SJÖ LÖNDUM